Fréttablaðið - 01.02.2010, Side 40
24 1. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
EM Í AUSTURRÍKI
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Linz
eirikur@frettabladid.is
Undanúrslit
Ísland-Frakkland 28-36 (14-16)
Mörk Íslands (skot): Aron Pálmarsson 6 (9),
Snorri Steinn Guðjónsson 5/2 (5/2), Guðjón
Valur Sigurðsson 5 (9), Arnór Atlason 5 (10),
Alexander Petersson 3 (5), Ólafur Stefánsson 2
(10), Róbert Gunnarsson 1 (1), Vignir Svavarsson
1 (2).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 16/1 (51/6,
31%), Hreiðar Guðmundsson 0 (1/1).
Hraðaupphlaup: 5 (Guðjón Valur 3, Snorri
Steinn 1, Alexander 1).
Fiskuð víti: 3 (Vignir 1, Arnór 1, Guðjón Valur 1).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Frakklands (skot): Nikola Karabatic 9 (9),
Guillaume Joli 6/6 (7/7), Michael Guigou 6 (10),
Guillaume Gille 4 (5), Cedric Sorhaindo 3 (3),
Luc Abalo 3 (5), Franck Junillon 2 (2), Daniel
Narcisse 2 (6), Jerome Fernandez 1 (2), Sebasti
en Bosquet (1).
Varin skot: Thierry Omeyer 16 (44/2, 36%).
Hraðaupphlaup: 12 (Guigou 5, Abalo 3, Gille 2,
Karabatic 2).
Fiskuð víti: 5 (Karabatic 3, Fernandez 1, Sor
haindo 1).
Utan vallar: 8 mínútur.
Króatía-Pólland 24-21
Leikir um sæti
LEIKUR UM 3. SÆTI
Ísland-Pólland 29-26 (18-10)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
8 (13), Róbert Gunnarsson 6 (6), Snorri Steinn
Guðjónsson 4/3 (6/3), Arnór Atlason 3 (8),
Ólafur Stefánsson 3 (13), Ingimundur Ingimund
arson 2 (2), Aron Pálmarsson 2 (5), Alexander
Petersson 1 (3).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 10 (27/1,
37%), Hreiðar Guðmundsson 7 (16, 44%).
Hraðaupphlaup: 9 (Guðjón Valur 5, Ingimundur
2, Arnór 1, Alexander 1).
Fiskuð víti: 3 (Guðjón Valur 1, Alexander 1,
Róbert 1).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Póllands(skot): Tomasz Tluczynski 4/1
(4/1), Bartosz Jurecki 4 (5), Michal Jurecki 4 (5),
Krzysztof Lijewski 3 (6), Mateusz Jachlewski 3
(6), Patryk Kuchczynski 2 (2), Tomasz Rosinski 2
(4), Bartlomiej Jaszka 2 (8), Mariusz Jurasik 1 (2),
Marcin Lijewski 1 (4), Karol Bielecki (1).
Varin skot: Slawomir Szmal 16 (39/3, 41%),
Piotr Wyszomirski 1 (7, 14%).
Hraðaupphlaup: 9 (Kuchczynski 2, Jachlewski 2,
K. Lijewski 1, Jurasik 1, M. Jurecki 1, Tluczynski 1,
Rosinski 1).
Fiskuð víti: 1 (B. Jurecki 1).
Utan vallar: 16 mínútur.
ÚRSLITALEIKUR
Frakkland-Króatía 25-21
EM Í HANDBOLTA
HANDBOLTI Ísland tapaði fyrir
Frakklandi í undanúrslitum Evr-
ópumeistaramótsins í handbolta
sem lauk í Austurríki í gær. Loka-
tölur leiksins voru 36-28.
Ísland spilaði ágætlega í fyrri
hálfleik en missti Frakkana fram
úr sér í upphafi þess síðari. Þeir
komust í átta marka forystu eftir
aðeins tíu mínútur og það bil
náði íslenska liðið aldrei að brúa
aftur.
„Þetta var svipað og í Peking,“
sagði Ólafur Stefánsson landsliðs-
fyrirliði og átti þá við úrslitaleik
Íslands og Frakklands á Ólympíu-
leikunum árið 2008.
„Við vorum óagaðir í upphafi
síðari hálfleiks. Þeir komust í
mörg hraðaupphlaup og duglegir
að nýta sér aðra og þriðju bylgj-
una til að skora létt mörk. Það
sem við þurftum að gera var að
standa vel í vörninni og keyra á
þá – en það öfuga gerðist,“ sagði
Ólafur.
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari tók í svipaðan
streng. „Ég held að það hafi verið
hlaupin okkar til baka [í vörnina]
sem drap okkur fyrst og fremst í
þessum leik. Við vorum að halda
ágætlega í þá í vörninni,“ sagði
Guðmundur.
„Við afhentum þeim líka bolt-
ann allt of mikið í sókninni og ég
er hvað svekktastur vegna þess.
Við vorum að reyna línusendingar
sem heppnuðust ekki og við gerð-
um of mikið af tæknilegum mis-
tökum. Það má einfaldlega ekki
gegn Frökkum. Við vorum að gera
þeim lífið mjög þægilegt.“
Aron Pálmarsson var frábær
í lok fyrri hálfleiks og skoraði
þá sex af síðustu átta mörkum
íslenska liðsins. Engu síður ákvað
Guðmundur Guðmundsson að
hvíla hann í upphafi þess síðari.
„Þetta er bara svona og það er
auðvelt að tala um þetta eftir á,“
sagði Guðmundur. „Um daginn
létum við hann byrja inn á í seinni
hálfleik og þá gekk það ekki. Við
erum alltaf að hugsa um að spara
krafta leikmanna og það veit auð-
vitað enginn hvað gerist fyrir-
fram. Ég treysti þeim leikmönn-
um sem eru inn á hverju sinni,“
bætti hann við. - esá
Guðmundur Guðmundsson og Ólafur Stefánsson um tapleikinn í undanúrslitunum gegn Frakklandi:
Of mörg mistök og of seinir til baka
SVEKKTUR Guðmundur Guðmundsson,
gat ekki leynt vonbrigðum sínum í
leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
HANDBOLTI Markverðirnir Björg-
vin Gústavsson og Hreiðar Guð-
mundsson hafa átt frábæra
keppni. Sá síðarnefndi kom inn á
undir lok leiksins gegn Póllandi í
gær og varði sjö gríðarlega mikil-
væg skot á síðustu fimmtán mín-
útum leiksins.
„Þetta er ótrúleg tilfinning,“
sagði hann sigurreifur eftir leik-
inn í gær. „Þetta var þó orðið
hrikalega hættulegt. En ég var
tilbúinn enda verður að grípa
hvert tækifæri sem gefst.“
Björgvin hrósaði Hreiðari eftir
leik. „Hann lenti í áfalli í byrj-
un móts og fékk þá gagnrýni á
sig út af einu skitnu marki sem
hann fékk á sig út af einfaldri
óheppni. Hann kom svo inn í dag,
sýndi mikinn karakter og nánast
tryggði okkur bronsið.“ - esá
Hreiðar Levý Guðmundsson:
Tilfinningin er
ótrúleg
FAGNAÐ Í LOKIN Hreiðar Guðmundsson
stóð sig vel í lokin. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
HANDBOLTI Þegar ein og hálf mínúta
var til leiksloka í bronsleik Íslands
og Póllands í gær komust Pólverjar
í hraðaupphlaup. Einn leikmaður
pólska liðsins var sloppinn í gegn
og var kominn í galopið færi. Hann
átti þarna möguleika á að minnka
forystu Íslands í eitt mark.
En þá skyndilega dýfði Alexand-
er Petersson sér fyrir hann og náði
að stela boltanum áður en hann
braut á manninum. Dómarar gátu
ekkert annað dæmt en aukakast
og tíminn vann áfram með Íslandi
sem vann að lokum þriggja marka
sigur. „Þessir varnartilburðir hjá
Alexander voru stórkostlegir og
fara í sögubækurnar. Ég hef aldrei
séð annað eins á mínum ferli,“
sagði Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari.
Sjálfur sagði Alexander að þetta
hafi verið vel ígrundað hjá sér.
„Ég hef verið að hugsa um þetta
í svona fimm ár,“ sagði hann við
Fréttablaðið eftir leik. „Hvern-
ig er hægt að stela boltanum í
svona stöðu? Maður kemur aftan
að honum og maðurinn verður
að drippla boltanum að minnsta
kosti einu sinni. Ég sá tækifær-
ið, tók áhættuna og hoppaði bara í
boltann. Það virkaði.“ Þetta hefur
hann þó aldrei prófað áður. „Nei,
aldrei. En þarna sá ég rétta augna-
blikið.“
Ólafur Stefánsson jós lofi á Alex-
ander eftir leikinn. „Þessu augna-
bliki má aldrei gleyma í íslenskri
íþróttasögu. Þetta var það flott-
asta sem ég hef séð á ævinni. Þetta
segir allt um hans atorku, snilld
og ákafa. Þetta hefði enginn getað
gert nema hann.“
Alexander er þekktur sem vél-
mennið í landsliðshópnum enda
gefst hann aldrei upp – er sívinn-
andi. Ólafur vill meina að hann sé
mikilvægasti leikmaður liðsins.
„Hann er okkar MVP á þessu móti
þó svo að fólk sjái það ekki. Hann
léttir mikið á mér með því að spila
í vörninni eins og hann gerir. Ég
tel að hann sé besti varnarmað-
urinn á mótinu – hann tekur allar
klippingar, kæfir hraða og flæði í
liði andstæðingsins. Svo er hann
stöðugt að í sókninni og þegar ég
er ekki upp á mitt besta kemur
hann og setur hann.“
Alexander gat ekki annað en
brosað þegar blaðamaður sagði
honum frá hrósi landsliðsfyrirlið-
ans.
