Fréttablaðið - 29.12.2009, Page 34
29. DESEMBER 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Illa lukkuð veisla getur breyst
í vel lukkaðan mannfögnuð
með réttu leikjunum.
Áramótanna er alltaf beðið með
eftirvæntingu. Flestir ætla að
gera sér glaðan dag og enn glað-
ari nýársnótt þegar töfrar tíma-
mótanna sindra enn þá í glæðum
stjörnuljósanna. Miklar vænting-
ar eru yfirleitt gerðar til gleðskap-
ar á gamlárskvöld og vonbrigðin
því oft mikil þegar veislan stend-
ur ekki undir væntingum. Mæðu-
legum mannfagnaði má hins vegar
bjarga glettilega fyrir horn ef
veisluhaldarinn er vel undirbú-
inn og lumar á nokkrum leikjum
til að létta lund veislugesta. Fæst-
ir leikir þarfnast flókins undirbún-
ings, yfirleitt er almennur húsbún-
aður og veisluföng og skreytingar
nóg til að byrja á skemmtilegum
leik. Verðlaunin birtast vonandi í
bættum gleðskaparanda en góðir
gestgjafar hafa stundum líka hugs-
að fyrir verðlaunapeningum, bik-
urum og jafnvel kórónum handa
sigurvegurum. Aðalmálið er að
skemmta sér hið besta. - bb
Leikur í stjörnuljósum
● STÓLALEIKURINN
er sígild skemmtun kyn-
slóðanna. Hann felst í því
að stólum er raðað í hring
og skulu þeir vera einum
færri en þátttakendur. Allir
raða sér kringum stólana en
mega aldrei snerta þá með
höndunum. Tónlist er sett í
gang og allir eiga að hlaupa
kringum stólana. Þegar tón-
listin þagnar eiga allir að
setjast og sá sem ekki fær
sæti er úr. Stólum er fækkað
um einn og leikurinn heldur
áfram. Sá sem situr í síðasta
stólnum vinnur. Hægt er að
útfæra þennan leik á ýmsan
hátt, til dæmis með því að hafa púða á gólfinu sem á að ganga eða hlaupa í
kringum sem gerir það erfiðara að setjast. Einnig geta verið glös eða súkku-
laðimolar á borði sem þarf að tæma eða snæða (alltaf einum færri en þeir
sem taka þátt í leiknum) svo að sigurvegaranum gæti orðið nokkuð bumb-
ult undir lokin.
● BLÖÐRULEIKIR eru til
í ýmsum útgáfum. Ein útgáf-
an gengur út á það að binda
blöðru við annan fótinn á leik-
endum og svo á að reyna að
sprengja blöðruna hjá hinum. Sá
vinnur sem er með sína blöðru
ósprengda. Líka má keppa í
því að halda blöðru á lofti með
höfðinu, jafnvel bara nefinu. Svo má líka dansa saman tvö og
tvö með blöðru á milli sín. Blöðruna má ekki snerta með hönd-
unum og það er skylda að dansa í takt við tónlistina. Lögin
verða svo taktfastari eftir því sem á leikinn líður en það par er
úr leik sem missir blöðruna. Góð leið til að kynnast fólki.
● SVO MÁ AUÐVITAÐ SPILA Á SPIL alla
nýársnóttina ef vill. Svarti-Pétur, lauma, veiðimað-
ur og rommí eru allt saman góð og gegn spil sem
öll fjölskyldan getur skemmt sér yfir en svo má
líka spila bridds eða póker til að gera leikinn meira
spennandi.
● GRÍMUPARTÍ á gamlárskvöld getur ekki klikkað.
Þá er líka hægt að færa út hugmyndina með því að hafa
eins og eina morðgátu í gangi. Þá er gott að vera búinn
að senda gestunum persónurnar áður svo þeir geti
undirbúið sig og komið í búningi sem passar fyrir per-
sónu sína. Gátan gerist svo á afmörkuðum stað þang-
að sem ákveðið fólk er boðað í einhverjum tilgangi, til
dæmis áramótapartí. Allir eiga sína forsögu og vilja ná
einhverjum árangri, kannski ná að kyssa alla karlmenn
í partíinu eða fá að minnsta kosti tíu sopa úr glösum
annarra gesta. Einn er svo morðinginn og hann eða
hún drepur með einhverri fyrirfram ákveðinni aðferð,
til dæmis blikkar morðinginn gesti eða festir á þá lím-
miða svo lítið beri á. Þegar einhver hefur verið drepinn
er hann úr leik og þarf að setjast hjá hinum fórnarlömb-
unum og halda partí. Eftirlifandi gestir geta svo reynt
að bjarga lífi sínu með því að finna út hver morðinginn er þangað til hann er einn uppistandandi. Skemmtilegur leikur
sem þarfnast ákveðins undirbúnings og gengur síður upp í „opnu“ partíi þar sem gestir eru alltaf að koma og fara.
● HOLLINN SKOLLINN er
góður og gegn íslenskur leikur. Þá er
bundið fyrir augun á einum þátttak-
anda, honum snúið í hringi og farið
með þuluna „Hollinn skollinn sitt á
hvoru horni, aldrei skaltu finna mig
fyrr en á laugardagsmorgni.“ Skoll-
inn á svo að reyna að klófesta hina
sem stríða honum óspart. Þegar og
ef honum eða henni tekst að ná ein-
hverjum verður hann eða hún skoll-
inn næst.
● TORTILLU-PITSA Fljót-
leg og auðveld leið til að búa
til þunnbotna pitsu er að nota
tortilla-kökur fyrir pitsubotn.
Pitsusósa er borin á botninn,
og rifnum osti stráð yfir og því
næst er áleggið sett á. Pitsan
er hituð í ofni í nokkrar mínút-
ur við 200 gráðu hita eða þar til
osturinn er bráðinn. Ágætt er
að hafa undir- og yfirhita á ofn-
inum. Tortillu-bökur er hægt að
geyma í frysti og kippa þeim út
þegar á þarf að halda. En það
tekur bara nokkrar sekúndur að
þýða þær á pönnu.