Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 15

Fréttablaðið - 01.02.2010, Page 15
MÁNUDAGUR 1. febrúar 2010 15 UMRÆÐAN Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir skrifar um efnahagsmál Er ekki eitthvað athugavert við kennsluefnið ef duglegu nem- endurnir fá lélegu einkunnirnar en lélegu nemendurnir fá góðu einkunnirnar? Skoðum dæmi um tvö lönd, land A og land B. Land A er aðili að Alþjóðavið- skiptastofnuninni. Það innleiddi fullt viðskiptafrelsi árin 1994- 1995 með lækkun tolla og afnámi innflutningshafta og fór þar í öllu eftir bókinni frá Alþjóðabankan- um í Washington. Það innleiddi víðtækar breytingar á hagkerfinu í átt til frjálsræðis, þ.m.t. einka- væðingu, heimilaði erlent eign- arhald á innlendum fyrirtækj- um, heimilaði flutning á hagnaði úr landi og þar fram eftir götun- um. Það lagði sig fram um að vera fyrirmyndarnemandi Washing- ton-samkomulagsins (the Wash- ington Consensus) og er staðsett aðeins nokkur hundruð mílur frá stærstu mörkuðum heims. Land B er ekki aðili að Alþjóða- viðskiptastofnuninni og það hefur viðhaldið innflutningshömlum og tollum allt að 30-50%. Við- skipti eru að mestu í hönd- um ríkisfyrir- tækja. Það tak- markar erlent eignarhald á innlendum fyr- irtækjum, og er staðsett um 4000 mílur frá stærstu mörk- uðum heims. Kenning- ar frjálshyggjunnar myndu spá landi A mjög góðum árangri. Staðreyndin er hins vegar sú að land A er Haítí, eitt fátækasta land vesturheims með dapurlega frammistöðu í efnahagslegu til- liti svo ekki sé meira sagt. Land B er Víetnam með um 8% hagvöxt á ári síðan um miðjan níunda ára- tuginn: Þar hefur stórlega dregið úr fátækt og Víetnam hefur, þrátt fyrir viðskiptahindranir og bann við erlendu eignarhaldi á innlend- um fyrirtækjum, samlagast hratt hinu alþjóðlega hagkerfi. Þessi samanburður er tekinn úr bók eftir tyrkneska hagfræð- inginn Dani Rodrik, „One Econ- omics, Many Recipes“ (2007), og kom upp í huga minn þegar ég las grein Þorvaldar Gylfasonar í Fréttablaðinu hinn 28. janúar sl. undir yfirskriftinni, „Að keyra land í kaf“. Þar lýsir Þorvaldur því hvernig nýlenduherraþjóðin Frakkland keyrði fyrrum nýlendu sína, Haítí, á kaf í skuldaklafa vegna skaðabóta sem þeir kröfð- ust af Haítíbúum fyrir að hafa rekið frönsku þrælahaldarana af höndum sér og stofnað sjálfstætt ríki árið 1804. Í upphafi spurði ég hvort ekki kynni að vera eitthvað athuga- vert við kennsluefnið ef dug- legu nemendurnir fengju lélegu einkunnirnar en lélegu nemend- urnir fengju góðu einkunnirnar. Kennslufræðingar myndu ef til vill spyrja hér að hve miklu leyti kennsluefnið hefði verið lagað að þörfum og getu nemendanna og þar með tekið tillit til aðstæðna í hverju tilviki. Þeir vita vel að „One size does NOT fit all“. Aftur á móti er nokkuð til í því að með kenningum sem eiga meira skylt við trúarkenningar en fræðikenningar byggðar á viður- kenndum rannsóknum má fífla heila þjóð. Við Íslendingar ættum nú að vita að það þarf ekki allt- af nýlenduherra til þess að keyra land í kaf. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Eyþór Harðarson skrifar um fyrningarleiðina Um það leyti sem kvótakerfinu var komið á var sjávarútvegur á Íslandi í sjálfheldu. Flotinn var allt of stór fyrir þær veiðiheim- ildir sem voru í boði og rekstur flestra fyrirtækja í atvinnugrein- inni var á brauðfótum. Margir leit- uðu eftir því að selja fyrirtækin eða hætta rekstri en fundu enga útgönguleið. Áhugi á að kaupa sjáv- arútvegsfyrirtæki var í lágmarki. Slíkt var ástandið að ríkissjóður þurfti ítrekað að grípa til viðeig- andi björgunaraðgerða. Straumhvörf urðu hins vegar í sjávarútvegi þegar opnað var fyrir framsal aflaheimilda um 1990. Þar skapaðist loksins hvati til hag- ræðingar með arðsemi í rekstri að leiðarljósi. Hagræðingin hefur hins vegar ekki verið án fórna og hún hefur kostað sitt. Árangurinn er aftur á móti sá að á 20 árum hafa yfir 90% aflaheimilda skipt um hendur. Sjávarútvegsfyrir- tækjum hefur fækkað en rekstr- argrundvöllur þeirra styrkst um leið. Atvinnuöryggi hefur aukist og afkoma starfsfólks batnað. Þrátt fyrir skuldsetningu samfara hag- ræðingunni er arðsemi í sjávarút- vegi líkast til hvergi meiri en ein- mitt á Íslandi og leitun er að betri kjörum sjómanna. Það mikilvægasta er að sjávar- útvegsfyrirtækin eru í dag grunn- stoðir í atvinnulífi landsmanna sem skila miklum tekjum í þjóðar- búið. Því er ekkert annað en stór- undarlegt að standa frammi fyrir þeim áformum stjórnvalda að hefja innköllun aflaheimilda í haust. Eftir allt sem á undan er gengið síðustu 25 árin á nú samkvæmt tillögum stjórnvalda að taka 5% aflaheimildanna af handhöfum þeirra á hverju fiskveiðiári og bjóða upp. Margt hefur áunnist í sjáv- a r ú t v e g i á undanförnum árum. Sú stað- reynd stendur eftir sem áður óhögguð að fisk- urinn í sjónum er takmörkuð auð- lind. Þetta vill gleymast í umræð- unni um sjávarútveg, sem oftar en ekki er á villigötum. Aflamarks- kerfið er ekki gallalaust fremur en önnur mannanna verk og við getum örugglega verið sammála um að mörg víxlspor hafa verið stigin á vegferð kerfisins. Fyrn- ing aflaheimilda er ekki leiðin til að lagfæra það sem aflaga hefur farið. Síðustu misserin hefur keyrt um þverbak í umræðunni, þar sem markvisst hefur verið haldið á lofti innantómum staðhæfingum og rangfærslum. Erfitt er að sjá hvað því fólki gengur til sem heldur því blygðunarlaust fram að byggðir landsins líði fyrir fiskveiðistjórn- unina. Varla er það af sannsleiks- ást. Staðreyndin er sú að í mörg- um þeirra byggðarlaga, sem hefur hvað best tekist að mæta því efna- hagsástandi sem nú ríkir, standa sjávarútvegsfyrirtæki traustum fótum. Enn er hægt að afstýra því stór- slysi sem fyrningarhugmyndir stjórnvalda hefðu í för með sér fyrir sjávarútveginn og efnahag þjóðarinnar. Vilji til að kynna sér raunverulegar afleiðingar þessara hugmynda og horfast í augu við staðreyndir er allt sem þarf. Höfundur er útgerðarstjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja hf. Ávísun á stórslys Að fífla heila þjóð EYÞÓR HARÐARSON SIGURBJÖRG SIG- URGEIRSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.