Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 4
4 3. maí 2010 MÁNUDAGUR
GRIKKLAND Gríska ríkisstjórnin
hefur ákveðið að þiggja aðstoð
Evrópusambandsins og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins við að vinna
sig út úr þeim efnahagsþrenging-
um sem við blasa við grísku þjóð-
oinni. George Papandreou, for-
sætisráðherra Grikklands, segir
íbúa landsins þurfa að færa mikl-
ar fórnir til að koma í veg fyrir
yfirvofandi gjaldþrot. Óttast er
að efnahagskreppan í Grikklandi
geti haft skaðleg áhrif á efnahag
annarra ríkja á evrusvæðinu.
Áætlað er að lánagreiðslur til
Grikkja geti numið allt að 120
milljörðum evra á næstu þrem-
ur árum.
Grikkir þurfa að skera niður
ríkisútgjöld um 30 milljarða evra
á næstu þremur árum og er mark-
miðið að fjárlagahalli, sem var
13,6 prósent af vergri landsfram-
leiðslu á síðasta ári, verði kominn
niður í 3 prósent árið 2014.
José Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, sagði björgunarað-
gerðirnar eiga bæði að stuðla að
efnahagslegu jafnvægi í Grikk-
landi og á evrusvæðinu sjálfu.
- sm
Grikkir þurf að færa miklar fórnir til að koma í veg fyrir gjaldþrot þjóðarbúsins:
Samþykkja neyðaraðstoð frá ESB og AGS
Aðgerðir Grikkja
BANDARÍKIN Samtökin Tarik-e-Taliban, sem eru
samtök pakistanskra talibana, segjast bera
ábyrgð á bílsprengjunni sem sprengja átti á
Times Square í New York í fyrrakvöld. Þetta
kom fram á myndskeiði sem birtist á vefnum
Youtube í gær.
Samkvæmt myndbandinu var sprengjunni
komið fyrir á torginu til að hefna tveggja leið-
toga al-Kaída-samtakanna, sem drepnir voru í
Írak fyrir skömmu og fyrir loftárásir Banda-
ríkjamanna á talibana í Pakistan.
Bandarísk stjórnvöld leggja nú allt kapp á
að upplýsa hver stóð að baki bílasprengjunni.
Vegna bilunar í kveikjubúnaði sprakk hún ekki.
Þúsundir manna voru samankomnar á torginu
og mátti litlu muna að illa færi.
Bæði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna,
og Michael Bloomberg, borgarstjóri New York,
þökkuðu skjótum viðbrögðum lögreglu borgar-
innar.
„Við vorum heppin,“ sagði Bloomberg og þakk-
aði um leið vökulum augum íbúa borgarinnar. Þá
sagði hann að þótt sprengjan virtist hafa verið
„viðvaningslega gerð” hefði hún getað banað þús-
undum. Alríkislögreglan rannsakar fjölmargar
vísbendingar sem hún hefur komist yfir, meðal
annars hár og fingraför sem fundust í bifreið-
inni. Þá er verið að fara yfir allar upptökur úr
nálægum eftirlitsmyndavélum.
Að sögn yfirvalda var sprengjan gerð úr flug-
eldum, própangasi, bensíni og með tímastilli.
Henni var komið fyrir í grænni Nissan Pathfind-
er bifreið sem var lagt á horni 45. strætis og
7. breiðgötu. Götusali sá reyk leggja frá bílnum
um kvöldmatarleytið og lét lögreglu vita. Bíllinn
var skilinn eftir í gangi og með blikkandi hættu-
ljós. Sprengjusérfræðingar voru kallaðir til og
var stór hluti hverfisins lokaður af. Hann var
þó opnaður aftur eftir að bifreiðinni hafði verið
komið fyrir á öruggum stað. Flestum sýningum
á Broadway var haldið áfram.
kristjan@frettabladid.is
Bílsprengjan sprakk ekki
vegna galla í kveikjubúnaði
Samtökin Tarik-e-Taliban segjast í myndbandi bera ábyrgð á bílsprengjunni sem komið var fyrir á Times
Square í New York í fyrrakvöld. Bandaríska alríkislögreglan rannsakar allar vísbendingar. Galli í kveikju-
búnaði varð til þess að sprengjan sprakk ekki en hún hefði getað drepið þúsundir sem voru á torginu.
VIÐSKIPTI Íslandsbanki ætlar að
hasla sér völl í Bandaríkjunum
með fjármálaráðgjöf við fjárfesta
í sjávarútvegi og
jarðvarmaorku.
Til stendur að
opna skrifstofu í
New York og segir
Birna Einarsdótt-
ir, bankastjóri
Íslandsbanka, að
ímynd Íslands á
þessum vettvangi
hafi ekki laskast
þrátt fyrir banka-
hrun. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Íslandsbanki hefur einbeitt
sér að þjónustu við fyrirtæki
sem starfa í sjávarútvegi og í
tengslum við jarðhita.
