Samtíðin - 01.12.1964, Síða 14
6
samtíðin
KVEIUIUAÞÆTTIR
WVWWWWWWWWWVWWWWWWVWVPWWS
Dior-tízkan í vetur
DIOR-tízkan er álitin dálítið róman-
tízk í ár. Kemur það fram i rykktum
pilsum, sem minna á þau pils, sem sveita-
konur gengu i fyrr á tímum, og er mitt-
ið þá haft á réttum stað. Raglan-ermar
og dragtarjakki upp í háls eru einkenni
Dior-tizkunnar í vetur, en stundum eru
ermarnar beinar og langar með skinn-
bryddingum á rússneska vísu. Kjólar eru
jafnvel með keisarasniði (empire) og
eru ]>á úr músselíni með mittinu uppi
undir brjóstum. Mikið er um ísaum með
steinum og palléttum á drögtum sem
kjólum. Yfirleitt er samkvæmissvipur á
fatastíl Diors i vetur.
Sem vetrarfatnað liefur hann sýnt
kápu og kjól (ensemble) úr kamelull með
tweed-áferð og höfuðfat úr sama efni,
en skó með litlum hælum úr leópard-
skinni. Mjög klæðilegur þótti kjóll, sem
Dior sýndi. Hann var alveg sléttur í
sniðum, úr hárauðu tweed með flauels-
belti i sama lit. Það markaði aðeins mitt-
ið og var bundið að framan í slétta slaufu.
Hálsmál var ferkantað, mjög flegið og
ermar langar. Þá sýndi Dior-húsið dragt
úr gráu ullarefni með miklum palléttu-
ísaum kringum hálsmálið, sem var með
nokkurs konar matrósakraga. Við þessa
dragt er notuð smákolla úr palléttum.
BUTTERICK-snið nr. 3084 í stærðunum l.2**
—22^. Fallegir jólakjólar. Sniðin fást lijá S-l-
Austurstræti 10 og kaupfélögunum.
Framleiðum kápur og dragtir úr tízkuefnum eftir sniðum frá
þekktustu tízkuhúsum heims. — Sendum gegn póstkröfu.
Kápan h.f. Laugavegi 35 — Sími 14278.