Fréttablaðið - 03.05.2010, Page 2
2 3. maí 2010 MÁNUDAGUR
Það eru stórir árgangar að koma út
á húsnæðismarkaðinn og þó að það
sé til töluvert af húsnæði þá hentar það ekki
þeim hópi.
JÓN STEINDÓR VALDIMARSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SAMTAKA IÐNAÐARINS.
SKATTAMÁL Rúmlega þrjátíu fyrrverandi stjórnend-
ur Glitnis og Kaupþings hafa fengið bakreikning
frá skattayfirvöldum vegna sölu-
réttasamninga. Krefjast skatta-
yfirvöld að samningarnir verði
skattlagðir sem launatekjur en
ekki fjármagnstekjur. Dæmi eru
um að menn hafi hagnast um hálf-
an milljarð á samningunum. Þetta
kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær.
Skattayfirvöld hafa um nokk-
urt skeið skoðað söluréttar-
samninga sem starfsmönnum
gömlu bankanna bauðst. Vilja
þau meina að slíka samninga
beri að skattleggja sem launa-
tekjur en ekki fjármagnstekjur.
Söluréttarsamningar virk-
uðu þannig að starfsmönnum
gafst færi á að kaupa hluta-
bréf með söluréttartrygg-
ingu fyrirtækisins. Ef bréf-
in hækkuðu í verði gátu þeir
valið að eiga bréfin eða selja þau en ef þau lækkuðu
gátu þeir gengið frá samningnum sér að kostnað-
arlausu. Stjórnendurnir greiddu 10 prósenta fjár-
magnstekjuskatt þegar bréfin voru seld
en greiddu ekkert vegna söluréttarins.
Þessu vill Ríkisskattstjóri breyta og
hefur þegar unnið málið fyrir yfir-
skattanefnd og héraðsdómi.
Samkvæmt heimildum fréttastofu
Stöðvar 2 hafa nú rúmlega 30 fyrrver-
andi stjórnendur Glitnis og Kaupþings
fengið endurákvörðun opinberra
gjalda frá skattayfirvöldum
vegna samninganna. Meðal
þeirra eru fyrrverandi forstjóri
og stjórnarformaður Kaup-
þings, Hreiðar Már Sigurðs-
son og Sigurður Einarsson, og
fyrrverandi forstjóri Glitnis,
Bjarni Ármannsson. Málin
munu þó vera misjafnlega
langt á veg komin.
- ghh
Skattayfirvöld sækja að rúmlega þrjátíu fyrrverandi stjórnendum bankanna:
Stjórnendur fá milljóna bakreikninga
BRUNI Þrír íbúar komust með
naumindum út úr brennandi
húsi á Hellissandi um þrjú-
leytið í fyrrinótt en reykskynj-
ari vakti þá í tæka tíð. Eftir að
íbúar hússins komust út var
kallað eftir slökkviliðinu sem
náði fljótlega tökum á eldinum
og slökkti hann nokkru síðar.
Að sögn Svans Tómassonar,
slökkviliðsstjóra Snæfellsbæjar,
sluppu íbúarnir við reykeitrun.
Eignatjón var hins vegar tals-
vert. Talið er að kviknað hafi í
út frá helluborði.
Samkvæmt upplýsingum frá
varðstjóra í Snæfellsbæ bjó
fólkið í einbýlishúsi og er stór
hluti þess ónýtur. Enginn vafi
leikur á því að reykskynjarinn
bjargaði lífi systkinanna sem
öll voru sofandi þegar eldurinn
kviknaði í húsinu.
Eldur í húsi á Hellissandi:
Reykskynjari
bjargaði lífi
þriggja systkina
IÐNAÐUR „Það má bæta við þessa
tölfræði að þær eru teljandi á
fingrum annarrar handar íbúðirn-
ar sem hafin hefur verið bygging á
frá áramótum, ef það eru þá nokkr-
ar,“ segir Jón Steindór Valdimars-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins.
Nýjar tölur sem Samtök iðnað-
arins hafa tekið saman yfir þróun
íbúðabygginga 1995-2009 undir-
strika að birtingarmynd hrunsins
er hvergi skýrari en á fasteigna-
markaði. Árið 2009 var aðeins hafin
bygging á 208 íbúðum hér á landi.
