Samtíðin - 01.05.1944, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.05.1944, Blaðsíða 15
SAMTÍÐIN 11 er að vera að lifa?“ En þau orð opna hlið dánarheimanna. Allar lífverur, nema þær frum- stæðustu, sem forðasl dauðann með því að skipta sér i tvær nýjar líf- verur, verða liver á sínum tíma að þola ellina. Hvers vegna nýtur maí- flugan ástarinnar i aðeins tvær klukkustundir, þar sem skjaldbök- ur og páfagaukar geta orðið 200 ára gömul? Hvers vegna geta geddur og karfar orðið 300 ára, en þeir Byron og Mozart fengu ekki að lifa nema í 30 ár? Fyrir einni öld var meðal mannsævi um það hil 40 ár. 1 dag er hún nærri þvi 60 ár hjá flestum hámenningarþjóðum. Slíkt er hrað- fara breyting, sem leyfir oss að spá því, að svo framarlega sem styrj- aldir og byltingar tefja ekki fyrir framförunum á sviði heilbrigðis- málanna, verði meðal mannsævi orðin 100 ár á næstu öld. En slíkt mun þó samt sem áður alls engin áhrif liafa á ellina. Því frumstæðari sem þjóð er, þeim mun verr fer hún með gamall fólk. Maður, sem var á ferð í Afr- iku, skrifar um hræddan, gamlan höfðingja, sem sárhændi hann með þessum orðum: „Gefðu mér lit í hárið. Ef þeir sjá, að það er farið að grána, drepa þeir mig.“ Sumir íhúar Suðurhafseyja neyddu gamla menn til þess að klifra upp í kókós- hnetutré, og því næst hristu þeir trén. Ef gömlu mennirnir gátu hald- ið sér það fast, að þeir féllu ekki til jarðar, höfðu þeir öðlazt réttinn til að lifa. En ef þeir féllu ofan úr trjánum, voru þeir dregnir fvrir dómara og dæmdir til lífláts. Þetta virðist liarkaleg meðferð, en vér liöfum líka vor kókóshnetutré. Þeg- ar opinberir starfsmenn verða að láta af störfum fvrir aldurs sakir, táknar slíkt oft og einatt dauðadóm, annað hvort vegna þess, að af því leiðir fátæktarbasl eða veikindi, sem er orsök örvinglunar........... Auðug þjóðfélög með ríkjandi liá- menningu komast oft og einatl und- ir stjórn gamalla manna. Þar eru gamlir menn valdir til forustu, vegna þess að í heimi, þar sem engar breytingar hafa átt sér stað um langt skeið, verður reynslan dýrmætt lmoss. 1 Englandi, þar sem haldið er fast við það fyrirkomu- lag', sem ríkt hefur áður fyrr og gamlar venjur ráða, er ellin höfð í miklum metum. I Kína voru gaml- ir menn fyrrum metnir geysimikils. Kínverjar sögðu: „Enginn gráhærð- ur maður má sjást með byrði á göt- um úti.“ En nú á dögum er viðhorf- ið til gamla fólksins orðið breytt i Kína. Framh. Bezta heimspelti, sem til er, er sú, að ásælast ekki það, sem þér er um megn að eignast. Sijórnmálamaður, sem hefur komizt upp í efstu tröppu metorða- stigans, hefur áreiðanlega haft vit á að láta einhverja stgðja stigann vel og vandlega. Thorvaldsensbazarinn Austurstræti 4. Reykjavík. Tekur til sölu vel unna íslenzka muni. Sendið honum m. a. alls konar prjónles og band.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.