Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 4
4 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
EÞÍÓPÍA, AP Á árlegum leiðtoga-
fundi Afríkubandalagsins var
Bingu wa Mutharika, forseti Mal-
aví, kosinn leið-
togi bandalags-
ins.
Moammar
Gaddafí, hinn
skrautlegi leið-
togi Líbíu, er
því ekki lengur
leiðtogi Afríku-
bandalagsins,
en undanfarið
ár hefur hann
farið með það
embætti við mismikla hrifningu
Afríkubúa jafnt sem annarra.
Embættið skiptist á milli leið-
toga aðildarríkja Afríkubanda-
lagsins og er árlega kosið í emb-
ættið.
Kosning Gaddafís í embættið
fyrir ári sætti harðri gagnrýni.
- gb
Afríkusambandið:
Gaddafí ekki
lengur í forsvari
MOAMMAR
GADDAFÍ
JAPAN, AP Kínverjinn Feng
Zhengzhu, sem hefur barist ötul-
lega fyrir mannréttindum í Kína,
yfirgaf alþjóðaflugvöllinn í Tókíó
í gær eftir að hafa hafst þar við í
nærri þrjá mánuði.
Síðan snemma í nóvember
hafði hann neitað að yfirgefa
flugvöllinn eftir að kínversk
stjórnvöld höfðu neitað honum
um að snúa aftur heim frá Japan.
Feng skipti um skoðun eftir að
hafa rætt við fulltrúa kínverskra
stjórnvalda, sem hittu hann á
flugvellinum í síðustu viku. Hann
ætlar að snúa til Kína um miðjan
febrúar og segist sannfærður um
að fá leyfi til þess þá. - gb
Kínverji í Japan:
Hírðist í níutíu
daga á flugvelli
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
5°
0°
-1°
5°
0°
-4°
0°
0°
22°
5°
11°
5°
21°
-13°
5°
14°
-1°
Á MORGUN
Strekkingur með S-
strönd annars hægari.
6
2
MIÐVIKUDAGUR
Strekkingur með S-
strönd annars hægari.
-3
-41
-4-2
-3
-2
-3-2
0
2
1
1
0
-0
-1
-1
-3
-0
-2
-4
4
6
6
3 3
4
7
2
2
ÚRKOMULÍTIÐ
Þótt það falli
lítils háttar él sums
staðar á landinu
næstu daga er ekki
hægt að segja ann-
að en að á heildina
litið verði úrkomu-
lítið og jafnvel
nokkuð bjart. Það
bætir í vind með
suðurströndinni á
morgun en annars
verður fremur
hægur vindur víða
næstu daga.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
TÓNLIST Blúsfélag Reykjavíkur
stendur fyrir blúskvöldi í kvöld á
tónleikastaðnum Rosenberg. Er
hugmynd tónleikahaldara að safna
peningum fyrir Haítí og íslenskar
björgunarsveitir. Sigurgeiri Guð-
mundssyni, formanni Slysavarna-
félagsins Landsbjargar og Blús-
þrjóti, verða afhentir peningarnir
sem safnast og verður hann lát-
inn um að koma þeim þangað sem
mest er þörf.
Meðal þeirra sem koma fram
eru Ragnheiður Gröndal og Guð-
mundur Pétursson, Blúsþrjótar,
Strákarnir hans Sævars, Sólveig
Þórðardóttir, einnig þekkt sem
Solla soulfoul, og fleiri tónlistar-
menn. - hhs
Styrktartónleikar á Rosenberg:
Blús fyrir Haítí
HAÍTÍ Yfirvöld á Haítí óskuðu á
laugardag eftir aðstoð SOS-barna-
þorpanna við að tryggja öryggi
34 barna sem reynt hafði verið að
smygla úr landi. Þetta kemur fram
á heimasíðu SOS-barnaþorpanna.