„Nei, ég veit það nú ekki. Allir
strákarnir hafa verið mjög góðir
og breiddin í liðinu er frábær,“
sagði hann. En hann vildi þó frek-
ar kvitta upp á að vera besti varn-
armaður mótsins. „Já, ég væri
frekar til í að fá þann heiður,“
sagði hann og hló. - esá
Alexander Petersson sýndi ótrúlega varnartakta undir lok leiksins gegn Póllandi á EM í gær:
Búinn að hugsa um þetta í fimm ár
VÉLMENNIÐ Alexander Petersson var
frábær á EM í vörn og sókn.
FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
HANDBOLTI Gleðin skein úr hverju
einasta andliti þeirra meðlima
íslensku sveitarinnar sem gengu
inn á gólf í Stadthalle í Vínarborg
til að taka við bronsverðlaunum
Evrópumeistaramótsins í hand-
bolta. Fagnaðarlætin voru gríðar-
leg enda árangurinn stórbrotinn.
Ísland hafði tryggt sér þriðja sætið
á líklega sterkasta stórmóti í hand-
bolta frá upphafi.
Fyrir tæpu einu og hálfu ári var
brotið blað í íþróttasögunni þegar
handboltalandsliðið vann silfur-
verðlaun á Ólympíuleikunum í Pek-
ing. Nú hefur það verið staðfest að
sá árangur var engin tilviljun –
íslenska landsliðið er einfaldlega
í hópi allra bestu handboltaliða
heims í dag.
Þeir Björgvin Páll Gústavsson
og Logi Geirsson gáfu út hárgel
eftir keppnina sem nefnist Silver.
Það er til marks um gleðina sem
ríkti í hópnum í gær að þeir voru
allir með gelið í hárinu þegar þeir
tóku við verðlaununum í gær.
„Meira að segja Guðmund-
ur Þórður Guðmundsson [lands-
liðsþjálfari] „silfraði“ sig upp,“
sagði stoltur Aron Pálmarsson við
Fréttablaðið eftir afhendinguna.
„Menn hafa nú verið eitthvað að
tala um að gefa líka út bronsgel en
það kemur ekki til greina. Það er
bara Silver.“
Þátttöku Íslands á EM lauk í gær
með sigri á gríðarsterku liði Pól-
lands í leik um þriðja sæti mótsins.
Leikurinn sýndi allar bestu hliðar
íslenska liðsins en einnig hvað það
getur verið stutt í hinn endann.
Fyrri hálfleikurinn var einfald-
lega stórbrotinn. Pólverjar skoruðu
aðeins þrjú mörk á fyrsta stundar-
fjórðungnum og var Ísland komið
þá með 8-3 forystu þó svo að stað-
an hafi verið 1-0 fyrir Póllandi
eftir fimm mínútur.
Varnarleikur íslenska liðsins var
eins og ókleifur múr. Stórskyttum
Pólverja var haldið undir 50 pró-
sent skotnýtingu og þeirra beitt-
asta vopn, Karol Bielecki, tók eitt
skot í öllum hálfleiknum. Það geig-
aði.
En svo kom hræðilegur kafli
í upphafi síðari hálfleiks. Besti
markvörður mótsins, Slawomir
Szmal, fór á kostum og varði sjö
af fyrstu níu skotum Íslands í hálf-
leiknum. Á þessum tíma var skotn-
ýting Íslands komin niður í rúm
fimmtán prósent – hún var 80 pró-
sent hjá Póllandi.
Á aðeins rúmum sjö mínútum
skoruðu Pólverjar sex mörk í röð
og minnkuðu muninn í tvö mörk.
Íslenska sóknin virtist ekkert ráða
við varnarleik Pólverja sem var
afar öflugur.
Róbert Gunnarsson braut loks-
ins ísinn eftir tólf mínútna leik í
síðari hálfleik. Ísland náði að halda
forystunni allt til leiksloka en það
mátti nánast engu muna.
Hreiðar Guðmundsson kom inn
í íslenska markið á síðasta stund-
arfjórðungnum og varði sjö skot,
hvert öðru glæsilegra.
Seiglan og baráttan í liðinu krist-
allaðist svo í atviki sem átti sér
stað einni og hálfri mínútu fyrir
leikslok. Pólverjar komust í hraða-
upphlaup og gátu minnkað muninn
í eitt mark. Þá kom Alexander Pet-
ersson og stal af honum boltanum
með því að dýfa sér fyrir framan
hann. Það var einstakt augnablik
sem á eftir að lifa lengi, rétt eins
og glæsilegur árangur íslenska
landsliðsins hér í Austurríki. Til
hamingju, strákar!
Silfur í hárinu og brons um hálsinn
Íslenska handboltalandsliðið náði sögulegum árangri í gær er það tryggði sér bronsverðlaunin á Evrópu-
meistaramótinu í handbolta. Þetta er í annað skiptið í röð sem liðið vinnur til verðlauna á þeim stórmót-
um sem það tekur þátt í. Ísland vann Pólland í bronsleiknum, 29-26.
FRÁBÆRT LIÐ Hér sést íslenska landsliðið fagna frábærum árangri sínum á Evrópumótinu í Austurríki. Liðið tapaði bara á móti
Evrópumeisturum Frakka á mótinu og vann fyrstu bronsverðlaun Íslands frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER