Fréttablaðið - 03.05.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
3. maí 2010 — 102. tölublað — 10. árgangur
FASTEIGNIR.IS
3. MAÍ 2010
18. TBL.
Fasteignamarkaðurinn er með á skrá íbúð við Hávallagötu 7.
Í búðin er á annarri hæð í þríbýl-ishúsi, skráð 106,5 fermetrar samkvæmt Fasteignamati rík-isins, en er í raun um það bil 120 fermetrar samkvæmt seljanda.Íbúðin samanstendur af tveim-ur stofum, fjórum herbergjum
og tveimur svefnherbergjum, og er skipulagið eins og hér segir: Komið er inn um sérinngang í flísalagða stofu. Farið er upp kókos teppalagðan stiga á efri hæð. Stigapallur/hol er parket-lagt og er útgengt á svalir í norð-vestur. Stofur eru samliggjandi en með rennihurð á milli. Barna-herbergi er parketlagt, sömu-leiðis hjónaherbergi. Eldhús
er flísalagt og með harðviðar-innréttingu úr mahóní og góðri borðaðstöðu. Baðherbergi er með baðkari, glugga og sturtuaðstöðu og marmara á veggjum og gólfi. Tvær sérgeymslur og sam-eiginlegt þvottaherbergi eru í kjallara.
Húsið er í góðu ásigkomu-lagi að utan sem innan að sögn seljanda.
Sérhæð við Hávallagötu
Íbúðin er á annarri hæð í þríbýlishúsi við Hávallagötu 7.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Blaðberinn bíður þínÞú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Útboð skila árangri!
14867 – Hraunbær 102 D og E
í Reykjavík.
Um er að ræða 1. hæð og kjallararými í báðum hlutum samtals 563,7 m² samkvæmt upplýsing-um frá Fasteignaskrá ríkisins.
Húsnæðið var nýtt sem heilsugæslustöð en stendur autt
í dag. Brunabótamat er kr. 98.100.000,- og fasteignamat er
kr. 86.200.000,-. Húseignin verður til sýnis í samráði við Ríkiskaup, Borgartúni
7C, 105 Reykjavík í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá Ríkiskaupum ásamt regl-
um um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is Tilboð skulu berast til Ríkiskaupa, Borgartúni 7C, 105
Reykjavík fyrir kl. 10:00 þann 18. maí 2010 þar sem þau
verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska.
Tilboð óskast í hluta fasteignarinnar Hraunbæ 102 D og E í Reykjavík.
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Gekk með krummann ímaganum í í
Valdís og krummi brosa blítt hvort til annars. Hann er þeirri náttúru gæddur að blaka vængjunum þegar togað er í spotta.
MYND HEIDA.IS
GÖMUL VEGGTJÖLD öðlast nýtt líf
í líki hesta og annarra dýra hjá Frederique
Morrell í París. www.frederiquemorrel.com
Tækifærisdagar20%-30% afsláttur af mörgum vörum mánudag til föstudags
Opið: má-fö. 12:30 -18:00,
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727 - www.nora.is
Traktorakönnurnar
komnar
híbýli og vi h ld
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010
SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fasteignir.is
Allt
Híbýli og viðhald
MÁNUDAGUR
skoðun 12
Fréttablaðið er með 212% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í nóvember 2009 – janúar 2010.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
73,8%
23,7%
Fínir dómar í Ameríku
Los Angeles Times er hrifi ð
af The Good Heart eftir Dag
Kára.
fólk 26
Klippir í
Danaveldi
Kristinn Óli Hrólfs-
son opnar
hárgreiðslustofu
í Kaupmanna-
höfn.
fólk 18
Stúlkurnar skinu skært
Lið Hagaskóla sigraði í
Mælsku- og rökræðukeppni
grunnskóla.
tímamót 14
NEYTENDUR Tryggingasvikum og
tilraunum til svika hefur fjölgað
eftir bankahrunið, að mati Guð-
mundar Arnar Gunnarssonar,
forstjóra vátryggingafélagsins
VÍS. Niðurstöður könnunar, sem
Capacent Gallup gerði fyrir Sam-
tök fjármálafyrirtækja, sýna að
fólk telur tryggingasvik léttvæg-
ari en fjárdrátt og önnur fjármála-
brot. Athygli vekur að nærri helm-
ingur þátttakenda á aldrinum 16 til
24 ára þekkir til tryggingasvika.
Guðmundur bendir á að í
gegnum tíðina hafi verið upp-
lýst um tryggingasvik, svo sem
sviðsetta árekstra, til að fá bætur
greiddar frá tryggingafélögum. Á
meðal annarra brota sem algeng-
ari séu nú en fyrir hrun séu til-
kynningar um innbrot í heimahús
og bíla og íkveikjur. Guðmund-
ur segir að þótt innbrotafaraldur
hafi gengið yfir á síðasta ári úti-
loki hann ekki að einhverjar til-
kynningar um innbrot séu ekki
sannleikanum samkvæmar. Það
geti skekkt upplýsingar um tíðni
þeirra.
Páll Sigurðsson, sérfræðingur
hjá Sjóvá, segir sviðsetta árekstra
og þjófnaði raunverulegt vandamál
hér á landi. Páll, sem vinnur við
rannsóknir á bótasvikum, rifjar
upp að í fyrra hafi maður tilkynnt
um þjófnað á tveimur motocross-
hjólum og fengið tvær milljónir í
bætur. Síðar kom í ljós, í kjölfar
ábendingar, að hjólin voru enn í
vörslu mannsins. Hann hlaut dóm
fyrir svikin og endurgreiddi bæt-
urnar. Páll tekur fram að svona til-
felli séu undantekningar, langflest-
ir séu strangheiðarlegir en greiði
fyrir háttsemi hinna óheiðarlegu
með iðgjöldum sínum.
