Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 10
10 3. maí 2010 MÁNUDAGUR NEYTENDUR Fleiri vita nú um vátryggingasvik þar sem viðkom- andi fékk bætur sem hann átti ekki rétt á en í fyrra. Tryggingasvik og skattsvik telur fólk almennt létt- vægari en önnur svik. Flestir telja fjárdrátt alvarlegasta brotið. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök fjármálafyrirtækja í síð- asta mánuði. Í könnuninni kemur fram að 30,3 prósent þátttakenda hafi vitneskju um tryggingasvik. Í sambærilegri könnun Capacent Gallup frá í fyrra vissu 24,7 pró- sent þátttakenda um einhvern sem fékk bætur sem hann átti ekki rétt á. Könnunin í fyrra var sú fyrsta sinnar tegundar sem gerð var hér á landi. Í niðurstöðum könnunarinnar í fyrra voru 87 prósent þátttakenda sammála því að vátryggingasvik eru alvarlegt brot. Í ár eru tæp- lega 96 prósent sammála því. Skýr tengsl eru á milli aldurs og viðhorfs og vitneskju um vátrygg- ingasvik. Nær helmingur þátttak- enda á aldrinum 16 til 24 ára þekk- ir til vátryggingasvika. Eftir því sem ofar dregur í aldri fækkar þeim sem þekkja til slíks auk þess sem fleiri telja svikin alvarleg. Daði Sverrisson, hagfræðing- ur hjá Samtökum fjármálafyrir- tækja, segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart. Bæði viðhorf og afstaða þátttakenda í könnuninni séu sambærileg við það sem sjáist í nágrannalöndunum. Hann bendir á að könnun sem þessi sé gerð reglulega í nágranna- ríkjunum. Líklegt sé að næstu skref felist í fræðslu og forvörn- um. Árið 2008 námu bótagreiðslur vátryggingafélaga þrjátíu millj- örðum króna. Daði bendir á að miðað við áætlaða tíðni vátrygg- ingasvika í nágrannaríkjunum megi áætla að tíu til fimmtán prósent bótagreiðslna séu vegna tryggingasvika. Miðað við það nemi vátrygg- ingasvik hér þremur til 4,5 millj- örðum króna á ári hverju. Daði segir um háar upphæðir að ræða. „Það má ekki gleyma því að þegar upp er staðið lendir kostn- aður við vátryggingasvik á heið- arlegum viðskiptavinum trygg- ingafélaganna, þeim sem greiða iðgjöldin.“ jonab@frettabladid.is 500 bæklingar með nýju sniði. UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA 50 kassar utan um augnakonfekt. Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is VÖRUFRAMBOÐ Á HÖFÐI Þessi sölu- maður í Jaffna á Srí Lanka flutti vörur sínar á höfðinu. NORDICPHOTOS/AFP DAÐI SVERRISSON Kostnaður við bótagreiðslu vegna tryggingasvika lendir á heiðarlegum viðskiptavinum tryggingafélaganna, segir hagfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þriðjungur landsmanna þekkir til tryggingasvika Fleiri telja fjárdrátt alvarlegra brot en skatt- og tryggingasvik, samkvæmt niðurstöðum könnunar Capacent Gallup. Ætla má að bótagreiðslur vegna vátryggingasvika nemi allt upp undir 4,5 milljörðum króna á ári. Capacent Gallup framkvæmdi könnunina 10.-18. mars síðast- liðinn til að meta viðhorf íslensks almennings á aldrinum 16-75 ára til vátryggingasvika. Þátttakendur voru spurðir fjórtán spurninga þar sem spurt var um vitneskju viðkomandi um vátryggingasvik annarra, almenn viðhorf til vátryggingasvika og ann- arra fjársvika. Um könnunina ÁSTRALÍA Einn frægasti glæpa- maður Ástralíu, Carl Williams, var barinn í hel af samfanga sínum fyrir skömmu. Williams var gjarnan nefnd- ur „morðinginn með barnsandlit- ið“ og höfðu sjónvarpsþættir sem byggðu á ævi hans slegið í