Samtíðin - 01.05.1944, Blaðsíða 36
32
SAMTÍÐIN
\§ Qcoruui oq, úSbjCúvCu J
Fokvondiir borgarstjóri, sem mj-
lega hafði lútið af embætti, kom
inn á ritstjórnarskrifstofu eins af
helztu btöðum bæjarins og öskraði
upp í opið geðið d ritstjóranum: —
Þér þykist vera fyndinn eða hvað?
— Hvað eigið þér við? spurði
ritstjórinn.
— Ég þykist vita, að þér hafið
einhverja hugmynd um, að ég hef
látið af embælti.
— Já, og ég gat um það í sið-
asta blaði, svaraði ritstjórinn.
— Ég veit það, þrumaði borgar-
stjórinn, — en hvernig í fjandan-
um dirfðust þér að birta fregnina
undir fyrirsögninni: Framfarir og
þjóðþrif??
Eiginmaður: — 1 hvert skipti,
sem mér verður litið á hattinn þinn,
fer ég að skellihlæja.
Eiginkonan: — Þá ætla ég að láta
liann einhvers staðar þar, sem þú
getur haft hann fyrir augunum, þeg-
ar reikningurinn fyrir hann kemur.
íslendingar!
Munið ykkar eigin skip —
Strandferðaskipin.
FERÐIZT MEÐ ÞEIM!
FLYTJIÐ MEÐ ÞEIM!
Dómari: — Fyrir lwað er þessi
maður ákærður?
LögregluþjÓnn: — Fjölkvæni,
hann hefur kvænzt þremur konum.
Skipaútgerö rikisins.
Hafið þér lesið hina merku ÆyÍSÖgU Niels R. FinsenS
eftir Anker Aggerbo
SAMTÍÐIN kemur út 10 sinnum á ári, mánnðarlega nema í janúar og ágúst. Verð 15 kr.
árgangurinn (erlendis 17 krónur), er greiðist fyrirfram. Áskrift getur byrjað hvenær,
sem er, á árinu. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason magister. Sími 2526. Áskrift-
argjöldum veitt móttaka í Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1, Bókabúð
Austurbæjar, Laugavegi 34 og hjá Jafet, Bræðraborgarstíg 29. — Póstutanáskrift er:
Samtiðin, Pósthólf 75, Reyltjavík. — Prenluð í Félagsprentsmiðjunni hf.