Samtíðin - 01.05.1944, Blaðsíða 13

Samtíðin - 01.05.1944, Blaðsíða 13
SAMTIÐIN 9 ANDRÉ MAUROIS: Listin að verða gamall Framh. AÐ ER undarlegt, að vér skul- um verða gömul, svo kynlegt, að vér furðum oss oft á því, að slíkt slculi henda oss eins og annað fólk. Proust lýsti því meistaralega í Le Temps Retrouvé, live forviða menn verða, er þeir hitta eftir þrjátíu eða fjörutíu ár karla og konur, sem voru á aldur við þá, er þeir voru börn. „í fyrstu,“ segir liann, „skildi ég ekki, hvers vegna ég var svo seinn að kannast við húsbóndann og gesti hans og livers vegna þeir virtust all- ir vera dulbúnir.“ (Það voru elli- mörkin, sem siðan er lýst. Þýð.). Hvenær hefst ellin? Lengi höfum vér haldið, að vér gætum foi'ðazt hana. Vér erum ung í anda, og kraft- ar vorir virðast óskertir. Vér höf- um sannpi-ófað þetta á ýmsa lund. „Skjddi ég' geta gengið upp eftir þessari hæð, eins og þegar ég var ungur? Já! Ég er dálitið móður, þeg- ar ég er kominn alla leið upp, en ég hef verið jafnfljótur og áður, og ætli ég hafi ekki alltaf verið dálítið móður, þegar upp var komið. Breytingin frá æsku til elli er svo hægfara, að sá, sem fyrir henni verð- ur, veitir henni naumast nokkra at- hygli. Þegar haustið kemur, eftir að suiuarið er liðið, og veturinn á eftir haustinu, eru breytingarnar svo hægfara, að vér tökum ekki eft- ir þeim frá degi til dags. En samt kemur haustið stundum með svip- uðum hætti og herinn, sem gerði að- súg að Macbeth, falið bak við sölix- að laufið frá sumrinu. Svo er það einn nóvenxhermorgun, að livass stornxur feykir burt hinni gullnu grímu, og eftirverður kræklóttbeina- grind vetrarixxs. Laufin, sem vér héldum, að væru lifandi enn, voru sölnuð; þau liengu við greinarnar á fáeinum veikum trefjum. Stoi'ixx- urinn liefur leitt þessa lirörnun i ljós, en ekki orsakað liana. Veikindi eru sá stoi’mur, sem geis- ar unx skóg mannkynsins. Karl eða kona kunna að vii’ðast uixg, þrátt fyrir aldurinn. „Hún er alveg fram- úrskarandi ern,“ segjum vér, eða „hann er alveg eins og unglamb“. Vér dáuxxist að atorku þeirra, live þau eru ung i anda og létt í máli. En einn góðan veðurdag fi’éttuixx vér, að stormurinn liafi feykt þeiixi burt — þau hafa dáið úr lijartaslagi eða lungnabólgu, vegna óvarkáx’ni, seixi ekki mundi liafa haft verra en höfuðverk eða kvef í för með sér, ef ungt fólk lxefði átt lilut að máli. Á fáunx dögum getur andlit fölnað, bak bognað og ljós augnanna dapr- azt. Eitt andartak getur bi-eytt oss í gamalmenni, en slíkt táknar, að langt sé, síðan vér tókum að eldast. Hvenær eru þessi haustjafndægri í lífi voru? Conrad segir, að þegar maðurinn verði fertugur, sjái liann fyrir framan sig skuggarák, fari yf- ir liana með hryllingi og haldi, uð

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.