Um tíu Bandaríkjamenn voru
stöðvaðir með börnin, sem voru á
aldrinum þriggja mánaða til tólf
ára, þegar þeir reyndu að koma
þeim yfir til Dóminíska lýðveldis-
ins án tilskilinna leyfa.
Bandaríkjamennirnir tengjast
samtökunum New Life – Children
Refuge. Þeir halda því fram að
ætlun þeirra hafi verið að flytja
börnin á munaðarleysingjahæli í
Dóminíska lýðveldinu. - kg
Yfirvöld á Haítí:
SOS-barnaþorp
hýsi börnin
Mótmæli brotin á bak aftur
Lögreglan í Rússlandi braut í gær á
bak aftur mótmælafundi í Moskvu
og Pétursborg. Tugir mótmælenda
voru handteknir, þar á meðal þekktir
stjórnarandstæðingar á borð við Boris
Nemtsov, Eduard Limonov og Oleg
Orlov.
RÚSSLAND
SVISS Dominique Strauss-Kahn,
framkvæmdastjóri Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, skýrði frá því að
sjóðurinn ætli að leggja 100 millj-
ónir dala í sérstakan sjóð, sem
notaður verður til þess að aðstoða
fátæk ríki við að takast á við
afleiðingar hlýnunar jarðar.
Á loftslagsráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Kaupmannahöfn
í desember gagnrýndu fátæku
ríkin þau ríku fyrir að veita þeim
ekki næga fjárhagsaðstoð til
þess að takast á við hlýnunina og
afleiðingar hennar. - gb
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Leggur fé í sjóð
til loftslagsmála
VENESÚELA, AP Hugo Chavez, for-
seti Venesúela, hefur átt í vaxandi
vandræðum undanfarið. Mótmæl-
um hvers konar hefur fjölgað gegn
þessum harða vinstrimanni sem
lengst af ellefu ára valdatíð sinni
átti miklum vinsældum að fagna
meðal landsmanna.
Óánægjuefnin eru mörg: mesta
verðbólgan í Suður-Ameríku, æ
tíðari rafmagnsleysistímabil, vax-
andi ofbeldi í glæpaheiminum og
bankahneyksli sem tengist æðstu
stjórn landsins.
Í síðustu viku streymdu dag
eftir dag þúsundir manna út á
götur í borgum landsins til að mót-
mæla lokun sjónvarpsstöðvarinn-
ar RCTV, sem hafði ekki farið dult
með andstöðu sína við forsetann.
Þá sagði Ramon Carrizalez,
aðstoðarforseti og varnarmála-
ráðherra landsins, af sér í vikunni,
en sagði ástæður afsagnarinnar
reyndar vera persónulegar.
Verðbólgan í landinu er komin
upp í 25 prósent þrátt fyrir ströng
efnahagshöft og bitnar það illa á
almenningi. Gengisfelling í jan-
úar, sem ætlað var að auðvelda
ríkinu að standa straum af nýjum
útgjöldum, verður líklega til þess
að hækka verðlagið enn frekar.
Ofan á allt saman hefur fram-
leiðsla olíuiðnaðarins, sem er und-
irstaða ríkisútgjaldastefnu forset-
ans, dregist saman, að hluta til
vegna þess að skort hefur á nýjar
fjárfestingar í greininni. - gb
Ólga meðal almennings í Venesúela eftir ellefu ára valdatíð vinstristjórnar:
Vaxandi andstaða við Chavez
BÚSÁHALDABYLTING AÐ HEFJAST?
Kona ber á pott í fararbroddi mótmæla
í Caracas. Líklega þarf ekki að velkjast í
vafa um hvaðan fyrirmyndin að þessu
formi mótmæla er fengin. FRÉTTABLAÐIÐ/AÆ
LÖGREGLUMÁL Starfsmenn Straums
buðu íslenskum útflutningsfyrir-
tækjum upp á gjaldeyrisviðskipti á
aflandsmörkuðum eftir að Alþingi
samþykkti gjaldeyrishöft Seðla-
bankans í nóvember 2008 og þar til
skömmu áður en hann fór í þrot í
mars í fyrra. Tilboð bankans hljóð-
aði upp á tíu prósenta hærra gengi
en skráð var hjá Seðlabankanum,
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins.