Árin 2005 til 2007 voru þær hins
vegar 3.700 til 4.500 á ári. Með-
altal síðustu tuttugu ára sýnir að
hafin var bygging á tæplega 2.000
íbúðum ár hvert. Samtökin telja eitt
aðaláhyggjuefnið að innan skamms
tíma geti markaðurinn ekki svarað
eftirspurn ungs fólks sem hyggst
kaupa sér íbúð.
Jón Steindór segir að á undan-
förnum árum hafi vissulega verið
byggt langt yfir meðaltali síðustu
áratuga. „En þessar tölur segja
okkur engu síður að það styttist
mjög í að það verði skortur á íbúða-
húsnæði. Á síðustu árum byggðum
við í samræmi við tíðarandann og
því vantar minni og viðráðanlegri
íbúðir inn á markaðinn. Það eru
stórir árgangar að koma út á hús-
næðismarkaðinn og þó að það sé til
töluvert af húsnæði þá hentar það
ekki þeim hópi.“
Fasteignamarkaðurinn hefur
lengst af þróast í samræmi við
náttúrulega fjölgun þjóðarinnar
og nýbyggingar verið um 2.000 á
ári. Nú stefnir hins vegar í að það
myndist „skalli“ á markaðnum, því
þegar eftirspurnin eykst að nýju
vantar íbúðir af hagstæðri stærð.
„Þá má líka spyrja hverjir eiga að
byggja þær íbúðir,“ segir Jón Stein-
dór. Hann segir að þrátt fyrir að
stór verktakafyrirtæki í bygging-
ariðnaði lifi ennþá, og þá í gegnum
gríðarlegan niðurskurð, þá sé staða
minni verktaka alvarlegri. „Það eru
mörg lítil fyrirtæki í þessari grein
sem eru stopp eða horfin. Það gæti
orðið hægara sagt en gert að koma
greininni í gang að nýju ef þetta
heldur áfram sem horfir.“
Bjarni Már Gylfason, hagfræð-
ingur hjá Samtökum iðnaðarins,
telur að það taki eitt til tvö ár fyrir
fasteignamarkaðinn að éta upp
offramleiðslu síðustu ára. Það sé
heldur ekki vitað hversu mikið af
íbúðarhúsnæði standi autt. „Ég held
að það sé ekki eins mikið og margir
halda fram.“ svavar@frettabladid.is
Engar íbúðir verið
byggðar á þessu ári
Á árunum 2004 til 2007 voru byggðar um 12.000 íbúðir. Áratugina á undan
voru þær um 16.000. Ekkert hefur verið byggt í ár. Undirliggjandi þörf er fyrir
lítið og ódýrt húsnæði fyrir kynslóðirnar sem eru að koma inn á markaðinn.
Íbúðabyggingar 1995-2009
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
4500
4000
3500
3000
2500
2000
1500
1000
500
0
Byrjað á árinu
Fullgerðar íbúðir
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
■ Síðastliðin tuttugu ár
hafa að jafnaði verið
byggðar um 2.000
íbúðir á hverju ári.
■ Þegar hæst lét árin
2005-2007 voru að
jafnaði byggðar ríflega
4.000 íbúðir; mest 2007
tæplega 4.500 íbúðir.
■ Í fyrra voru byggðar
208 íbúðir en til víðbót-
ar voru kláraðar 898
íbúðir frá fyrri árum.
■ Mikið var byggt af dýru
4-5 herbergja íbúðum.
■ Þörfin næstu tvö til
þrjú árin er ódýrt 2-3
herbergja húsnæði.
ELDGOS Hraunið sem rennur úr
eldstöðinni í Eyjafjallajökli er
talið vera komið að brúninni við
Gígjökul. Sjóðandi bræðsluvatn-
ið rennur niður brattann og ofan
í Markarfljót og leggur gufu-
mökkinn af jöklinum og fljót-
inu. Hraunrennslið er talið vera
komið um þrjá kílómetra frá upp-
tökum.
Ekkert bendir til gosloka og í
skýrslu jarðvísindamanna frá
því á laugardag segir að virkni
gossins sé svipuð og síðustu átta
daga og gígur hlaðist upp í nyrsta
gígnum.
Hraunið rennur hægt frá gígn-
um og fer mest orka þess í að
bræða ís. Þrátt fyrir gjóskufall í
nærsveitum, þá er kraftur goss-
ins og gjóskuframleiðsla aðeins
brot af því sem átti sér stað fyrstu
daga gossins.
