Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 14
14 3. maí 2010 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
JAMES BROWN (1933-2006)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Boðskapur minn er:
„Hjálpaðu þér sjálfur, svo
þú getir hjálpað öðrum.“
James Joseph Brown var
bandarískur söngvari og
skemmtikraftur, oft kallaður
„faðir sálartónlistarinnar“.
Úrslitarimma í Mælsku- og rökræðu-
keppni grunnskóla Reykjavíkur og
nágrennis, MORGRON, fór fram
þriðjudaginn 27. apríl. Lið Hagaskóla
fór þar með sigur af hólmi, en liðið var
eingöngu skipað stúlkum: Aldísi Mjöll
Geirsdóttur, Ásdísi Kristjánsdóttur,
Birnu Ketilsdóttur og Sólveigu Láru
Gautadóttur. Þjálfari liðsins var Ólafur
Kjaran, nemandi í Menntaskólanum í
Reykjavík.
„Þetta er búið að vera mjög skemmti-
legt og margt sem maður hefur lært,
ekki bara að halda ræður og koma fram
heldur er keppnin góð æfing í rökhugs-
un þar sem maður þarf að kryfja allt til
mergjar,“ segir Aldís Mjöll Geirsdóttir,
sem varð stigahæsti ræðumaðurinn í
keppninni og því valin ræðumaður
kvöldsins. Alls voru ræðukeppnirnar
sem Hagaskóli tók þátt í vetur þrjár
en á lokakvöldinu kepptu Hagaskóli
og Lindaskóli til úrslita.
„Upphaflega var haldið ræðunám-
skeið sem stóð í eitt kvöld og svo var
inntökupróf í ræðuliðið en við vorum
25 sem tókum þátt í því. Af þeim vorum
við fjórar svo fengnar í liðið en tveir
strákar af námskeiðinu, Arnar Sveinn
Harðarson og Gunnar Birnir Ólafsson,
komu líka nærri vinnu ræðuliðsins og
hjálpuðu til við skrif og slíkt,“ segir
Aldís Mjöll.
Birna Ketilsdóttir var líka í ræðu-
liðinu í fyrra en Ásdís, Aldís og Sól-
veig Lára voru að prófa ræðumennsku
í fyrsta skipti og segjast allar mæla
með því að ungmenni prófi að skrá sig
í námskeið í ræðumennsku. „Mörgum
finnst mjög óhugnanleg tilhugsun að
koma fram og tala fyrir framan hóp
af fólki þannig að þetta er mjög góð
aðferð til að yfirstíga slíka hræðslu,“
segir Birna og Sólveig Lára bætir við
að hún sé ekki jafn fljót að mynda sér
skoðun og hugleiðir frekar allar hlið-
ar málsins. Þær segjast allar ætla að
skrá sig í starf málfundafélaganna í
menntaskóla en þær eru nemendur í 10.
bekk. „Það er kominn tími á stelpurnar,
strákarnir hafa oft verið svolítið áber-
andi í ræðumennskunni en við tökum
bara við þessu núna,“ segir Aldís.
juliam@frettabladid.is
MÆLSKU- OG RÖKRÆÐUKEPPNIN MORGRON: HAGASKÓLI VANN
KOMINN TÍMI Á STELPURNAR
RÆÐULIÐ HAGASKÓLA Frá vinstri: Sólveig Lára Gautadóttir, Aldís Mjöll Geirsdóttir, Ásdís Kristjánsdóttir og Birna Ketilsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MERKISATBURÐIR
1902 Hjúkrunarfélag Reykja-
víkur er stofnað að frum-
kvæði Oddfellowregl-
unnar. Félagið fær fólk til
starfa í heimahjúkrun.
1943 Fjórtán bandarískir her-
menn farast er flugvél
brotlendir á Fagradalsfjalli
á Reykjanesi. Í för með
hermönnunum er Frank
M. Andrews, æðsti yfir-
maður herafla Bandaríkj-
anna í Evrópu, og hann
ferst líka.
1970 Álverið í Straumsvík er
tekið í notkun. Fram-
leiðsla á áli hafði hafist ári
áður.
1998 Fyrsti áfangi Grafarvogs-
laugar er opnaður.
Á þessum degi árið 1986
tók Ísland í fyrsta skipti þátt í
Eurovison með laginu Gleði-
bankinn en það var söng-
hópurinn ICY sem flutti lagið
sem Magnús Eiríksson samdi.
Lagið lenti í 16. sæti en mikil
eftirvænting ríkti meðal
Íslendinga sem bjuggust
margir jafnvel við sigri lagsins.
