Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 38
22 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
EM Í AUSTURRÍKI
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Linz
eirikur@frettabladid.is
HANDBOLTI Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari var
afar stoltur af árangri landsliðs-
ins í handbolta sem í gær vann til
bronsverðlauna á Evrópumeist-
aramótinu í handbolta sem lauk í
Austurríki í gær.
Ísland vann sigur á Póllandi, 29-
26, í leik um bronsverðlaunin eftir
stórbrotna frammistöðu í fyrri
hálfleik.
Guðmundur hafði mörgum að
þakka eftir leik og sagði stuðning
íslensku þjóðarinnar hafa verið
liðinu ómetanlegur.
„Við erum búnir að finna fyrir
stuðningi íslensku þjóðarinnar sem
er stórkostlegur. Það hefur verið
einstakt að finna fyrir því og hvet-
ur okkur áfram til að hjálpa þjóð-
inni á erfiðum tímum. Það dreif
okkur áfram því við vildum gera
allt sem við gátum til að koma með
eitthvað jákvætt í lífið á Íslandi,“
sagði Guðmundur við Fréttablað-
ið eftir leik.
„Svo vil ég taka það sérstak-
lega vel fram að þessi hópur sem
hefur starfað í kringum liðið og á
bak við tjöldin er einstakur hópur
manna sem á ríkan þátt í þessum
árangri,“ sagði hann. „Þau hafa
unnið dag og nótt og það hefur
verið einstök reynsla að vinna með
þessu góða fólki.“
Einn úr þjálfarahópnum, Gunn-
ar Magnússon, þurfti að fara aftur
til Íslands á miðju móti vegna svip-
legs fráfalls nákomins ættingja.
„Við ákváðum að tileinka Gunn-
ari og hans fjölskyldu þennan
árangur. Eitt af hans hlutverk-
um var að útbúa sérstök hvatn-
ingarmyndbönd fyrir liðið og
hefur hann haldið áfram að gera
það þrátt fyrir áfallið. Þetta hefur
hann sent okkur með hjálp nets-
ins og það sýnir hversu stórkost-
legan mann hann hefur að geyma
að hann skuli hafa hjálpað okkur á
þennan hátt,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði liðið hafa sett sér tvö
markmið fyrir mótið. „Annað var
að endurskrifa íslenska handbolta-
sögu og ná góðum árangri annað
stórmótið í röð. Það tókst og erum
við afskaplega stolt af því.“
En stefndi liðið jafnvel enn
hærra en í þriðja sætið?
„Já, jafnvel. Við stefndum mjög
hátt. Það verður ekki meira sagt,“
sagði hann og brosti.
Hann játar því að þó svo að liðið
hafi staðið sig vel á mótinu sé allt-
af hægt að bæta sig.
„Ég vona það að minnsta kosti,“
sagði hann. „Ég vona líka að þessir
leikmenn muni áfram gefa kost á
sér í landsliðið því þeir hafa stað-
ist þessa miklu þrekraun gríðar-
lega vel. Það er erfiðara að spila á
þessu móti en á Ólympíuleikum og
þar að auki voru gæði handboltans
hér í Austurríki mjög mikil. Hand-
boltinn hér hefur verið stórkostleg-
ur,“ sagði Guðmundur. „Við megum
því vera mjög stolt af þessum
árangri. Ég er sjálfur mjög stoltur
og hrærður enda get ég ekki verið
annað. Það hafa verið forréttindi
að fá að vinna með þessum leik-
mönnum.“
Guðmundur er samningsbund-
inn HSÍ til ársins 2012 og heldur
því áfram að þjálfa landsliðið. „Ég
á ekki von á því að hætta enda með
samning.“
Stórkostlegt að finna stuðninginn
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var stoltur og hrærður eftir að íslenska landsliðið vann til
bronsverðlauna á Evrópumeistaramótinu í handbolta. „Við megum vera mjög stolt.“
BIKAR FYRIR ÞRIÐJA SÆTIÐ Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari með Ingimundi Ingimundarsyni og Sturlu Ásgeirssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
> Róbert bætti markamet Geirs
Róbert Gunnarsson bætti fimmtán ára markamet Geirs
Sveinssonar þegar hann skoraði 6 mörk úr 6 skotum á
móti Póllandi í leiknum um þriðja sætið á Evrópumót-
inu í Austurríki. Róbert skoraði þar
með 33 mörk í 8 leikjum á mótinu og
varð fyrsti íslenski línumaðurinn sem
hefur skorað meira en fjögur mörk að
meðaltali í leik á stórmóti. Róbert bætti
með því met Geirs Sveinssonar frá HM á
Íslandi 1995 en Geir komst þá í úrvalslið
mótsins eftir að hann skoraði 28 mörk í 7
leikjum, eða 4 mörk að meðaltali í leik.
