Fréttablaðið - 01.02.2010, Side 43
MÁNUDAGUR 1. febrúar 2010 27
EINSTAKAR
HERRAVÖRUR
ÁN ILM–
OG
LITAR–
EFNA
KÖRFUBOLTI Það verða Haukar og
Keflavík sem munu mætast í bika-
úrslitaleik Subwaybikars kvenna
en það var ljóst eftir undanúrslita-
leikina um helgina. Keflavík vann
49 stiga sigur á 1. deildarliði Fjöln-
is á föstudagskvöldið, 97-48, og
Haukarkonur unnu síðan 32 stiga
sigur á Njarðvík, 73-41, á Ásvöll-
um í gærkvöldi.
Nýliðar Njarðvíkur byrjuðu vel
í leiknum í gær og komust í 11-6
en þá vaknaði Haukaliðið, skoraði
fimmtán síðustu stig 1. leikhluta
og leiddi 21-11 eftir hann. Eftir það
voru Íslandsmeistararnir með góð
tök á leiknum undir forustu Kiki
Lund og Heather Ezell og í hálf-
leik munaði orðið 21 stigi á liðun-
um þar sem Haukaliðið var komið
í 45-24.
Seinni hálfleikurinn var því
nánast formsatriði en í lokin mun-
aði 32 stigum á liðunum.
Kiki Lund átti flottan fyrri hálf-
leik þar sem hún skoraði 16 af 18
stigum sínum og Heather Ezell
gældi að venju við þrennuna með
16 stigum, 10 stoðsendingum og 7
fráköstum. Næst þeim kom Ragna
Margrét Brynjarsdóttir. var með 9
stig og 11 fráköst. Shantrell Moss
skoraði 16 stig hjá Njarðvík.
Þetta verður í fjórða sinn á sex
árum sem Haukakonur komast í
Höllina en þær voru líka í bikar-
úrslitaleiknum 2005, 2007 og 2008
en þá fengu þær silfur. - óój
Haukar og Keflavík munu mætast í úrslitaleik Subwaybikars kvenna eftir undanúrslitaleiki helgarinnar:
Haukar í Höllina í fjórða sinn á sex árum
BARÁTTA UM FRÁKÖSTIN Haukakonan Ragna Margrét Brynjarsdóttir í frákastabaráttu
við Njarðvíkurkonur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Subwaybikar kvenna í körfu
Haukar-Njarðvík 73-41 (45-24)
Stig Hauka: Kiki Lund 18, Heather Ezell 16,
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 9, Helena Hólm
7, María Lind Sigurðardóttir 6, Heiðrún Hauks
dóttir 5, Sara Pálmardóttir 4, Kristín Fjóla Reyn
isdóttir 4, Bryndís Hreinsdóttir 3, Auður Ólafs
dóttir 1.
Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 16, Ólöf Helga
Pálsdóttir 8, Sigurlaug Guðmundsdóttir 6, Harpa
Hallgrímsdóttir 4, Heiða Valdimarsdóttir 3, Helga
Jónasdóttir 2, Ína María Einarsdóttir 2.
Fjölnir-Keflavík 47-98 (13-59)
Stigahæstar: Bergdís Ragnarsdóttir 15, Eva María
Emilsdóttir 14 - Kristi Smith 20, Bryndís Guð
mundsdóttir 14, Birna Valgarðsdóttir 14, Eva Rós
Guðmundsdóttir 10, Hrönn Þorgrímsdóttir 10.
N1 deild kvenna í handbolta
KA/Þór-HK 27-23 (14-9)
Mörk KA/Þór: Martha Hermansdóttir 7, Arna Val
gerður Erlingsdóttir 6, Unnur Ómarsdóttir 6, Ásdís
Sigurðardóttir 4, Inga Dís Sigurðardóttir 2, Katrín
Vilhjálmsdóttir 1, Kolbrún Einarsdóttir 1.
Mörk HK: Helena Jónsdóttir 4, Lilja Lind
Pálsdóttir 4, Sóley Ívarsdóttir 3, Elín Baldursdóttir
3, Líney Rut Guðmundsdóttir 3, Elva B.Arnar
sdóttir 2, Tinna Rögnvaldsdóttir 2, Valgerður Ýr
Þorsteinsdottir 1, Heiðrún Helgadóttir 1
Víkingur-Stjarnan 17-40 (13-21)
Mörk Víkings: Guðríður Ósk Jónsdóttir 4, Helga
Lára Halldórsdóttir 3,Berglind Halldórsdóttir 3,
Anna María Bjarnadóttir 3, María Karlsdóttir 2,
Guðny Halldorsdóttir 1, Jóhanna Guðbjörnsd. 1.
Mörk Stjörnunnar: Jóna Sigríður Halldórsdótt
ir 17, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 8, Alina Daniela
Tamason 4, Elíasabet Gunnarsdóttir 4, Esther
Victoria Ragnarsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir
1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1, Guðrún Hrefna Guð
jónsdóttir 1, Þorgerður Anna Atladóttir 1, Unnur
Ýr Viðarsdóttir 1.
ÚRSLITIN
FÓTBOLTI Rafael Benítez, stjóri
Liverpool, sendi frá sér yfir-
lýsingu í gær til að blása á þær
kjaftasögur að hann sé búinn að
ná samkomulagi við Juventus.
Ensku slúðurblöðin voru í gær
uppfull af fréttum þess efnis að
Benítez myndi taka við ítalska
liðinu í sumar.
„Ég vil að það sé á kristaltæru
að ég hef ekki gert samkomu-
lag við Juventus. Ég hef ekki
og mun ekki funda með fulltrú-
um Juventus né annarra félaga.
Ég er með langtímasamning við
Liverpool og er ánægður hér.
Efst í huga mér er að koma Liver-
pool aftur meðal fjögurra efstu
liða deildarinnar,“ sagði Benítez.
Ciro Ferrara var rekinn frá
Juventus á dögunum og Alberto
Zaccheroni stýrir liðinu út tíma-
bilið. - egm
Yfirlýsing frá Rafa Benítez:
Er ekki að taka
við Juventus
SIGUR UM HELGINA Benítez stýrði Liver-
pool til sigurs gegn Bolton á laugardag.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Mikil gleði braust út í
Egyptalandi í gær og dansað var
úti á götum Kaíró þegar þjóð-
in varð Afríkumeistari í fótbolta
í þriðja skipti í röð. Egyptaland
vann Gana 1-0 í jöfnum úrslita-
leik en varamaðurinn Mohamed
Gedo skoraði eina mark leiksins
með fallegu skoti sex mínútum
fyrir leikslok.
Þetta sigurmark kom gegn gangi
leiksins en Gana haði gert sig lík-
legra áður en það kom. Egypta-
land hefur hampað Afríkumeist-
aratitlinum sjö sinnum, oftar en
nokkur önnur þjóð. - egm
Afríkumótið í fótbolta:
Þriðji í röð hjá
Egyptalandi