Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.12.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 29.12.2009, Qupperneq 4
4 29. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR ALÞINGI Sjálfstæðismenn og fram- sóknarmenn lögðu í gær fram hvorir sína frávísunartillögu við Icesave-frumvarp ríkisstjórnar- innar. Þriðja og síðasta umræða um ríkisábyrgð á Icesave hófst á Alþingi í gær. Þá kom þing saman milli jóla og nýárs í fyrsta skipti frá árinu 1994 og í fjórða skipti á lýðveldistímanum. Við upphaf þingfundar var sam- þykkt, gegn andmælum stjórnar- andstöðunnar, að halda kvöldfund um málið. Ríkisstjórnarmeiri- hlutinn stefnir að því að ljúka afgreiðslu Icesave-málsins í dag eða í síðasta lagi á morgun. Verði allir tímafrestir nýttir í ræðum og andsvörum getur umræðan staðið í allt að fjörutíu klukkustundir. Frávísunartillaga, sem fylgir framhaldsnefndaráliti Höskuldar Þórhallssonar fyrir hönd Fram- sóknarflokksins, gerir ráð fyrir því að Alþingi vísi málinu frá og feli ríkisstjórninni „að taka upp viðræður á nýjan leik við bresk og hollensk stjórnvöld á grundvelli Brussel-viðmiðanna. Leitað verði eftir pólitískum farvegi til lausn- ar deilumálinu eða samningsniður- stöðu á sanngjarnari forsendum.“ Frávísunartillaga sem Kristján Þór Júlíusson bar fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir að Alþingi vísi málinu frá og „úrslitatilraun verði gerð til að verja hagsmuni þjóðarinnar“. „Augljóst er að ekki er hægt að fara í samningaumleitanir við þessar þjóðir nema að því komi formenn allra flokka á Alþingi,“ segir í greinargerð sjálfstæðis- manna. Að óbreyttu beri að fella frumvarpið. Bretar og Hollend- ingar verði þá að láta sér lynda „að fara með ágreining þennan í eðlilegan lagalegan farveg fyrir íslenskum dómstólum“. Guðbjartur Hannesson, formað- ur fjárlaganefndar og framsögu- maður ríkisstjórnarmeirihlutans, mælti fyrir samþykkt frumvarps- ins og sagði að nú væri komið að endalokum umræðu um Icesave. Málið hefði fengið vandaðri og ítarlegri meðferð en nokkurt annað þingmál. „Við erum komin að enda- lokum í þessu máli og verðum að gjöra svo vel að taka afstöðu. Við getum ekki vænst þess að aðrir geri það fyrir okkur,“ sagði Guð- bjartur. peturg@frettabladid.is Icesave-umræðan komin á lokasprett Í fjórða skipti á lýðveldistíma kemur Alþingi saman milli jóla og nýárs. Stefnt er að því að ljúka Icesave-umræðu í dag eða á morgun. Stjórnarandstaðan vill frávísun. Verðum að taka afstöðu, segir formaður fjárlaganefndar. ÞINGFUNDUR Þingmennirnir Jónína Rós Guðmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Þráinn Bertelsson, Eygló Harðardóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir hlýddu á umræður um Icesave á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 9° 1° 2° 5° 8° 6° 2° 2° 23° 10° 19° 1° 16° -10° 13° 12° -3° Á MORGUN Víða hægur vindur en strekkingur SA-lands. GAMLÁRSDAGUR Víða hægur vindur en strekkingur SA-lands. -3 -4 -7 -6-2 -6 -6 -7 -9-8 -5 -4 -5 -9 -8 -6 -9 -4 -4 -3 -14 6 7 6 7 15 7 8 6 6 7 12 ÁRAMÓTAVEÐRIÐ virðist ætla að verða með besta móti. Sunnan- og vestanlands lítur út fyrir hægan vind, vægt frost og stjörnubjart veður. Á Norður- og Austurlandi verður talsvert frost en hægur vindur. Suðaustanlands verður veður síst, en þar gæti orðið nokkuð hvasst. Ingibjörg Karlsdóttir Veður- fréttamaður Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þing- flokksformaður VG, er komin til starfa úr barneignarorlofi. Árni Þór Sigurðs- son er varaformaður þingflokks VG. ÁRÉTTINGAR FÓLK Stefnt er að því að slá fjölda- met í sjósundi í Nauthólsvík á nýársdag. Árið 2009 hófst með slíku sjósundi í Nauthólsvíkinni. Samkvæmt upplýsingum frá Yl ströndinni í Nauthólsvík hefur fjöldi gesta í vetraropnun þar stöðugt aukist á árinu. Því ætti að vera nokkuð öruggt að fjöldamet- ið verði slegið 1. janúar. Hitastig sjávar í Nauthólsvík þessa dagana er við