Ólafur Stefánsson sagði það æðislega tilfinningu að hafa unnið til
bronsverðlauna á Evrópumeistaramótinu í handbolta. Hann, eins og
allir aðrir leikmenn íslenska landsliðsins, tileinkaði Gunnari Magn-
ússyni og hans fjölskyldu þennan árangur. „Það er sérstakt að helga
þessu einum manni og fjölskyldu hans. Það gefur þessu enn meiri
dýpt að hafa unnið þetta. Ég vona að hann sé glaður
með það og geti notað þessa minningu til að halda
áfram,“ sagði Ólafur. „En það er auðvitað skrýtið að
enda mótið svona glaður með bronsið. Við erum
í það minnsta ánægðari í dag en þegar við
unnum silfrið í Peking þó svo að silfur sé alltaf
betra til lengri tíma litið. En það er gaman
að enda vel.“ Hann sagði frammistöðu
íslenska landsliðsins í fyrri hálfleik hafa
verið sögulega. „Ég held að þetta sé besti
varnarleikur sem við höfum sýnt. Sóknar-
leikurinn var líka mjög góður.“
Ólafur átti í vandræðum með Slawomir
Szmal, markvörð Póllands, allan leikinn.
„Hann varði nánast allt sem er gott hjá honum. Við vorum ekki lélegri
fyrir vikið en það sýndi bara hvað við áttum inni. Hefði allt dottið inn
í dag hefðum við líklega unnið með tólf til fjórtán mörkum.“ Hann
hrósaði líka Hreiðari Guðmundssyni markverði fyrir að koma inn á í
lokin og verja nokkur afar mikilvæg skot. „Það verður að hrósa honum
fyrir að hafa setið á bekknum og komið svo inn og staðið sig svona
vel. Það sýnir hvað breiddin í hópnum er góð og hún hefur verið
okkar styrkur. Það voru allir að taka þátt.“ Ólafur var valinn í lið móts-
ins og var eini leikmaður Íslands í því liði. „Ég hef oft verið betri þegar
á heildina er litið. Ég átti sex góða leiki en það voru þó tveir leikir þar
sem var lítið um skotfæri og ég átti ekki að
fá að skjóta. En ég er óánægður með þessa
síðustu tvo leiki þar sem ég hef nú oftast
haldið mér góðum út svona mót. En þeir
sem velja í þetta lið hafa sínar ástæður og
í raun ekkert að segja við því.“ Ólafur ætlar
að halda áfram að spila með landsliðinu.
„Á meðan ég er í atvinnumennsku og get
hjálpað til þá verð ég áfram.“
ÓLAFUR STEFÁNSSON: VALINN Í LIÐ MÓTSINS OG ÆTLAR AÐ HALDA ÁFRAM MEÐ LANDSLIÐINU
Örugglega besti varnarleikur sem við höfum sýnt
HANDBOLTI Róbert Gunnarsson
átti frábæran leik með Íslandi
gegn Póllandi í gær og skoraði
sex mörk úr sex skotum auk þess
sem hann fiskaði eitt víti.
„Við náðum bronsi og náðum
að vinna þennan leik. Það skiptir
engu hvort það var með einu eða
tíu mörkum,“ sagði hann skæl-
brosandi eftir leikinn.
„Við vorum auðvitað hundfúlir
eftir að hafa tapað fyrir Frökk-
um. Ég var mjög lélegur og það
voru fleiri sem voru ekki að spila
vel. Ég vildi ekki enda mótið
þannig.“ Hann sagði að menn
hefðu fengið að blása aðeins eftir
leikinn á laugardaginn en svo var
hafist handa.
