Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 16

Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 16
16 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR UMRÆÐAN Jónína Bjartmarz skrifar um hlut kvenna í stjórnum hluta- félaga Með breytingu á lögum um hlutafélög vorið 2006 sam- þykkti Alþingi nokkur sérákvæði u m opi nber hlutafélög, ohf., sem ætlað var að skapa aukið ga g ns æi og aðhald um rekst- ur og starfsemi þeirra (lög nr. 90/2006). Meðal annars var lög- leidd skilgrein- ing á opinberum hlutafélögum, þ e. til hverra hlutafélaga sérregl- urnar tækju, settar voru sérregl- ur um upplýsingagjöf stjórnar- manna og framkvæmdastjóra um eign í félögum, ákvæði um vissa upplýsingaskyldu þessarar tegund- ar hlutafélaga, sem eru undanþeg- in bæði ákvæðum stjórnsýslu- og upplýsingalaga, um rétt kjörinna fulltrúa, alþingismanna eða sveit- arstjórnarmanna eftir atvikum, til setu á aðalfundum og rétt sömu til að bera fram fyrirspurnir og um aðgang fjölmiðla og skyldu til að boða þá á aðalfundi. Þegar frumvarpið að lögunum var lagt fram var sérstakt ákvæði um kyn stjórnarmanna sem hljóðaði svo: „Við kjör í stjórn opinbers hluta- félags skal gæta sérstaklega að lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.” „Einungis að teknu tilliti til odda- tölu stjórnarmanna“ Í meðförum þingsins kom í ljós allvíðtækur vilji til að kveða sterk- ar að orði um jafnan hlut kynj- anna í stjórnum þessarar tegund- ar hlutafélaga og var meðal annars vísað til þess að ríkinu bæri að skapa fyrirtækjum í einkaeigu fordæmi að þessu leyti auk þess að vera sjálfu sér samkvæmt og þeim stefnumiðum sem Alþingi hafði ítrekað sett með jafnréttislögum. Við lokaatkvæðagreiðslu reynd- ist meirihlutavilji á Alþingi fyrir þeirri breytingatillögu af tveimur sem lengra gekk og kvað á um að við kjör í stjórn opinbers hlutafé- lags skuli tryggt „að í stjórninni sitji sem næst jafnmargar konur og karlar“. Í þessu felst að hlut- ur kynjanna skal vera eins jafn og oddatala stjórnarmanna leyfir, þ.e. að stjórnir ohf. skuli skipa sem næst jafnmargar konur og karlar einungis að teknu tilliti til odda- tölu stjórnarmanna, eins og skýrt kom fram í umræðum á Alþingi og í atkvæðaskýringu undirritaðrar, flutningsmanns breytingartillög- unnar. Hvaða hlutafélög eru opinber? Á þessum tíma, rétt fyrir þing- frestun vorið 2006, reyndist undir meðferð málsins ekki hægt að fá upplýsingar um hvaða hlutafélög væru opinber skv. þeirri skilgrein- ingu sem Alþingi lögleiddi og enn þann dag í dag er margt á huldu í því efni, a.m.k. er hvergi að finna yfirlit eða tæmandi talningu á ohf. Þannig eru skv. nefndará- liti 1. minnihluta viðskiptanefnd- ar Alþingis, dags. 12. des. 2009, (Þskj. 426-71. mál) - um frumvarp til laga um breytingu á hlutafé- lagalögum - opinber hlutafélög 5 talsins, en skv. upplýsingum sem ég hef aflað og finnast m.a. í rík- isreikningi eru þau 9 eftirgreind; Flugstoðir ohf., Keflavíkurflug- völlur ohf., Matís ohf., Neyðarlínan ohf., Orkubú Vestfjarða ohf., Rarik ohf., Lánasjóður sveitarfélaga ohf., Suðurlindir ohf. og Ríkisútvarp- ið ohf. Samsetning stjórna þess- ara félaga sýnir að vel hefur tek- ist til að framfylgja ákvæðunum um jafnan hlut kynjanna, ef frá er talið Suðurlindir ohf. með aðeins eina konu í 5 manna stjórn. Skv. 2. málsgrein 1. gr. laga um hlutafélög merkir opinbert hluta- félag „ … félag sem hið opinbera, einn eða fleiri hluthafar, á að öllu leyti, beint eða óbeint. Slíkum félögum einum er rétt og skylt að hafa orðin opinbert hlutafélag í heiti sínu eða skammstöfunina ohf. og má tengja orðin eða skammstöf- unina heiti eða skammstöfun á hlutafélagi.“ Af þessari skilgrein- ingu er ljóst að hvorki ríki né sveit- arfélög eiga val um hvort félög í þeirra eigu beri ohf. í nafni sínu, svo framarlega sem eignarhald þeirra er eins og ákvæðið lýsir. Hvað með öll hin félögin í „opin- berri eigu“? Hvað með önnur félög, sem líka er að finna í ríkisreikningi og hvað með öll nýju félögin sem hið opinbera, ríki og/eða sveitar- félög, eiga að öllu leyti, beint eða óbeint? Hvað t.d. með nýju bank- ana og dótturfélög þeirra á meðan íslenska ríkið var eini hluthafinn? Nú á þetta kannski aðeins við um nýja Landsbankann, sem heitir að ég held NBI hf. Er það með vilja eða fyrir vankunnáttu og hyskni að skyldubundna ákvæðinu skv. skilgreiningunni í hlutafélagalög- unum er ekki fylgt um þau félög. – Eins og ég gat um í upphafi þá ná sérákvæði laganna til annars og fleira en kynjahlutfalls í stjórn- um og því tel ég það forgangsmál á þessum síðustu og verstu tímum fyrir ríkisstjórn sem kvaðst vilja kenna sig við gagnsæa stjórnar- hætti og opna og lýðræðislega stjórnsýslu að tryggja að þessum lögum sé fylgt. Sá réttur sem lögin veita kjörn- um fulltrúum felur jafnframt í sér a.m.k. siðferðilega skyldu til eft- irlits og aðhalds með opinberum hlutafélögum. Því er það eðlileg og sjálfsögð krafa til alþingismanna og sveitarstjórnarmanna, þeir gangi á eftir réttri framkvæmd laganna og byrji á því að tryggja að öll félög sem skilgreining þeirra tekur til beri ohf. í heiti sínu. Hver ber ábyrgðina á framkvæmd- inni? Engan veginn liggur í augum uppi hvar ábyrgðin á þessari lagafram- kvæmd liggur. Er framkvæmdin alfarið á ábyrgð viðskiptaráðherra eða fjármálaráðherra, sem að því ég best veit fer með hlutabréf rík- isins í þeim félögum sem ríkið á, eða jafnvel félagsmálaráðherra, a.m.k. hvað varðar ákvæðið sem lýtur að jöfnum hlut kynjanna? Ber sá síðastnefndi, sem ráð- herra sveitarstjórnamála ábyrgð á lagaframkvæmd sveitarfélaga að þessu leyti, hvað varðar hlutafélög í þeirra eigu? Það voru upp til hópa karlar sem komu okkur á þann efnahagslega kalda klaka sem þjóðin nú finn- ur sig á. Sú staðreynd ein og sér, að viðbættum ýmsum rannsókn- um, sem meðal annars sýna meiri arðsemi fyrirtækja með stjórnum skipuðum jafnt konum og körlum, ætti að duga stjórnvöldum til að grípa í taumana, jafnvel þó laga- skyldan um jafnan hlut kynjanna væri ekki fyrir hendi. Ímynd Íslands Ástæða þess að ég fór að