gegn í Ástralíu. Jarðarför Williams fór fram um helgina og um hundrað manns var viðstatt þegar glæpa- maðurinn var lagður til hinstu hvílu í gullhúðaðri kistu sem kostaði um fjórar milljónir króna. - sm Morðingi með barnsandlit: Jarðaður í gull- húðaðri kistu SÖFNUN Þorbjörg Elín Fríðhólm Friðriksdóttir, sem er búsett í Sand- gerði, hefur sett af stað söfnun fyrir ytri öndunarvél handa Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja en hún þarf að styðjast við slíka vél í baráttu sinni við langvinna lungnaþembu. Aðeins ein ytri öndunarvél er til á stofnun- inni en hún þarf á tveimur til þrem- ur að halda til að koma til móts við sjúklinga á svæðinu. „Ég er bundin við vélina allar nætur og hef þurft að sofa á sjúkra- húsinu síðastliðna sjö mánuði. Það hefur einu sinni komið fyrir að annar sjúklingur hafi þurft á vél- inni að halda og þá þurfti að kalla eftir aukavél úr Reykjavík. Í kjöl- farið ákvað ég að hrinda af stað söfnun og sendi bréf til verkalýðs- félaganna, kvenfélaganna og bæjar- félaganna á Suðurnesjum auk þess sem Sjálfsbjörg – landssamband fatlaðra, gaf stóra upphæð,“ segir Þorbjörg. Þegar hefur tekist að safna tæplega 1,5 milljónum króna. Vélin kostar um 2,5 milljónir og geta áhugasamir lagt söfnuninni lið með því að leggja inn á eftir- farandi reikning: 542-14-401515, kennitala 061051-4579. - ve Þorbjörg Elín Friðriksdóttir safnar fyrir ytri öndunarvél: Aðeins ein öndunarvél til staðar MEÐ VELUNNURUM SÍNUM Þorbjörg er tengd við ytri öndunarvél allar nætur en aðeins ein slík vél er til á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja. Það má ekki gleyma því að þegar upp er staðið lendir kostnaður við vátryggingasvik á heiðarleg- um viðskiptavinum trygginga- félaganna, þeim sem greiða iðgjöldin. DAÐI SVERRISSON HAGFRÆÐINGUR HJÁ SAMTÖKUM FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA SLYS Kona slasaðist illa á fæti á Miðfellstindi á Vatnajökli síðdeg- is á laugardag og voru björgunar- sveitir á Austurlandi kallaðar út. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð til og fór hún með undanfara björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu aust- ur. Þyrlan lenti rétt eftir klukk- an 18 á slysstað og flutti konuna á sjúkrahús í Reykjavík, en hún mun hafa fengið ísöxi í fótinn. - ve Slasaðist á Vatnajökli: Fékk ísöxi í fót- inn í fjallgöngu FÉLAGSMÁL Þrjátíu og tvær til- kynningar bárust barnavernd- arnefnd á norðanverðum Vest- fjörðum, nítján í febrúar og þrettán í mars. Vefurinn Bæjar- ins besta greinir frá. Þar kom einnig fram að barnaverndarnefndir á Vest- fjörðum hafi ekki skilað inn endanlegum upplýsingum fyrir síðasta ár. Skili nefndirnar ekki gögnum fyrir 1. júní muni þær fá áminningu frá Barnavernd- arstofu. Þá var lagt fram bréf frá Velferðarvaktinni sem ætlað er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleið- ingum efnahagsástandsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu. Barnaverndarnefnd Vestfjarða: Þrjátíu og tvær tilkynningar Ungur síbrotamaður tekinn Ungur síbrotamaður var handtekinn í Reykjanesbæ á laugardag eftir að hafa bæði brotist inn í bíla og hús. Pilturinn, sem er um tvítugt, virðist hafa stolið öllu sem á vegi hans varð en lögreglan lagði meðal annars hald á tertuhníf sem hann hafði tekið af einu heimilinu. LÖGREGLUMÁL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.