Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 3. maí 2010 3 „Við teiknuðum þessi borð upphaf- lega fyrir teiknistofuna okkar. Fólk hefur spurt okkur töluvert út í þau og svo hringdu þeir í Sóló húsgögn- um í okkur í vetur og spurðu hvort við ættum eitthvað sem þeir gætu notað. Þá datt okkur í hug að vinna meira með þessi borð,“ segir Heiða Elín Jóhannsdóttir innanhússarki- tekt sem hefur ásamt Dóru Hansen samstarfskonu sinni á eittA innan- hússarkitektum þróað og hannað húsgagnalínuna Fjölnot. „Okkur langaði til að hanna hluti sem gætu elst með manni, og gætu átt mismunandi líf eftir ævi- skeiði eigandans,“ útskýrir Heiða. Þannig gæti eitt borð verið skrif- borð, fundarborð, eldhúsborð og barnaborð. Í húsgagnalínunni Fjölnot eru fjórar stærðir af borðum sem eru öll á hjólum. Einnig bekkir í sömu lengd og borðin og kollar. Við borð- in má nota flestar gerðir stóla eða bekki og kolla úr Fjölnot-línunni. Bekkina og kollana má líka nýta staka hvar sem er innandyra, í for- stofu, eldhúsi, í baðherbergi eða jafnvel sem lítil borð. Þá geta hús- gögnin bæði hentað á stofnunum eins og skólum, skrifstofum og á heimilum. Heiða og Dóra hafa einnig leik- ið sér að því að þróa húsgögnin og hafa þannig búið til gatamynstur í eina gerð af kollum. „Þannig getur fólk sett sinn eigin svip á kollinn með því að sauma í götin,“ segir Heiða. Húsgögnin verða til sölu í Sóló- húsgögnum Gylfaflöt 16-18 en jafnvel er líklegt að þau fari í sölu víðar. Heiða er innt eftir því hvort framhald verði á þróuninni. „Það gæti vel verið. Húsgögnin bjóða alveg upp á það. Línan er einföld og hægt að vinna með hana eins og við erum byrjaðar á með kollana.“ solveig@frettabladid.is Einföld, stílhrein og tímalaus Dóra Hansen og Heiða Elín Jóhannsdóttir innanhússarkitektar hafa hannað húsgagnalínuna Fjölnot. Við hönnunina huguðu þær að samspili forma, efna, notagildis og endingar. Einnig eru bekkir í línunni Fjölnot.Sumir kollarnir eru með götum sem má sauma í mynstur. Upphaflega hönnuðu Dóra og Heiða borðin fyrir teiknistofu sína eittA. Hönnun Dananna Anne Heinsvig og Christian Uldall sem hanna saman undir merkinu Helgo fæst nú í Epal en kertastjakar og snagar frá þeim hafa slegið í gegn og verið til umfjöllunar í hönnunartímaritum. www.helgo.dk Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is LUANA VINSÆLA MERKIÐ ZEITLOS BY FÆST NÚ HJÁ OKKUR Mán. - föst. kl. 9-18 Laugard. kl. 11-15 www.friform.is REYFARAKAUP FRÍFORM NÝIR TÍMAR - FERSK FORM HREINT OG KLÁRT ÞEGAR ÞIG VANTAR INNRÉTTINGU AF LAGER Á LÆGRA VERÐI 20%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.