skoða þessi mál, eftir nokkurt hlé, var fyrirspurn sem mér var send, af alþjóðlegum samtökum fyrir aukn- um efnahagslegum áhrifum og völdum kvenna, um hlut kvenna í stjórnum íslenskra fyrirtækja, með sérstaka áherslu á opinberu hlutafélögin og reynsluna af sérá- kvæði þeirra, sem ekki hafði tek- ist að afla trúverðugra upplýs- inga um úr stjórnsýslunni. Þar til fyrir liggur hver þau eru í raun, opinberu hlutafélögin skv. skil- geiningu hlutafélagalaga, er engu hægt að svara sannleikanum sam- kvæmt um hlut kvenna í stjórnum íslenskra ohf. – sem auk annars er afleitt fyrir ímynd Íslands á marg- víslegum vettvangi erlendis. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Opinber hlutafélög og hlutur kvenna í stjórnum JÓNÍNA BJARTMARZ UMRÆÐAN Gísli Hjálmtýsson skrifar um orkumál Mikið er rætt um nauðsyn þess að fara í stóriðjuframkvæmdir sem undir- stöðu til endurreisnar íslensks efnahags- lífs. Þrýst er á að hnekkja lýðræðislegri ákvörðun Hafnfirðinga um að hefta frekari útbreiðslu álversins í Straumsvík. Á sama tíma er talað um að fjárfesta stórfé í Helgu- vík, virkjunum, háspennulínum og öðrum nauðsynjum fyrir orkufrekan iðnað. Erfitt er að sjá hvernig á að fjármagna allar þess- ar framkvæmdir. Með skuldabréf ríkisins metin sem rusl verður nær ógerlegt fyrir sveitarfélög og fyrirtæki – og þar með talin orkufyrirtækin – að fjármagna sig á erlendum mörkuðum á viðskipta- forsendum. Eftir að hafa pissað yfir helstu vina- þjóðir okkar verður fjármögnun á pólitískum for- sendum torsótt. Jafnvel ef lánsfé væri að fá, er staða þjóðarbús- ins þannig að mjög vafasamt er að stofna til nýrra stórskulda. Hugmyndir þess efnis benda til að for- ystumenn þjóðarinnar átti sig ekki á þeim skulda- vanda (eða endurfjármögnunarvanda) sem er fram undan og einkennist umræðan af sama óraunsæi og einkenndi orðafar og athafnir útrásarvíkinga jafnt sem stjórnmálamanna síðustu ár. En hvað annað kemur til greina? Virkjanir fyrir álver í Helguvík kosta í kringum 300 milljarða króna. Þetta fjármagn yrði að taka að láni erlendis með ábyrgð þjóðarinnar. Allt umstang- ið veldur þensluáhrifum á framkvæmdatímanum, þ.e. í 3-5 ár, þar með talið verða til allmörg ný störf á framkvæmdatímanum og síðan um 400 störf til framtíðar. Vaxtakostnaður af þessum framkvæmd- um er varlega áætlaður um 16,5 milljarðar á ári í 25-40 ár. Í stað þess að reisa nýtt álver ættum við að loka álverinu í Straumsvík og breyta því í miðstöð nýsköpunar fyrir orkutengda starfsemi. Til að nýta hafnaraðstöðuna mætti nýta einn kerskálann fyrir sérhæfðan þunga- eða efnaiðnað. Í annan kerskál- ann mætti setja netþjónabú. Hvort tveggja er starf- semi sem getur greitt 6-7 sent á kwh í stað þeirra tveggja senta sem Alcan greiðir. Í þriðja skálann mætti síðan setja upp nýsköpunarmiðstöð fyrir grænan orkutengdan iðnað. Sérhæfður þunga- eða efnaiðnaður sem myndi nýta um 120 MW og greiða 6-7 sent á kwh myndi tryggja óbreyttar tekjur af orkusölu miðað við tekj- urnar af núverandi starfsemi. Höfnin, ferskvatn