Guðmundur Örn telur skýring-
una á því hversu margt ungt fólk
viti af tryggingasvikum liggja í
því að ungt fólk líti tryggingafélag
öðrum augum en þeir eldri.
„Sumum finnst einfaldlega sem
þeir eigi rétt á að fá greitt til baka
frá tryggingafélögum. Það er
hugar far sem við finnum fyrir í
dag,“ segir hann. Undir þetta tekur
Páll. Hann segir ungt fólk frekar
þann hóp sem líti á tryggingasvik
sem minni háttar brot.
Bótagreiðslur vátryggingafélaga
námu þrjátíu milljörðum króna
árið 2008. Talið er að þar af nemi
bótasvik allt að 4,5 milljörðum
króna. - jab / sjá síðu 12
Tryggingasvikum hefur
fjölgað eftir bankahrun
Hluta tilkynninga um innbrot má skrifa á tilraun til bótasvika. Ungt fólk virðist bíræfnara en áður og
þekkir helmingur aldurshópsins 16-24 ára til tryggingasvika. Svik kosta tryggingafélög fjóra milljarða á ári.
FÓLK „Sigur Rós hafði
gríðarleg áhrif á mig – ég
hafði aldrei upplifað svona
sterkar tilfinningar gagnvart
tónlist,“ segir Maksym Dzit-
siuk.
Maksym og félagi hans í
hljómsveitinni The Awe of
the Landscape from the Foot-
hills of Mars, Where Har-
vesters Eat Open-Face Sand-
wiches frá Úkraínu hafa
undanfarið tekið upp lög með
íslenskum hljómsveitum og
birt á vefsíðunni Youtube.
„Sigur Rós er uppáhalds-
hljómsveitin okkar. Hún er
samt meira en hljómsveit eða
góð tónlist. Hún er eitthvað
meira – eitthvað sem breytti
lífi okkar,“ segir Maksym.
- afb / sjá síðu 26
Ungir drengir í Úkraínu:
Flytja lög Diktu
og Sigur Rósar
VÍÐA DÁLÍTIL VÆTA Í dag verða
sunnan eða suðvestan 5-10 m/s
V-til, annars hægari. Víða væta en
úrkomulítið SA-til framan af degi.
Hiti víðast 5-13 stig.
veður 4
9
8
8
6
6
Valsmenn jöfnuðu
Valsmenn létu Hauka ekki
stela öðrum sigri í úrslita-
einvígi N1 deildar karla í
handbolta.
sport 22
STJÓRNMÁL Guðlaugur Þór Þórðarson hefur ekki hug-
leitt að segja af sér þingmennsku þrátt fyrir háværa
kröfu um að þeir sem þáðu hæstu prófkjörsstyrkina
víki af Alþingi. Þetta segir hann í viðtali við Frétta-
blaðið í dag.
„Nei, ég hef ekki gert það. Enda held ég að þegar
menn skoða mín verk af einhverri sanngirni þá geti
þeir ekki komist að neinni annarri niðurstöðu en að
ég hafi verið að vinna með hag almennings að leiðar-
ljósi og svo sannarlega ekki látið neina aðra hagsmuni
þvælast fyrir því,“ segir hann.
Guðlaugur þáði 24,8 milljónir króna í styrki fyrir
kosningarnar 2007. Enginn þáði hærri styrki sam-
kvæmt upplýsingum Ríkisendurskoðunar. Guðlaug-
ur segir að þetta segi þó ekki alla söguna.
„Ríkisendurskoðun skoðaði ekkert þessa styrki.
Það er ekki hennar hlutverk að sannreyna eða fara
ofan í þær upplýsingar sem henni eru sendar,“ segir
Guðlaugur. Hægt sé að skoða málin og síðan draga
þá ályktun að aðrir hafi farið svipaða leið og hann, í
það minnsta.
Guðlaugur hvetur til þess að menn fari fljótlega að
ljúka uppgjörinu og horfa til framtíðar. Mikilvægt sé
þó að farið verði í tvær umfangsmiklar rannsóknir í
anda rannsóknarinnar á bankahruninu; annars vegar
rannsókn á því hvernig tekið hefur verið á skuldurum
og skuldugum fyrirtækjum og hins vegar rannsókn
á Icesave-málinu.
Guðlaugur segir mótmælin sem verið hafa við
heimili hans helst beinast gegn börnum hans og vonar
að hann verði sá síðasti sem verður fyrir barðinu á
slíkum aðgerðum. - sh / sjá síðu 8
Guðlaugur Þór Þórðarson segir ekki víst að hann sé styrkjakóngur stjórnmálanna:
Hefur ekki hugleitt afsögn
STUTT HEIMSÓKN Flutningaskipið Green Ice, sem skrásett er á Bahama-eyjum, hélt úr Reykjavíkurhöfn í gærkvöldi
eftir stutta viðkomu. Norskt skipafélag, Green Reefers, á skipið sem er sérútbúið til að flytja frystar afurðir. Alls á félagið 45 skip sem
starfa um allt Norður-Atlantshaf og eiga starfsstöðvar víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI