Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 3. maí 2010 11 Nánari upplýsingar á www.xd.is/reykjavik Hverfafundir borgarstjóra með íbúum Reykjavíkur Árbær – Árbæjarskóli – 5. maí kl. 20.00 Miðborg – Miðbæjarskóli – 8. maí kl. 15.00 Grafarholt – Ingunnarskóli – 10. maí kl. 17.00 Grafarvogur – Víkurskóli – 10. maí kl. 20.00 Háaleiti – Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56–58 – 11. maí kl. 17.00 Vesturbær – Hagaskóli – 11. maí kl. 20.00 Breiðholt – Ölduselsskóli – 17. maí kl. 17.00 Kjalarnes – Klébergsskóli – 17. maí kl. 20.00 Laugardalur – Laugalækjarskóli – 19. maí kl. 20.00 Þú getur haft áhrif á hverfið þitt Vinnum saman í Reykjavík Hanna Birna Kristjánsdóttir Borgarstjóri SÓMALÍA Sómalskir uppreisnar- menn tóku yfir bæinn Haradhere sem er á suðurströnd Sómalíu. Sómalskir sjóræningjar hafa haft aðsetur í bænum en þeir lögðu á flótta undan uppreisnarmönnun- um sem hyggjast koma á lögum og reglu í bænum. Eins konar lög- leysa hefur ríkt í Sómalíu síðast- liðin tuttugu ár. Erlendir fréttamiðlar höfðu eftir einum sjóræningjanna að uppreisnarhópurinn hafi komið til Haradhere og heimtað hlut í ránsfeng sjóræningjanna. - sm Sjóræningjar leggja á flótta: Vilja koma á lögum og reglu EFNAHAGSMÁL „Þeir sem brutu af sér hjá Goldman Sachs fara næsta örugglega í fangelsi. Það er spurn- ing hvað verður um hina, sem komu úr bankanum, fengu störf hjá ríkinu og höfðu hugsanlega vitneskju um stöðu mála.“ Þetta segir svissnesk-bandaríski lögfræðingurinn dr. Daniel Levin. Hann var með fyrirlestur fyrir skömmu á vegum Samtaka fjárfesta og viðskiptadeildar Háskóla Íslands. Þar fjallaði hann um góða stjórnar- hætti, kreppuna og bankahrunið. Levin hefur starfað sem ráðgjafi ríkisstjórna víða um heim síð- ustu ár. Hann á sæti í nefnd á vegum banda- ríska þingsins sem vinnur með fjármálaeftirlit- inu þar í landi að rannsókn á milljarðasvikum bandaríska fjár- festingarbankans Goldman Sachs. Svikin felast í því að bankinn fékk viðskiptavini sína til að fjárfesta í skuldabréfavafningum sem í voru verðlítil undirmálslán frá banda- ríska vogunarsjóðnum Paulson & Co árið 2007. Eftir að viðskiptavin- ir Goldman Sachs keyptu vafning- inn veðjaði vogunarsjóðurinn á að vafningurinn myndi lækka í verði. Bæði bankinn og vogunarsjóður- inn högnuðust um milljarða dali á kostnað viðskiptavina bankans. Levin segir stjórnendur Gold- mans Sachs, bæði núverandi og fyrrverandi, bera mikla ábyrgð á fjársvikamálinu. Á meðal þeirra sem störfuðu hjá bankanum eru Robert Rubin, fjármálaráðherra í stjórnartíð Bills Clinton, og Henry Paulson, sem fór úr bankanum til að taka við stóli fjármálaráðherra í ríkisstjórn George W. Bush. Levin segir ábyrgð stjórnmála- manna mikla, enda hafi marg- ir þeirra átt að vita hvert stefndi fyrir bankahrunið. Sumir hafi jafn- vel vitað af því. „Það er sömuleið- is spurning um ábyrgð íslenskra stjórnmálamanna, svo sem Geirs Haarde og fleiri sem sátu í ríkis- stjórn þá,“ segir Levin. jonab@frettabladid.is Bandarískur lögfræðingur segir stjórnendur Goldman Sachs fara næsta örugglega í fangelsi: Hrunið skrifast líka á stjórnmálamenn DANIEL LEVIN BANDARÍKIN Stærsti núlifandi hestur heims er hinn tveggja metra hái Stóri-Jake. Hestur- inn er níu vetra gamall og vegur rúmt tonn. Eigandi Stóra-Jake segir hann vera ljúfan sem lamb og hefur hann meðal annars aðstoðað við að safna fé til styrktar lang- veikum börnum og fjölskyldum þeirra, en Stóri-Jake ferðast um Bandaríkin og tekur þátt í hesta- sýningum. Stóri-Jake er heilum átta sentimetrum hærri en fyrrum handhafi titilsins. Eigandi hestsins segir fólk verða hvumsa þegar það sér hestinn þar sem hann þyki óeðli- lega stórvaxinn. -sm Stærsti hestur heims: Hestur sem vegur tonn Gaskútur sprakk Gaskútur sprakk á svölum íbúðarhúss í Fossvoginum seinni hluta gærdags. Að sögn lögreglu sakaði engan og vel gekk að slökkva eldinn. Harður árekstur í Hlíðunum Harður árekstur varð við Suðurhlíð um kvöldmatarleytið í gær þar sem bifhjól og bíll skullu saman. Ökumað- ur bifhjólsins slasaðist nokkuð en meiðslin voru ekki talin alvarleg. LÖGREGLA DÝRALÍF Áströlsk kona þurfti að kalla eftir aðstoð fagmanns við að taka inn þvott af snúru. Heilt býflugnabú hafði komið sér fyrir á litríkum buxum og einu sokka pari sem héngu til þerris á snúrunni. Býflugnabóndi nokkur kom konunni til bjargar og taldi hann að um 20 þúsund flugur hefðu hreiðrað um sig á þvottinum. Býflugur eiga það til að yfirgefa bú sín vegna plássleysis. Drottn- ingin og þernur hennar koma sér fyrir á hentugum stað á meðan vinnuflugur byggja nýtt bú í grenndinni. -sm Áströlsk kona í vanda: Heilt býflugna- bú á þvottinum BÝFLUGUR Um 20 þúsund flugur voru búnar að hreiðra um sig í þvotti konunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.