Fréttablaðið - 03.05.2010, Page 31
híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010 3
„Þetta er mjög sniðug lausn og á
sér enga hliðstæðu í heiminum
eftir því sem ég kemst næst,“ segir
Einar Gíslason, sem hefur hannað
línu af festingum fyrir sólpalla
sem eru hvorki negldar né skrúf-
aðar á pallinn og skilja því ekki
eftir sig nein göt í viðnum.
Línan gengur undir heitinu
DONK og hentar fyrir körfur,
potta, blómaskreytingar, ljós og
sóltjöld, svo eitthvað sé nefnt að
sögn Einars. „Það er svakalega
auðvelt og fljótgert að festa þetta,
setja upp og taka niður,“ bætir
hann við.
En hvernig kviknaði hugmynd-
in? „Konan mín kom dag einn heim
með körfur úr Húsasmiðjunni sem
ég átti að hengja upp og komst þá
að því að ekkert handhægt var til á
heimilinu, nema einhverjar skrúf-
ur og þær hentuðu bara alls ekki í
því tilviki. Þannig datt mér í hug
að hanna þessa línu.“
Festingarnar eru þegar komn-
ar í sölu hérlendis og Einar og við-
skiptafélagi hans, Gunnar Krist-
mannsson, eru með áform um að
hefja útflutning til Norðurland-
anna. „Við fórum í kynningarferð
til Danmerkur um daginn og erum
nú ásamt Nýsköpunarmiðstöð að
skoða fleiri möguleika.“ - rve
Handhægt fyrir heimilið
Festingarnar er bæði auðvelt að setja
upp og taka niður.
Línan hentar fyrir blómaskreytingar,
potta og fleira.
„Stacco-stóllinn hefur lifað í þrjá-
tíu ár, frá því að hann var var fyrst
kynntur í Kaupmannahöfn á sýn-
ingu og hefur selst í tvö til þrjú
hundruð þúsund eintökum,“ segir
Pétur B. Lúthersson, húsgagna- og
innanhússarkitekt. Fullyrða má að
fáir íslenskir stólar hafi náð ann-
arri eins útbreiðslu því hann fyllir
sali vítt um heim. Nú á hann þrjá-
tíu ára hönnunarafmæli og í til-
efni þess er Epal að láta fram-
leiða hann að nýju.
Stacco-stóllinn er úr
stálgrind en með bólstr-
aðri setu og baki og stafl-
ast einstaklega vel. Pétur
segir það síðastnefnda
höfuðástæðu
þess að hann
fór í fram-
leiðslu á sínum
tíma. Stóllinn
var upphaf-
lega smíðaður
hjá Húsgagna-
gerð Steinars
Jóhannsson-
ar sem var í
Skeifunni 6, þar Epal sem er nú.
Afgreiðslustúlka þar var Ingibjörg
Friðjónsdóttir og hún vinnur í Epal
í dag.
Um tíu ára skeið var Stacco
búinn til í Danmörku. „Fram-
leiðsluleyfið var selt til fyrirtæk-
isins Labofa A/S,“ rifjar Pétur
upp og segir stólinn hafa gengið í
gegnum ýmiss konar örlög í gegn-
um tíðina. Um tíma hafi
Penninn verið með
einkaumboð fyrir
hann. „Þessi stóll
hefur verið vin-
sæll bæði hér-
lendis og erlend-
is,“ segir hönnuð-
urinn sem á von á
að haldið verði upp
á afmælið með
smá viðhöfn. „En
við erum að bíða
eftir nýjum ein-
ingum í setur og
bök svo það verð-
ur ekki fyrr en
upp úr miðjum
maí.“ - gun
Haldið upp á þrjátíu
ára hönnun Stacco
„Stacco hefur selst í tvö til þrjú hundruð þúsund eintökum,“ segir Pétur B. Lúthersson
húsgagnahönnuður.
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Epal er að
láta fram-
leiða Stacco
að nýju.