Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 48

Fréttablaðið - 01.02.2010, Síða 48
DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 Mest lesið VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Fréttablaðið er með 143% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 71,4% 29,3% www.icelandexpress.is með ánægju Það sem sumir bjóða í sólarhring seljum við allt árið um kring Bókaðu núna! F í t o n / S Í A Verð frá: Er kominn ferðahugur í þig? Kynntu þér áfangastaðina okkar og bókaðu vel heppnað sumarfrí á www.icelandexpress.is *Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. 14.900 kr.* Við erum stolt af því að geta boðið samkeppnishæft verð. Lægsta verð á flugsætum Iceland Express er 14.900 kr.* – og það er ekki hraðsoðið tilboðsverð. Leiðakerfið fyrir sumarið 2010 hefur aldrei verið fjölbreyttara því þú getur valið um 25 áfangastaði í Evrópu og Ameríku. Það er spennandi ferðasumar framundan. Jogastudio.org Hamingjufyrirlesarinn Dr. Tal Ben-Shahar er væntanleg- ur til landsins í lok mars og mun halda fyrirlestur í Laugardalshöll- inni. Hann mun einnig gefa sér tíma til að árita bók sína, Meiri hamingja, en það eru hjónin Ásdís Olsen og Karl Ágúst Úlfsson sem kynntu þennan mikla hamingjufyrirlesara fyrir Íslendingum þegar þau gáfu út umrædda bók fyrir síðustu jól. Eftirminnileg sala Salan á bók Tal Ben-Shahar var ótrúlega eftirminnileg en hún náði meðal annars efsta sæti metsölu- lista Eymundsson og hirti það sæti af sjálfum Arnaldi Indriðasyni. Andlegum leiðtogum þjóðarinnar fjölgar því með hverju ári enda hafa á stuttum tíma menn á borð við David Lynch og Dalai Lama heimsótt þjóðina með skömmu millibili. Fyrirlesturinn verður hinn 27. mars og mun Karl Ágúst Úlfsson flytja stutt ávarp á undan honum og gefa fólki smá innsýn inn í hugmyndafræði Shahars. For- sala miða hefst síðan 12. febrúar í verslunum Vodafone. 1 Kona lést á Langjökli 2 Drengurinn líklega útskrifaður af gjörgæslu í dag 3 Forsetinn og Björgólfur Thor eitruð blanda 4 Íslendingur sigraði á stærsta snjóbrettamóti heims 5 Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns Ögmundur útvarpsstjóri Orðrómur er um að farið sé að hitna undir Páli Magnússyni ríkisút- varpsstjóra og kunni svo að fara að skipt verði um mann í brúnni. Nafn Ögmundar Jónassonar, þing- manns Vinstri grænna og fyrrum ráðherra, hefur borið á góma sem einn af hugsanlegum eftirmönnum Páls í Efstaleitinu. Ögmundur þykir þekkja ágætlega til í rekstri RÚV eftir áralangt starf sem formaður BSRB auk þess að hafa verið þar fréttamaður á árum áður. Hrókeringin þykir sömuleiðis gagnast flokks- mönnum Ögmundar ágætlega, ekki síst eftir að hann lenti upp á kant við flokks- systkini sín.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.