Fréttablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég var að hugsa um það í gær-
kveldi hvað ég ætti að velja,“ við-
urkennir Ingibjörg sem á fal-
legt heimili í gömlu húsi. „Ég hef
sankað að mér alls konar dóti en
kaupi þó afar sjaldan húsgögn.
Það sem er hér í kringum mig er
aðallega eitthvað frá fjölskyld-
unni,“ útskýrir hún. „En mynd
sem ég fékk í jólagjöf gladdi mig
ósegjanlega svo ég ákvað að velja
hana. Hún er af börnunum mínum,
tengdasyni og tveimur barnabörn-
um. Þetta er auðvitað það sem
mér þykir vænst um í heimin-
um og því skiptir hún mig miklu
máli þessi mynd. Ég hef líka svo
lítið af þessu fólki að segja núna
því ekkert af því er heima en það
líður ekki svo dagur að ég stað-
næmist ekki við myndina. Hún er
tengingin við þennan part tilveru
minnar.“
Myndin góða er um 40X50 cm
að stærð. Hún hefur ekki fengið
sinn varanlega stað enn þá, held-
ur hallar sér upp að gamalli kistu.
Ingibjörg telur umbeðin upp nöfn
fyrirsætanna. „Það eru börnin
mín, Sigrún Inga, Ragnar Jón og
Steinunn Björg Hrólfsbörn. Þor-
geir tengdasonur minn situr undir
dóttur sinni sem heitir Dúna
Steinunn og hjá honum situr Fan-
ney Inga Birkisdóttir. Ljósmynd-
arinn heiti Bjarni Grímsson og er
ljósmyndari og kvikmyndagerðar-
maður.“
Ingibjörg stýrir landsbókasafn-
inu og segir talsverða kúnst að
láta hlutina þar ganga upp eins og
staðan sé í dag. „Hins vegar finnst
mér afskaplega gaman í þessari
vinnu og þar hef ég skemmtilegt
samstarfsfólk. Svo bý ég við þau
lífsgæði að geta gengið í vinnuna
sem mér finnst ómetanlegt.“
gun@frettabladid.is
Hún skiptir mig mjög
miklu máli þessi mynd
Margir, sem lýst hafa heimilislegum hlut með sérstakt gildi, hafa tekið fram að hann sé það sem þeim
þyki vænst um – fyrir utan fjölskylduna. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður gengur lengra.
Ég hef svo lítið af þessu fólki að segja núna því ekkert þeirra er heima,“ segir Ingibjörg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NÝ ENDURVINNSLUSTÖÐ Sorpu verður opnuð við
Breiðhellu í Hafnarfirði í lok mánaðar. Sama dag verður
stöðinni við Miðhraun í Garðabæ lokað og starfsemi þar
lögð af. Á hinni nýju stöð er athafnarými viðskiptavina með
besta móti og sérstök gryfja er á svæðinu fyrir garðaúrgang.
www.sorpa.is
www.svefn.is
FRAMTÍÐIN Í FJÖLSTILLANLEGUM RÚMUM
TM
- Hægt að stilla við
iPhone® og iPod
touch®
- Hrotu stjórnun
- Wi-Fi fjarstýring
- Fimm stilliminni
- Vekjaraklukka með léttu
nuddi og hljóði
- „Finna fjarstýringu“ stilling
- Stærsti framleiðandi í heimi á
stillanlegum rúmum
- Fæst bæði með dökkum og
ljósum lit
" IQ-CARE heilsudýnurnar hafa svo sannarlega
slegið í gegn hér á landi. Þær eru einstakur
valkostur og hafa reynst frábærlega vel.
Viðskiptavinir okkar velja þær
yfirleitt í stillanleg rúm
sín enda eru dýnurnar
sérstaklega hannaðar
til að þola allar
hreyfingar sem
stillanleg rúm gera kröfu
til. Með komu IQ-CARE
heilsudýnanna höfum við enn
betur náð að koma til móts við
sértækustu þarfir viðskiptavina okkar
og finna þá lausn í dýnu sem best hentar
hverjum og einum "
Sigurður Matthíasson , forstjóri
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 - Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447