Sama dag og Íslendingar
kepptu birtu íslensk dagblöð greinar þar sem
talað var um sigurlíkur lagsins og í DV var sagt
að þær væru verulegar. Þannig birtist viðtal við
einn af aðstandendum keppninnar í sama eintaki
þar sem hann sagði frá partíhaldi í Björgvin þar
sem keppnin var haldin: „Við vorum í fiskiveislu
með nokkrum þátttakendum
frá Suður-Evrópu og þeir
höfðu mestar áhyggjur af því
hvar við ætluðum að halda
Eurovision-keppninna að ári
ef við ynnum.“
Flytjendur lagsins voru
Pálmi Gunnarsson, Helga
Möller og Eiríkur Hauksson
og Gunnar Þórðarson sá um
útsetningu. „Það var meira
að segja blístrað er síðustu tónar stórhljómsveit-
arinnar, undir stjórn Gunnars Þórðarsonar, dóu
út,“ skrifaði Eiríkur Jónsson, sem var staddur í
Björgvin. Sigurvegarinn í keppninni varð hins
vegar hin unga Sandra Kim frá Belgíu, sem söng
lagið „J’aime la vie“.
ÞETTA GERÐIST: 3. MAÍ ÁRIÐ 1986
Ísland í fyrsta sinn í Eurovision
Caput-hópurinn heldur tón-
leika í Listasafni Íslands
miðvikudaginn 5. maí
klukkan 20.
Þrjú ný íslensk verk verða
frumflutt á tónleikunum. Þar
á meðal verða fluttir tveir
nýir einleikskonsertar, Allt
hefur breyst, ekkert hefur
breyst eftir Hauk Tómas-
son og Konsert fyrir kontra-
bassa og kammersveit eftir
Snorra Sigfús Birgisson.
Einleikarar eru Víkingur
Heiðar Ólafsson píanóleikari
og Hávarður Tryggvason
kontrabassaleikari.
Þá verður verkið Hrím
eftir Önnu Þorvaldsdóttur
frumflutt á tónleikunum,
en Anna er talin ein af efni-
legstu tónskáldum af yngri
kynslóðinni. Þess má geta
að Hrím verður flutt aftur
í San Diego aðeins tveimur
dögum eftir frumflutning-
inn hér á Íslandi. Stjórnandi
á tónleikunum er Snorri Sig-
fús Birgisson. Nánari upplýs-
ingar á www.caput.is.
Caput frumflytur
íslensk tónverk
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Marheiður Viggósdóttir
frá Siglufirði, Hverfisgötu 47,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði,
sunnudaginn 25. apríl.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju við
Strandgötu, þriðjudaginn 4. maí kl. 15.00.
Ásdís Guðmundsdóttir Birgir Sigmundsson
Bjarney Guðmundsdóttir Bjarni Guðjónsson
Guðlaug Guðmundsdóttir Jón Alfreðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
Jón Eyjólfsson,
Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á Dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn 27. apríl.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
4. maí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent
á Dvalarheimilið Höfða, Akranesi.
Svava Gunnarsdóttir
Gunnar Jónsson
90 ára afmæli
Í tilefni af 90 ára afmæli Baldurs
Ingólfssonar, 6. maí nk., tekur
hann á móti gestum í safnaðar-
heimili Neskirkju við Hagatorg,
107 Reykjavík, laugardaginn 8.
maí nk. milli kl. 16 og 18. Vinir,
vandamenn og aðrir samferða-
menn eru hjartanlega velkomnir.
Ástkær dóttir okkar, systir, barnabarn
og frænka,
Lena Margrét
Hinriksdóttir,
Colchester, Englandi,
lést af slysförum sunnudaginn 25. apríl. Útför hennar
fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, fimmtudaginn 6. maí
kl. 14.00.
Jóhanna Berglind Kristjánsdóttir Halldór Vagn Jónsson
Hinrik Þór Valgeirsson Hildur Sveinbjörnsdóttir
Guðný Rós Kahari Harry Kahari
Valgeir Örn Hinriksson
Eggert Jóhannes Halldórsson
Sigríður Kristjana Halldórsdóttir
Magdalena Olsen Valgeir J. Þorláksson
Guðný Helga Jóhannsdóttir Unnsteinn Egill
Kristinsson
Ásmundur Örn Valgeirsson
Anna Egilsdóttir Brynjar Már Lárusson
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Vilborg Guðjónsdóttir
frá Fremstuhúsum Dýrafirði,
sem andaðist laugardaginn 24. apríl, verður jarðsungin
frá Garðakirkju í Garðabæ þriðjudaginn 4. maí
kl. 15.00.
Guðjón Torfi Guðmundsson Stefanía Magnúsdóttir
Þorgeir Guðmundsson
Valgerður Guðmundsdóttir
Dýri Guðmundsson Hildur Guðmundsdóttir
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.