Í flugi TF SIF í gær sást
gosmökkur í fjóra til rúm-
lega fimm kílómetra hæð við
Eyjafjallajökul.
Fréttir frá því í gærmorgun
sögðu frá því að gosmökkurinn
væri dekkri en áður sem bendir
til að meiri gjóska hafi þá komið
úr eldstöðinni. - shá
Eldgosið í Eyjafjallajökli er stöðugt og ekkert bendir til gosloka:
Sjóðandi vatn berst í Markarfljótið
GÍGJÖKULL Flóðið kom niður jökulinn á fyrsta degi en ef heldur áfram sem horfir
mun hraunelfurinn úr gígnum koma hér niður. Ekki er vitað hvenær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fíkniefni fundust á Akureyri
Lögreglan á Akureyri var kölluð út
í heimahús í gærmorgun vegna
hávaða. Í framhaldi af því var gerð
húsleit og fundust á heimilinu nokkur
grömm af kannabisefnum auk amfet-
amíns. Tveir piltar á táningsaldri voru
handteknir í kjölfarið og yfirheyrðir
af lögreglu. Rannsókn málsins telst
lokið.
Margir á ferli í Eyjum
Margt fólk var á ferli í miðbæ Vest-
mannaeyja um helgina en lítið um
árekstra á milli manna. Lögreglan var
tvisvar kölluð til vegna slagsmála en
í báðum tilfellum höfðu slagsmála-
hundarnir horfið á braut áður en
lögreglan kom á staðinn.
LÖGREGLUMÁL
VERSLUN Magnús G. Friðgeirsson,
formaður samtakanna Miðborgin
okkar, er afar ánægður með skjót
viðbrögð ríkis, borgar og annarra
hagsmunaaðila við erfiðleikum í
ferðaþjónustu í kjölfar gossins
í Eyjafjallajökli. Ákveðið hefur
verið að setja milljarð króna í
landkynningu erlendis.
Samtökin Miðborgin okkar
blésu til fundar í lok síðustu viku
þar sem forkólfar ferðaþjónust-
unnar og hagsmunaaðilar mið-
borgarinnar skiptust á upplýs-
ingum.
„Ég fann fyrir mikilli sam-
heldni og finnst ótrúlega margt
hafa áunnist á skömmum tíma,“
segir Magnús. Hann segir að
talsvert hafi slegið á viðskipti
í miðborginni eftir að gosið í
Eyjafjallajökli hófst. „Þar af
leiðandi fannst okkur tilefni til
samráðs og samstarfs. Fyrir gos
var búist við einhverju besta
ferðamannasumri nokkru sinni.
Með því að grípa til skjótra
aðgerða er vonandi hægt að
koma í veg fyrir að það hlaupi
frá okkur.“ - ve
Samtökin Miðborgin okkar:
Töluvert dregið
úr viðskiptum
Jón, eruð þið ekki bara næst-
bestir?
„Nei, við erum langbestir.“
Jón Gnarr er formaður Besta flokksins.
Besti flokkurinn mælist næststærsti
flokkurinn í Reykjavík samkvæmt könnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
SJÁVARÚTVEGUR Landssamband
smábátaeigenda lýsir yfir von-
brigðum með að tillaga Einars
K. Guðfinnssonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokks, um að 6.000
tonna strandveiðikvóti komi til
viðbótar við útgefinn heildarafla
hafi verið felld á Alþingi.
Frumvarp sjávarútvegsráð-
herra um strandveiðar hefur
verið samþykkt. Reglugerð verð-
ur gefin út fljótlega og umsókn-
ir um leyfi afgreiddar frá Fiski-
stofu. Gera má ráð fyrir að
fyrsti dagur strandveiða verði
10. maí.
Mikill áhugi er fyrir veiðunum
eins og í fyrrasumar og talið að
bátar á sjó muni losa sjöunda
hundraðið. - shá
Strandveiðilög samþykkt:
Vonbrigði með
höfnun tillögu
KAUPÞINGSMENN
Sigurður Einarsson og
Hreiðar Már Sigurðsson
eru meðal þeirra sem
fengu endurákvörðun
opinberra gjalda frá
skattayfirvöldum.
SPURNING DAGSINS
Sígild ævintýri
ásamt geisladiski
í hverjum mánuði.
Fyrsta bókin
á aðeins
kr!
A
R
G
H
! 0
41
0
Skráðu þig á: klubbhusid.is
eða í síma 528-2000