Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 13
MÁNUDAGUR 1. febrúar 2010 13
Með líf- og sjúkdómatryggingu hjá Lífís býrðu þér og þínum nánustu öruggari og áhyggjulausari
framtíð. Mikilvægt er að upphæð tryggingarinnar endurspegli ólíkar þarfir þínar á hverjum tíma
hvað varðar fjölskyldustærð og fjárhagslegar skuldbindingar.
Kíktu á lifis.is eða hafðu samband í síma 560 5000 og kláraðu málið núna.
*Samkvæmt verðskrá Lífís miðað við tvítuga reyklausa konu og að vátryggingarfjárhæðin sé 2 milljónir kr. fyrir líftryggingu og 2 milljónir kr. fyrir sjúkdómatryggingu.
Það borgar sig að byrja ungur
og hraustur.
Það kostar ekki nema 479 krónur á mánuði
að líf- og sjúkdómatryggja sig hjá Lífís.*
Það er einfalt að líf- og sjúkdómatryggja
sig hjá Lífís. Þú klárar málið á lifis.is.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
DÓMSMÁL Ríflega tvítugur maður
hefur verið ákærður fyrir rán, fjöl-
mörg innbrot, þjófnaði og fleiri
brot.
Ríkissaksóknari ákærir manninn
meðal annars fyrir tvö rán. Í sept-
ember síðastliðnum öskraði hann á
starfsmann verslunar á Laugavegi
og neyddi hann til að opna peninga-
kassa. Þar stal maðurinn rúmum
109 þúsund krónum. Síðara ránið
framdi hann í verslun í Engihjalla.
Þar ógnaði hann starfsmanni með
hnífi og stal 56 þúsundum úr pen-
ingakassanum.
Lögreglustjórinn á höfuðborg-
arsvæðinu ákærir manninn fyrir
fimmtán brot. Hann reif seðlaskipti-
kassa af vegg Landspítalans í Foss-
vogi og henti honum út um glugga.
Þrisvar braust hann inn í Gamla
bókasafnið, forvarnar- og fræðslu-
setur Hafnarfjarðar og stal þar
meðal annars tölvum og flatskjá. Í
afgreiðslu Hótels Hafnarfjarðar lét
hann greipar sópa og stal fartölvu
og farsíma, ásamt fleiru. Þá er mað-
urinn ákærður fyrir tvö innbrot, í
íbúð og bílskúr þar sem hann stal
rándýrum tölvu- og tækjabúnaði.
Að auki stal hann fjórum bílum
og er jafnframt ákærður fyrir fíkni-
efnaakstur og fleiri brot.
Loks stal hann áttatíu sígarettu-
pökkum úr afgreiðslu bensínstöðv-
ar. - jss
Rúmlega tvítugur maður ákærður fyrir rán, fjölmörg innbrot og þjófnaði:
Stórþjófur rændi verslanir
GAMLA BÓKASAFNIÐ Maðurinn braust
meðal annars í þrígang inn í Gamla
bókasafnið.
ÁLFTANES Tillögur Eftirlitsnefnd-
ar með fjármálum sveitarfélaga
(EFS) um úrbætur í málefnum
Álftaness liggja ekki fyrir.
Sveitarfélagið á í miklum fjár-
hagsvanda og skilaði á mið-
vikudag skýrslu til EFS. Nefnd-
in fundaði á fimmtudag en mun
fjalla á ný um málefni Álftaness í
dag eða á morgun.
EFS mun síðan gera tillögur til
Kristjáns L. Möller sveitarstjórn-
arráðherra um aðgerðir vegna
vanda Álftnesinga. Kristján
hefur að auki kallað eftir úttekt
Ríkisendurskoðunar á stjórn-
sýslu og rekstri Álftaness undan-
farin ár. - pg
Eftirlitsnefnd sveitarfélaganna:
Fundar áfram
um Álftanes
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært rúmlega þrítugan karlmann
fyrir brot gegn valdstjórninni og
vopnalagabrot.
Manninum er gefið að sök að
hafa í byrjun síðasta árs haft í
eigu sinni táragasbrúsa og haft
í vörslum sínum veiðihníf með
löngu blaði. Í lögreglubifreið á leið
frá Nönnugötu að lögreglustöð-
inni við Hverfisgötu hótaði hann
lögreglumanni ofbeldi með því að
segja að hann ætlaði að láta bróð-
ur sinn vita af lögreglumannin-
um og það myndi kvarnast upp úr
tönn á honum auk þess sem hann
myndi hljóta ýmsa aðra áverka,
skrámur og marbletti. - jss
Rúmlega þrítugur maður:
Hótaði lög-
reglumanni
ÞÓRÐUR SVERRISSON Forstjóri Nýherja
segir endurreisn fyrirtækja sem bank-
arnir hafi tekið yfir skekkja samkeppnis-
aðstæður. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
VIÐSKIPTI Nýherji tapaði 686 millj-
ónum króna á síðasta ári sam-
anborið við 771,5 milljóna tap í
hittifyrra. Tapið féll að mestu til
á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Það
nam 506 milljónum króna á fjórð-
ungnum, sem var tæplega tvöfalt
meira en árið á undan.
Haft er eftir Þórði Sverrissyni,
forstjóra Nýherja, að árið hafi
verið fyrirtækinu afar erfitt og
skrifist það á mikinn samdrátt í
eftirspurn á tæknibúnaði og upp-
setningu á hugbúnaði. Hann segir
endurreisn bankanna á fyrirtækj-
um sem þeir hafi tekið yfir óeðli-
lega og raskað samkeppnisað-
stæðum. - jab
Dregur út tapi Nýherja:
Segir bankana
skekkja stöðuna
ALÞINGI Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, varaformaður þingflokks
Samfylkingarinnar, og Ögmund-
ur Jónasson, þingmaður VG og
fyrrverandi ráðherra, vilja að
rannsóknarnefnd verði skipuð
um aðdraganda þess að Ísland
lýsti yfir stuðningi við innrásina
í Írak árið 2003. Munu þau leggja
fram þingsályktunartillögu þess
efnis á Alþingi í vikunni.
Ákvörðun þáverandi ríkis-
stjórnar Íslands Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokks um stuðn-
ing við stríðið hefur verið mjög
umdeild síðan hún var tekin.
Skoðanakannanir á sínum tíma
sýndu mikla andstöðu við ákvörð-
unina. Þingmenn VG og Sam-
fylkingar gagnrýndu harðlega
stuðning Íslands við aðgerðir
Bandaríkjanna og bandaþjóða.
Tveir stjórnarþingmenn:
Vilja rannsókn
á stuðningi við
innrásina í Írak
Hvarf úr eftirlitskerfi
Tólf tonna línubátur, sem hvarf úr
fjareftirlitskerfi Landhelgisgæslunnar,
fannst rétt eftir hádegi í gær. Ekkert
amaði að skipverjum. Rafmagnsbilun
olli því að sendingar hættu að berast
Landhelgisgæslunni. Báturinn var þá
staddur um átján sjómílur norðvestan
af Garðskaga.
LANDHELGISGÆSLAN