og stoðmannvirki myndu nýtast án mikils kostn- aðar. Verkefnistengdur kostnaður yrði greiddur og fjármagnaður af erlendum eigendum verkefnisins. Gámavætt netþjónabú þarf stöðugar undirstöður, kælivatn og spennistöð fyrir lágspennu. Allt þetta er til staðar í Straumsvík. Umbreyting eins kerskál- ans fyrir slíkt netþjónabú krefst umtals- verðrar vinnu iðnaðarmanna sem myndi að mestu vera fjármögnuð af leigjendum, sem jafnframt ættu og fjármögnuðu gámana og tækjabúnað þeirra. Slíkt netþjónabú gæti keypt allt að 120 MW á verði sem gæti verið stighækkandi t.d. frá fjórum sentum í sjö sent á þremur árum. Nýsköpunarmiðstöð fyrir grænan orkutengdan iðnað er löngu tímabær á Íslandi, og jákvæð endurnýting á aðstöðunni í Straumsvík. Gera má ráð fyrir að hin nýja Straumsvík myndi ráða sem flesta núverandi starfsmanna til hinnar nýju starfsemi. Jafnvel þótt ríkið ábyrgðist óbreytt laun fyrir alla þá sem misstu vinnuna væri sá kostnaður væntanlega vel innan við tveir millj- arðar á ári. Önnur störf og afleidd störf yrðu fleiri en vegna álversins. Kostir þessa umfram nýtt álver í Helguvík með öllu tilheyrandi eru umtalsverðir og jákvæð áhrif á hagvöxt veruleg og varanlegri. Svæðið er tilbúið og því engin þörf fyrir skuldsetningu landsins vegna stoðvirkja; engin fjárfesting í virkjun, engin fjár- festing í háspennulínum, engin fjárfesting í höfn eða öðrum stoðvirkjum. Fjármögnun umbreytingar svæðisins kæmi frá erlendum leigjendum/eigend- um tveggja verkefnanna og myndi fela í sér umtals- verðar framkvæmdir og vinnu, sem að langmestum hluta yrði unnin af Íslendingum. Breytingu þriðja kerskálans í nýsköpunarmiðstöð fyrir grænan orku- tengdan iðnað mætti auðveldlega fjármagna með innlendu fjármagni. Orkusölutekjur af hinni nýju Straumsvík yrðu tvöfalt meiri heldur en af núverandi starfsemi. Tekjuaukningin kæmi án viðbótarskuldsetningar þjóðarinnar og vaxtagreiðslna. Ofan á það bættist svo ávinningur af Nýsköpunarmiðstöð fyrir græn- an orkutengdan iðnað. Að auki yrði nýja starfsemin umtalsvert umhverfisvænni en starfsemi álversins. Ef gert er ráð fyrir tveimur milljörðum ár ári sem framlagi til reksturs nýsköpunarmiðstöðvarinnar, yrði heildarkostnaður þjóðarinnar vegna sólarlags álversins og reksturs nýsköpunarmiðstöðvarinnar innan við fjórðungur vaxtakostnaður virkjana fyrir álver í Helguvík. Við Íslendingar erum yfirskuldsett þjóð og horf- um fram á gríðarlegan fjármögnunarvanda næstu árin. Við megum ekki skuldsetja okkur enn frekar. Ég skora á Hafnfirðinga, stjórnvöld og nýjan for- stjóra Landsvirkjunar að hafna frekari virkjunum í bráð, hafna frekari lántökum þjóðarinnar í þágu stóriðju og hafna stækkun álversins í Straumsvík. Þess í stað skora ég á hlutaðeigandi að loka álver- inu í Straumsvík, og endurnýta svæðið fyrir orku- tengda nýsköpun, og selja orkuna á þreföldu því verði sem nú er gert. Höfundur er stjórnarformaður Thule Investments. Virkjum ódýrt – lokum Straumsvík GÍSLI HJÁLMTÝSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.