Fréttablaðið - 01.02.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 01.02.2010, Blaðsíða 21
FASTEIGNIR.IS 1. FEBRÚAR 20105. TBL. Valhöll fasteignasala hefur til sölu fallegt og virðulegt ein- býlishús á einstökum stað við Fischersund 3 í Grjótaþorpinu. Húsið í Fischersundi 3 í Grjóta- þorpinu á horninu á Fischer- sundi og Mjóstræti var byggt árið 1874 og stækkað 1875. Húsið er nokkurs konar einingahús á steyptum og hlöðnum grunni og var flutt inn frá Noregi. Þaðan kemur nafn hússins, Norska bak- aríið, enda þótt Frederiksen bak- ari sem byggði húsið hafi verið danskur. Upphaflega var bakarí í kjallara hússins og brauðsalan á fyrstu hæð en bakarinn og fjöl- skylda hans og þjónustulið bjuggu á fyrstu hæð og í risinu. Um 1995 keyptu hjónin Sólveig Eggertsdóttir og Þráinn Bert- elsson húsið sem var þá í mikilli niðurníðslu, einkum innanhúss. Burðarviðir hússins reyndust í mjög góðu ástandi enda var vel til þeirra vandað í upphafi. Húsið var síðan endurnýjað í hólf og gólf. Magnús Skúlason arkitekt, fyrr- um formaður húsafriðunarnefnd- ar, hafði yfirumsjón með endur- gerð hússins sem tókst svo vel að Reykjavíkurborg veitti Fischer- sundi 3 viðurkenningu fyrir vel- heppnaða endurbyggingu á gömlu húsi. Húsinu er skipt í tvær íbúðir. Í kjallara er lítil ca 50 fm íbúð sem er stofa með eldhúskrók og sérsmíðaðri innréttingu, baðher- bergi með innbyggðri þvottavél og sturtu og tvö svefnherbergi. Stærri íbúðin er á efri hæðunum tveimur og auk þess er herbergi og stór geymsla í kjallara. Á fystu hæð er aðalinngangur og forstofa, bókaherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús, búr/þvottahús og gestasnyrting og auk þess bak- dyrainngangur um verönd sunnan megin við húsið. Í risinu er hjóna- herbergi og tvö svefnherbergi og baðherbergi og alrými fyrir sjón- varp. Sögufrægt hús í Grjótaþorpi Fischersund 3 var byggt árið 1874, en var mikið endurnýjað upp úr 1995. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.