Ef allt gengur að óskum opnar
skrifstofan á næstu vikum. - ghh
Íslandsbanki í útrás:
Skrifstofa opni
í New York
SAMGÖNGUR Flugvélar Flugfélags
Vestmannaeyja sem sinna sjúkra-
flugi milli lands og eyja hafa ekki
haft leyfi til þess að fljúga frá því
á föstudag samkvæmt fréttavefn-
um suður.net.
Þar er haft eftir framkvæmda-
stjóra Flugfélags Vestmannaeyja,
Valgeiri Arnórssyni, að Flug-
málastjórn sé að skoða umbeðin
gögn og vonar að hægt verði að
byrja að fljúga aftur í dag.
Vísir greindi frá því á laugar-
dag að kalla þurfti þyrlu Land-
helgisgæslunnar út til þess að
sækja alvarlega veikan mann
aðfaranótt laugardags. Þyrlan
þurfti að sækja manninn þar sem
báðar sjúkraflugvélarnar í Vest-
mannaeyjum máttu ekki fljúga.
Sjúkraflugvélar kyrrsettar:
Vonandi flogið
aftur í dag
BIRNA
EINARSDÓTTIR
Bandarísk stjórnvöld hafa lengi óttast að Times
Square í New York, sem hefur verið kallað hjarta
borgarinnar, yrði fyrir hryðjuverkaárás. Torgið er um
sex kílómetra frá staðnum þar sem Tvíburaturnarnir
stóðu og er afar vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Um 37 milljónir manna heimsækja torgið á hverju
ári og þegar mest lætur getur mannmergðin orðið
svo mikil að erfitt getur verið að komast um á torg-
inu. Meira en þrjátíu leikhús eru nálægt torginu
og hefur gatnamótum 7. breiðstrætis og 42. götu
verið lýst sem krossgötum heimsins.
Torgið var eitt sinn kallað Longacre Square en
núverandi nafn fékk það eftir að New York Times
opnaði skrifstofu sína þar árið 1904. Mörg ár eru
síðan blaðið flutti sig um set.
Talið er að allt að ein milljón manna komi þar
saman á hverju ári til að fagna áramótum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem torgið er rýmt af
ótta við sprengjuárás. Í desember árið 2009 var því
lokað í stutta stund þegar grunur lék á að sprengja
gæti verið falin í númerslausum bíl sem stóð þar.
Sá ótti reyndist óþarfur.
Times Square – krossgötur heimsins
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
14°
10°
9°
12°
8°
10°
10°
20°
8°
20°
28°
35°
10°
8°
27°
9°
Á MORGUN
3-8 m/s.
MIÐVIKUDAGUR
5-10 m/s.
78
8
8
8
9
6
6
6
6
7
3
7
10
8
7
5
5
3
3
4
7
12
12
10
8
10
10
11
12
14 16
RÓLEGT VEÐUR
Veður verður ró-
legt í vikunni en
búast má við dá-
lítilli vætu af og til,
einkum norðan
og vestan til. Það
lítur út fyrir að Suð-
austurland verði í
algjörum sérfl okki
hvað sólskin og
hita varðar en á
fi mmtudag gæti
hitinn þar náð allt
að 18°C.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
■ Hætta þarf við bónusgreiðslur til ríkisstarfsmanna.
■ Minnka þarf árlegar uppbætur til fólks og tekjuhærri einstaklingar fá alls
engar uppbætur.
■ Hætt er við launahækkanir til ríkisstarfsmanna næstu þrjú árin.
■ Hækka virðisaukaskatt úr 21 prósenti í 23 prósent.
■ Hækka skatta á eldsneyti, áfengi og tóbaki um 10 prósent.
■ Leggja skatt á ólöglegar byggingarframkvæmdir.
SPRENGJAN GERÐ ÓVIRK Á stærri myndinni má sjá mann úr sprengjudeild lögreglunnar gera sprengjuna óvirka en
á innfelldu myndinni má sjá þegar bifreiðin var dregin burt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 30.04.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,3981
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,37 127,97
195,25 196,19
169,57 170,51
22,779 22,913
21,587 21,715
17,633 17,737
1,3464 1,3542
192,35 193,49
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Nýr Nicorette plástur
fæst nú 25 mg
og hálfgagnsær
Nýt
t!
Nicorette® nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til að auðvelda reykingafólki að venja sig af tóbaki með því
að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt. Nota má
forðaplásturinn einan og sér eða samtímis 2mg Nicorette lyfjatyggigúmmíi eða Nicorette innsogslyfi. Hámarksdagskammtur
er 1 stk forðaplástur og annað hvort 24 stk lyfjatyggigúmm eða 12 hylki af innsogslyfi.Til að ná sem bestum árangri skal fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðli. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir
nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan
háþrýsting eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette. Þungaðar konur og konur með
barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatún 2, 210 Garðabæ.
Nicorette Invisi 25 mg
Er að hærri styrkleika en fyrri
forðaplástrar frá Nicorette