Fréttablaðið - 29.12.2009, Síða 19

Fréttablaðið - 29.12.2009, Síða 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Hinn 28. desember 1986 var Aðal- björg Guðgeirsdóttir farþegi í bíl á leið út á Keflavíkurflugvöll. Mikil hálka var á leiðinni og ekki vildi betur til en svo að bíllinn skrik- aði til og lenti í árekstri með þeim afleiðingum að Aðalbjörg, sem ekki var með bílbeltið spennt, kastað- ist út úr bílnum. „Ég flaug út um framrúðuna og hafnaði úti í hrauni; lá þar í einar 45 mínútur áður en sjúkrabíll kom og flutti mig á bráða- móttökuna,“ minnist Aðalbjörg sem hlaut mænuskaða í bílslysinu. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það að líf Aðalbjargar gjör- breyttist eftir þetta. Hún hefur meðal annars verið í stífri sjúkra- þjálfun síðan þá og þrátt fyrir að hafa endurheimt að einhverju leyti kraftana í fótunum er hún að mestu bundin hjólastól. Fyrir tveimur árum sótti Aðal- björg svo um hjá Hjálpartækja- miðstöð Tryggingastofnunar að fá greitt af viðbótartæki við hjólastól sinn, svokallað Speedy-Duo2 tæki, sem auðveldar notendum alla úti- vist og hreyfingu. Aðalbjörgu var hins vegar synjað á þeim forsend- um að fötlun hennar væri ekki „af réttum toga“ eins og hún kemst að orði. „Nei, ég hefði meðal annars þurft að vera offitusjúklingur, eða með blóðþynningu eða blóðrásar- vanda,“ segir hún og getur ekki stillt sig um að hlæja að úrskurð- inum. Hagur Aðalbjargar vænkaðist hins vegar þegar Lionsklúbburinn Freyr kom henni nýlega til aðstoð- ar og fjármagnaði að mestu kaup á fyrrnefndu viðbótartæki. „Þeir gerðu þetta fyrir mig ásamt nokkr- um afar góðhjörtuðum einstakling- um,“ útskýrir Aðalbjörg og bætir við að Soroptimistaklúbbur Graf- arvogs hafi að auki styrkt hana um kaup á nýjum og betri sveifum á hjólið hennar. Hún segir að algjör bylting hafi orðið á lífi sínu eftir það. „Maður kemst hraðar um; nú get ég til að mynda fylgt dóttur minni lengra en áður. Síðan fæ ég miklu meiri hreyfingu og þarf því minna á lyfjum að halda við spasma í vöðvum. Þetta veldur því að maður er heilbrigðari í alla staði. Áður fyrr þurfti ég til dæmis alltaf að byrja á léttum lóðum þegar ég fór í sjúkraþjálfun á veturna en vegna aukinnar hreyfingar er ég orðin sterkari í alla staði. Svona tæki getur því skipt sköpum fyrir fólk í minni aðstöðu.“ roald@frettabladid.is Kemst hraðar yfir og nýt- ur betur útiveru og lífsins Aðalbjörg Guðgeirsdóttir lenti í slæmu bílslysi fyrir 20 árum og hefur síðan þá verið bundin við hjólastól. Nýlega fékk hún gefins viðbótartæki við hjólastól sinn sem auðveldar henni alla útivist og hreyfingu. Með viðbótartækinu á hjólastólnum kemst Aðalbjörg nánast allra sinna ferða og nýtur betur útiveru en áður. MYND/JÓNA SIGÞÓRSDÓTTIR ENDURVINNSLUSTÖÐVAR SORPU eru opnar á gamlársdag frá 10 til 12 en lokað er á nýársdag. Venju- legur opnunartími verður laugardaginn 2. janúar en þá er opið frá 10 til 18.30. www.sorpa.is www.elin.is Bæjarhrauni 2 Hfj. Sími: 696 4419 Rope Yoga Námskeið hefjast 4. janúar Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.