Samtíðin - 01.05.1944, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.05.1944, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 Eftir að búið var að tengja þessar einkunnir við vöxtinn, hefur dóm- urinn ekki þótt vafasamur. Hann birtist í hinu kunna orðtaki: „Betri er stuttur stinnur en langur linur, sem líka á stundum er orðað þannig: „Betra er að vera stuttur og stinnur en langur og linur.“ Ég tilgreini nú eitt dæmi úr „líf- inu“ um það, hvernig menn hafa leikið sér með þetta ágreiningsefni um hæðarvöxtinn í gamni og al- vöru, en þó græskulaust: Tveir menn voru á gangi saman, annar lágvaxinn, en beinvaxinn og stæltur i líkamstilburðum, liinn fremur hár og grannur með „linan“ vöxt, og hætti þá til að hera sig ekki vel, og svo mun þá liafa verið í þetta sinn. „Stutti“ maðurinn hóf máls og segir: „Álútur stendur, álútur gengur,“ „Langi“ maðurinn skilur strax skensið eða áhendinguna, réttir úr sér og svarar um hæl: „uppréttur getur verið samt. En til er einn stuttur, teinréttur drengur, sem tejrgir úr sér, en — nær þó pkammt.“ (Mennirnir voru Guðjón Jónsson snikk- ari á Reyðarfirði (,,stutti“) og Ólafur Jónsson framkvæmdarstj. Ræktunarfé- lags Norðurlands á Akureyri (,,langi“). Þeir eru náfrændur og vinir með frænd- semi, hagmæltir vel og má kalla afreks- menn, hvorn á sinu starfssviði). Þeir, sem nota „iM,'lo" sá.puna einu sinni, nota hana aftur. YMSIR UPPLESARAR vilja láta liafa það mikið við sig, að leik- ið sé á liljóðfæri undir upplestur þeirra. Um þetta fyrirbrigði farast W. E. Williams þannig orð i hinu heimskunna, enska útvarpstímariti „The Listener“: „Sú brella sumra útvarpslesara, að láta spila undir lestur sinn, fer mjög í taugarnar á mér. Ef það, sem þeir flytja, er éinhvers virði, vil ég ekld láta spilla þvi með flautu- eða fiðlu- leik „hak við“ hið talaða orð. Látum það vera, þó að spilað sé eitthvað á undan og eftir upplestrum þessara manna eða jafnvel þótt þeir hafi millispil milli kvæðanna, sem þeir flvtja! En hljóðfærin verða fyrir hvern mun að þagna, meðan á flutn- ingi orðsins listar stendur.“ — Þann- ig fórust þessum manni orð. Frúin: — Hér er nokkuð sniðugt auglýst, tölulaus nærföt. Maður hennar: — Ekki hef ég nú kynnzt öðruvisi nærfötum sið- ustu árin. Tilvonandi brúðgumi: — Hve mikið kostar leyfisbréf? FuIItrúinn: — 33 krónur. Tilvonandi brúðgumi: — Anzans vandræði, ég hef ekki nema 25 krón- ur á mér. Fulltrúinn: — Þér eruð áreiðan- lega gæfumaður. Góðir skór þurfa gott viðhald. — Landsins beztu skóviðgerðir hjá okk- ur. — S æ k j u m. S e n d u m. SIGMAR&SVERRIR Grundarstíg 5. — Sími 5458.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.