„Það var tekinn mjög ítarlegur
myndbandsfundur enda sýndum
við það í leiknum að við vorum
með þá. Við vildum líka sanna
bæði fyrir sjálfum okkur og
öðrum að við getum fylgt á eftir
góðu móti. Við náðum ekki gull-
inu en þó verðlaunapening sem er
stórkostlegur árangur.“ - esá
Róbert Gunnarsson:
Vildi ekki enda
mótið illa
Í LEIKSLOK Róbert Gunnarsson faðmar
Alexander Petersson. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
HANDBOLTI Það var þreyttur en
afar ánægður Guðjón Valur Sig-
urðsson sem kom í viðtal til
blaðamanns Fréttablaðsins eftir
leikinn gegn Póllandi í gær.
„Það var ekki auðvelt að rífa
sig upp fyrir leikinn í dag, hvorki
andlega né líkamlega. Ég var
algerlega búinn á því í síðari
hálfleik og gat varla skotið leng-
ur,“ sagði hann.
„En ég er glaður og ánægður
með að vera hluti af þessu liði.
Það er synd að þurfa að skilja við
strákana. Ég væri til í að vera í
þessu liði allt árið. Þetta er ein-
stakur hópur og það er gaman að
tilheyra honum.“ - esá
Guðjón Valur Sigurðsson:
Er algerlega
búinn á því
BRONS Í HÖFN Guðjón Valur fagnar á
móti Póllandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
HANDBOLTI Frakkland varð í gær
Evrópumeistari í handbolta eftir
sigur á Króatíu í úrslitaleik EM í
handbolta sem lauk í Austurríki
í gær. Þar með er liðið núverndi
heims-, Evrópu- og Ólympíumeist-
ari og því hefur engu liði tekist
áður í sögunni.
„Þessi þrenna verður skráð
á spjöld sögunnar,“ sagði hinn
magnaði markvörður Frakka, Thi-
erry Omeyer, sem varði alls tólf
skot í leiknum í gær. „Við erum
með alla þrjá titlana samtímis.
Það er ótrúlegt!“
Leikurinn var jafn í fyrri hálf-
leik en Króatar voru þó með und-
irtökin og komust í þriggja marka
forystu, 12-9.
Frakkar skoruðu hins vegar
þrjú síðustu mörkin í fyrri hálf-
leik og eftir að Domagoj Ducnjak
skoraði fyrsta mark síðari hálf-
leiks komu fimm frönsk mörk í
röð.
Króatar náðu að minnka mun-
inn aftur í eitt mark eftir þetta en
Frakkar náðu aftur að sigla fram
úr og tryggja sér sigurinn.
„Ég er mjög ánægður með
árangur liðsins,“ sagði Claude
Onesta, landsliðsþjálfari Frakka.
„Þetta hefur verið mjög erfitt mót
og gríðarlega sterkt.“
Frakkar byrjuðu illa á mót-
inu en náðu að toppa á réttum
tíma. „Sjálfstraustið hefur aukist
eftir því sem liðið hefur á keppn-
ina. Liðið hefur því spilað betur
og spilað mjög kröftugan hand-
bolta.“
Hann óskaði einnig Króötum
til hamingju með árangurinn.
„Króatar eru með ungt lið og leik-
ir okkar hafa verið mjög erfiðir.
Þannig verður það væntanlega
áfram.“
Frakkar unnu einnig Króata
í úrslitaleik HM á síðasta ári en
lögðu Íslendinga í úrslitaleik
Ólympíuleikanna í Peking.
Nikola Karabatic fór mikinn
í gær og skoraði sex mörk, þar
af nokkur afar mikilvæg bæði í
lok fyrri hálfleiks og þess síðari.
Vedran Zrnic skoraði sjö mörk
fyrir Króata. - esá
Frakkar unnu Króata 25-21 í úrslitaleik Evrópumótsins í Austurríki í Vín í gær og eru handhafar allra titla:
Söguleg þrenna Frakka í handboltanum
GULLÞRENNA Frakkar eru heims-
meistarar, Ólympíumeistarar og
Evrópumeistarar. MYND/DIENER