Fréttablaðið - 01.02.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 01.02.2010, Blaðsíða 20
 1. FEBRÚAR 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald Norskur drekastíll og dyraum- búnaður að hætti Lúðvíks 16, ásamt íslenskri gullhönnun á húsgögnum er meðal þess sem prýðir móttökuhús borg- arinnar, Höfða, sem nýbúið er að taka í gegn eftir bruna. Höfði hefur sett svip á Reykja- vík í hundrað ár. Það var einmitt rétt eftir aldarafmælisveisluna 25. september síðastliðinn sem eldur varð laus uppi í rjáfri í norðvest- urhorninu og olli miklum skemmd- um. Þremur mánuðum síðar var þó viðgerðum lokið og Höfði orðinn glæsilegri en nokkru sinni fyrr, nýmálaður að innan og með pússuð parketgólf. Vilhjálmur Vilhjálms- son, forseti borgarstjórnar, er afar ánægður með endurbæturnar. „Þetta eru völundar,“ segir hann um iðnaðarmennina sem að þeim unnu. Að hans sögn var samband haft við fyrirtækið sem hannaði húsið í upphafi, Strömmens Træv- are fabrik í Noregi, og fengnar þaðan náttúrulegar steinskífur á hluta þaksins, af sama tagi og þær sem fyrir voru. Nú eru þrjár kyn- slóðir slíkra hellna á þakinu. Þær elstu frá 1909, aðrar frá 1967 og svo þessar nýju. Höfði á merka sögu. Frakk- ar byggðu húsið fyrir ræðismann sinn, Brillouin, sem stundum var kallaður Brellujón. Þá gekk það undir nafninu Konsúlshúsið á Fé- lagstúni. Einar Benediktsson gaf því nafnið Héðinshöfði er hann bjó þar um nokkurra ára skeið. Páll Einarsson, fyrsti borgar- stjóri Reykjavíkur, er á íbúaskrá hússins og einnig Matthías Einars- son, læknir á franska spítalanum og Landakotsspítala. Kannski hafa listamannsdraumar Louisu dótt- ur hans vaknað er hún horfði út yfir sundin og til fjallanna hand- an þeirra. Mörgum tignum gestum hefur verið fagnað í Höfða. Má þar nefna Winston Churchill, forsætisráð- herra Bretlands, Marlene Dietr- ich, söng- og leikkonu, og þjóðhöfð- ingjana Margréti Danadrottningu, Ólaf Noregskonung og Elísabetu Englandsdrottningu. Ekkert hefur þó komið Höfða eins rækilega á kortið og leiðtogafundur Ronalds Reagan og Mikhails Gorbatsjov í október 1986, enda er herberginu sem þeir sátu í haldið í nákvæm- lega sömu skorðum. Þar njóta gull- verðlaunastólarnir, Höfðingjarn- ir eftir Gunnar Guðmundsson hús- gagnaarkitekt, sín vel og þeir hafa borið nafn með rentu. - gun Hið höfðinglega hús Hér sátu leiðtogar stórveldanna í íslenskum stólum og sömdu um að bæta samskiptin. Útskornar víkingasúlur prýða anddyrið. Í kjallaranum. Þar sátu rússnesku blaðamennirnir meðan á leiðtogafundinum stóð og horfðu hugfangnir á Tomma og Jenna. Höfði er hundrað ára gamalt hús og hefur aldrei verið fallegri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nýju steinskífurnar frá Noregi. Milli franskra glugga, undir voldugum loftbitum, eru myndir af frægum gestum. Gunnar Guðmundsson sérsmíðaði hús- gögn fyrir Höfða 1967. Listasafn Reykjavíkur hefur lánað mál- verk á veggina. Í stofunni sem leiðtogafundur- inn var haldinn í er allt sem áður. Málverkið er eftir Louisu Matthí- asdóttur, fyrrum íbúa hússins. Móttökusalur borgarinnar er búinn húsgögnum eftir Þór- dísi Zoëga. Gólfin eru eins og ný þrátt fyrir vatnsaga sem á þeim var eftir brunann. Háglanslakk var þeim til varnar og því dugði að pússa þau og lakka aftur með hálfmöttu lakki.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.