Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þótt sumum finnist það kannski
hálfgerður barbarismi þá drekk
ég mikið Neskaffi þegar ég sit við
skriftir,“ byrjar Kristján Þórður
á að játa og sýnir bolla sem hefur
visst tilfinningagildi fyrir hann.
Sá er með mynd eftir Picasso
af Don Kíkóta og Sansjó Pansa,
þessum tveimur aðalpersónum úr
hinni frægu skáldsögu Cervantes.
Kristján kveðst hafa keypt hann á
Spáni þegar hann var þar á ferð
2003. „Þetta er eini kaffibollinn
minn sem hefur bókmenntalega
skírskotun,“ segir hann brosandi.
„Allir aðrir eru mjög venjulegir.“
Þegar Kristján vann að nýj-
asta leikritinu sínu, Fyrir fram-
an annað fólk, sem var á fjölum
Hafnarfjarðarleikhússins í haust
og verður tekið upp í Iðnó um aðra
helgi, segir hann bollann hafa
haft sérstakt gildi fyrir sig með
tvennum hætti. „Myndin varð mér
ákveðinn innblástur,“ segir hann.
„Ég sé samsvörun með Don Kíkóta
sem er lokaður inni í eigin hugar-
heimi og hefur fjarlægst veruleik-
ann og Höskuldi, aðalpersónu leik-
ritsins, sem er á sinn hátt lokaður
inni í eigin baráttu við undarlegt
vandamál í sálarlífi sínu. Hlut-
skipti beggja er tragískt og kóm-
ískt í senn.“ Fyrir utan að súpa
Neskaffi úr bollanum þótti Kristj-
áni svo líka þægilegt að handleika
hann þegar hann gekk um gólf og
braut heilann um leikritið. „Það er
svo gott að halda á einhverju efnis-
legu og traustu eins og gerðarleg-
um kaffibolla þegar maður er að
vinna með eitthvað jafn óefnislegt
og hugmyndir.“
Nú þegar Kristján Þórður er
búinn að skrifa leikritið hefur
hann gefið þessum bolla frí. „En,“
segir hann íbygginn. „Ég er búinn
að ákveða að þegar verkið fer aftur
á svið í Iðnó, 5. febrúar, ætla ég að
drekka morgunkaffið mitt úr þess-
um bolla.“ gun@frettabladid.is
Efnislegur og traustur
Þegar Kristján Þórður Hrafnsson rithöfundur sat við að skrifa leikritið Fyrir framan annað fólk, sem fer á
svið í Iðnó bráðlega, komst hann í ákveðið samband við mjög svo bókmenntalegan kaffibolla.
DANIEL HESS frá West Union, Iowa fann upp
fyrstu ryksuguna árið 1860. Hann kallaði tækið
reyndar teppasóp. Fyrstu handstýrðu vélina fann Ives
W. McGaffey árið 1868 sem kallaðist „Whirlwind“.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
„Myndin varð mér
ákveðinn innblástur,“
segir Kristján Þórður um
teikningu Picasso af Don
Kíkóta og Sansjó Pansa.“
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Fyrst og fremst í heilsudýnum
3 mán.
vaxtalausar greiðslur Opið virkadaga frá 10.00-18.00 lau 12.00-16.00
10.000 kr. vöruúttekt
fylgir hverju heilsurúmi
Allt að70%afslátturaf völdum vörumÚTSALA
SÍÐUSTU DAGAR – ENN MEIRI AFSLÁTTUR
TÍU
ÞÚSUND
KRÓNUR
PENINGABANKI
ÍSLANDS
SAMKVÆMT SVE
FN & HEILSU
JANÚAR 2005
E20052006
E20052006
Matthías Ásgeirsso
n
TTT Gaflar og náttborð
Skipti dýnur
Gólfmottur
Útlitsgallaðar dýnur
Lampar og loftljós
og margt fleira
Tölvunámskeið
Fingrasetning
Tölvugrunnur
Netið og samskipti
Heimasíðugerð
Matreiðslunámskeið
Gómsætir bauna – pasta –
og grænmetisréttir
Gómsætir hollir suðrænir réttir
frá Miðjarðarhafslöndunum
Hráfæði
Ítölsk matargerð
Matarmiklar súpur
og heimabakað brauð
Matargerð fyrir karlmenn
Hekl
Grunnnámskeið í að hekla
Garðyrkjunámskeið
Garðurinn allt árið
Trjáklippingar
Trjárækt í sumarbústaðalandinu
Förðunarnámskeið
Förðunarnámskeið
Að farða sig og aðra
Prjónanámskeið
Grunnnámskeið í að prjóna
Peysuprjón
Kökur og konfekt
Kransakaka - bökuð
Konfektgerð
Kökuskreytingar
Spennandi námskeið
Innritun og upplýsingar:
http://kvoldskoli.kopavogur.is
eða á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla við
Furugrund í síma 564 1507
Auk fjölda annarra námskeiða í boði
EKKI SPILLIR VERÐIÐ
20% TÍMABUNDINN AFSLÁTTUR
NÝJA LÍNAN frá
Hvítur 119.900 Stál 159.900
Skápur sem margir hafa beðið eftir, stór
233 ltr. kælir að ofan og góður 54 ltr. frystir.