frostmark. - þeb Sjósund í Nauthólsvík: Stefna á fjölda- met í sjósundi NAUTHÓLSVÍK Fólki sem stundar sjó- sund í Nauthólsvík hefur fjölgað stöðugt á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÍTALÍA, AP Sjö manns, þýskur unglingur þar á meðal, létu lífið í snjóflóðum á Norður-Ítalíu á sunnudag. Í einu tilvikanna létust tveir ítalskir ferðamenn þegar þeir urðu fyrir snjóflóði í ítölsku Ölp- unum, að sögn Carabiniery-lög- reglunnar ítölsku. Fjórir björg- unarsveitarmenn sem fóru í leit að þeim létu lífið í skriðu sem féll síðar. Í öðru tilviki á sama svæði lést fjórtán ára gamall þýskur piltur þegar snjóflóð féll á hann, bróð- ur hans og vin þeirra. Bróðirinn slapp, en vinurinn var lagður inn á sjúkrahús. - óká Alpahéruð Norður-Ítalíu: Sjö manns lét- ust í snjóflóði LÁTINN BJÖRGUNARMAÐUR Alessandro Dantone, liðsmaður „Soccorso Alpino Val Di Fassa“ björgunarteymisins er einn þeirra sem dóu í snjóflóðum í ítölsku Ölpunum á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÍRAN Ómögulegt er að fá staðfest hversu marg- ir hafa látist í mótmælunum í Íran, þar sem stjórnvöld hafa takmarkað mjög starf erlendra fréttamanna í landinu. Samkvæmt írönskum ríkisfjölmiðlum létust átta á sunnudaginn en umbótasinnar segja að fimmtán hafi látist. Hundruð manna hafa verið tekin höndum. Öryggissveitir stjórnvalda handtóku í gær fjölda umbótasinna þar á meðal samstarfs- menn Mirs Hosseins Mousavi, leiðtoga stjórn- arandstöðunnar. Þá var Seyed Ali Mousavi, frændi stjórnarandstöðuleiðtogans, myrtur í gær og hefur ólgan vaxið eftir að þær fréttir bárust út. Lík Seyeds Ali Mousavi var flutt af spítalanum og er nú í vörslu öryggissveitanna. Fulltrúar stjórnarinnar segja nauðsynlegt að kryfja líkið til að komast nákvæmlega að því hvað gerðist. Umbótasinnar segja þetta skrípa- leik. Stjórn landsins sé að hindra það að Seyed Ali Mousavi verði jarðaður að íslömskum sið en samkvæmt honum eru látnir jarðaðir strax. Segja umbótasinnarnir að stjórnin sé hrædd við að jarðarförin muni leiða til enn frekari mótmæla en þau blossuðu einmitt fyrst upp 21. desember þegar umbótasinnaði klerkurinn Ayatolla Hoseyn Montazeri var jarðaður. Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Þýskaland og Kanada hafa öll fordæmt aðgerðir írönsku öryggissveitanna. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði þær ólíðandi og hvatti stjórnvöld í Teheran til að virða almenn mann- réttindi. - th Öryggisveitir írönsku stjórnarinnar ganga hart fram gegn mótmælendum: Umbótasinnar myrtir í Teheran HÖRÐ MÓTMÆLI Mótmæli hafa blossað upp með jöfnu millibili eftir umdeildan sigur Mahmouds Ahmadinejad í forsetakosningunum í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VÍMUEFNI Tveir Íslendingar um tvítugt hafa setið í varðhaldi á Spáni síðan 17. desember. Ung- mennin voru handtekin á Bara- jas-flugvellinum í Madríd, grun- uð um að reyna að smygla kókaíni frá Perú. Óvíst er hversu mikið magn af efninu þau höfðu í fórum sínum. Vísir.is greindi frá þessu í gærkvöldi. Ræðismaður Íslands í Madríd segir í viðtali við Vísi að hann hafi heimsótt fólkið og að það beri sig vel. Ræðismaðurinn, Francisco J. Pérez-Bustamante de Monasterio, segir sjaldgæft að Íslendingar séu handteknir fyrir slíkt í Madríd. - kóþ Tveir Íslendingar í varðhaldi: Teknir með kókaín á Spáni GENGIÐ 28.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 234,5037 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,76 126,36 200,87 201,85 181,00 182,02 24,315 24,457 21,679 21,807 17,384 17,486 1,3734 1,3814 197,03 198,21 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Í umfjöllun um tónleika gítarleikarans Arnaldar Arnarsonar, sem haldnir verða á Listasafni Íslands í dag, láðist að geta þess að spilað er til styrktar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og að ekki verður tekið við greiðslukortum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.