Þráfaldur orðrómur var um ólög-
mæt gjaldeyrisviðskipti Straums
í gegnum útibú hans erlendis eftir
að gjaldeyrishöftin voru sett. For-
svarsmenn bankans vísuðu honum
á bug og fór William Fall, þá for-
stjóri bankans, þess á leit við Seðla-
bankann og Fjármálaeftirlitið að
þau tækju gjaldeyrisviðskiptin til
sérstakrar skoðunar fyrir ári.
Líkt og fram hefur komið eru
fjórmenningarnir, sem grunað-
ir eru um ólögmæt gjaldeyrisvið-
skipti fyrir um níutíu fyrirtæki og
einstaklinga, fyrrum starfsmenn
Straums. Efnahagsbrotadeild Rík-
islögreglustjóra gerði húsleit á fjór-
um heimilum og einni starfsstöð í
tengslum við málið á föstudag og
yfirheyrði fjórmenningana fram
yfir miðnætti sama dag.
Mennirnir eru allir búsettir í
Bretlandi en störfuðu hjá miðl-
unarfyrirtækinu Aserta AB, sem
skráð er í Svíþjóð. Grunur leikur
á að þeir hafi tekið við erlendum
tekjum íslenskra fyrirtækja þar og
keypt fyrir hann krónur í staðinn.
Gengi krónunnar var allt að fjöru-
tíu prósentum lægra þar en hjá
Seðlabankanum á þeim tíma sem
grunur leikur á að gjaldeyrisvið-
skiptin hafi átt sér stað.
Gjaldeyrisviðskiptin fóru meðal
annars fram í gegnum Bretland,
Kanada og Lúxemborg en krón-
urnar komu inn í landið í gegn-
um reikning hjá Arion banka. Upp
komst um málið eftir að Seðla-
bankinn setti regluvörð í bankann
í nóvember í fyrra til að fylgjast
með innflæði á krónum af erlend-
um reikningum. Seðlabankinn
sendi málið til Fjármálaeftirlitsins
(FME), sem kærði málið til ríkis-
lögreglustjóra.
Veltan á reikningum Aserta nam
48 milljörðum króna á tímabilinu
sem er til rannsóknar. Þar af komu
þrettán milljarðar inn í landið.
„Við vitum ekki hversu margir
milljarðar eru enn erlendis,“ segir
Gunnar Andersen, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins. Hann bendir á að
búið sé að kyrrsetja tvö hundruð
milljónir króna af áætluðum hagn-
aði viðskiptanna. Ekki sé útilokað
að upphæðin hækki enda áætlaður
hagnaður allt frá einum til fimm
milljarða króna, að sögn Gunnars.
Enn eigi eftir að ræða við við-
skiptavini Aserta, að sögn Gunn-
ars. jonab@frettabladid.is
Buðu aflandsvið-
skipti fram að þroti
Straumur stundaði gjaldeyrisviðskipti með krónur á aflandsmarkaði eftir að höft
voru sett hér fyrir rúmu ári. Áætlaður hagnaður fyrrum starfsmanna bankans
hleypur á milljörðum. Enn á eftir að ræða við fyrirtækin, segir forstjóri FME.
RANNSÓKNIN KYNNT Á FÖSTUDAG Ingibjörg Guðbjartsdóttir frá Seðlabankanum,
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, og Gunnar Andersen, forstjóri
FME, fræddu blaðamenn um Aserta-málið fyrir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GENGIÐ 29.01.2010
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,2631
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,37 127,97
205,49 206,49
177,74 178,74
23,873 24,013
21,602 21,73
17,340 17,442
1,4110 1,4192
197,81 198,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
VERÐ
KR.
9.900
VERÐ
KR.
13.900 Handklæða-ofnar
Hitastýrð sturtusett
með öllu