Fréttablaðið - 03.05.2010, Síða 46

Fréttablaðið - 03.05.2010, Síða 46
26 3. maí 2010 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 SJÓNVARPSÞÁTTURINN LÁRÉTT 2. margskonar, 6. kusk, 8. til sauma, 9. atvikast, 11. tveir eins, 12. vaða, 14. brestir, 16. tveir eins, 17. hyggja, 18. drulla, 20. org, 21. slabb. LÓÐRÉTT 1. fyrst fædd, 3. í röð, 4. hugarró, 5. hár, 7. galli, 10. sprækur, 13. ílát, 15. hvolf, 16. hald, 19. guð. LAUSN LÁRÉTT: 2. ýmsu, 6. ló, 8. nál, 9. ske, 11. ll, 12. torfa, 14. snark, 16. tt, 17. trú, 18. aur, 20. óp, 21. krap. LÓÐRÉTT: 1. elst, 3. mn, 4. sálarró, 5. ull, 7. ókostur, 10. ern, 13. fat, 15. kúpa, 16. tak, 19. ra. Gagnrýnandi Los Angeles Times er hrifinn af kvikmyndinni The Good Heart eftir Dag Kára. Myndin var frumsýnd í New York í síðustu viku eins og Fréttablað- ið greindi frá. LA Times segir að Degi Kára takist ágætlega upp með að blanda saman dramatík og húmor og gefur myndinni þrjár stjörnur af fimm mögulegum. Leikararnir Brian Cox og Paul Dano fá mikið hrós fyrir frammi- stöðu sína í myndinni. Sömuleiðis er gagnrýnandinn hrifinn af Degi Kára. Hann fær meðal annars hrós fyrir að koma áhorfendanum á óvart, þannig sé önd myndarinnar mikill senuþjófur og sömuleiðis franska leikkonan Isild Le Besco sem kemur upp á milli aðalpers- ónanna tveggja. „Dagur er fædd- ur í París en alinn uppi á Íslandi – sá bakgrunnur hefur eflaust haft mikil áhrif á verk hans – er ákaf- lega snjall á hið sjónræna og hand- ritasköpun en nær ekki alveg sömu tökum á leikurunum sínum,“ skrif- ar gagnrýnandinn. Að mati LA Times er The Good Heart ekki fullkomin mynd en hún vinni vel á. „Degi Kára virðist allt- af takast að draga fram einhverj- ar óvæntar hliðar í framvindunni, þar með talin er öndin.“ LA Times hrifið af Degi Kára ÞRJÁ STJÖRNUR Í LA Dagur Kári og kvik- myndin The Good Heart fá fína dóma í Los Angeles Times. Degi er hrósað fyrir sína sýn á hið sjónræna og handritið. „Þetta byrjaði fyrir tveimur árum þegar ég var sextán ára gamall og heyrði plötuna () með Sigur Rós,“ segir Maksym Dzitsiuk, annar tveggja meðlima hljómsveitar- innar The Awe of the Landscape from the Foothills of Mars, Where Harvesters Eat Open-Face Sand- wiches frá Úkraínu. Hljómsveitin hefur undanfar- ið tekið upp lög með íslenskum hljómsveitum og birt á vefsíðunni Youtube. Síðast flutti hljómsveit- in lagið From Now on með Diktu, sem bendir til þess að Maksym og Alex, félagi hans í hljómsveit- inni, séu með puttann á púlsinum, en Dikta er vinsælasta hljómsveit landsins í dag. „Sigur Rós hafði gríðarleg áhrif á mig – ég hafði aldrei upplifað svona sterkar tilfinningar gagn- vart tónlist,“ segir Maksym. „Í kjölfarið gaf ég Alex, skólafélaga mínum, plötuna og komst að því að hann upplifði sömu tilfinningar og ég. Sigur Rós varð uppáhalds- hljómsveitin okkar. Hún er samt meira en hljómsveit eða góð tón- list. Hún er eitthvað meira – eitt- hvað sem breytti lífi okkar.“ Maksym segir að þeir hafi í sameiningu byrjað að leita að tón- list sem myndi hafa svipuð áhrif á þá. „Við áttuðum okkur fljótlega á því að böndin sem við kunnum að meta komu flest frá Íslandi: Sigur Rós, Ólafur Arnalds, Múm, smá af Björk, Parachutes og Dikta,“ segir hann. „Alltaf þegar við uppgötv- uðum nýja hljómsveit urðum við heillaðir.“ Félagarnir byrjuðu þá að leika tónlistina sjálfir, en þeir höfðu enga reynslu af hljóðfæraleik. Maksym fékk lánaðan gítar hjá bróður sínum og Alex lék á píanó móður sinnar. „Við byrjuðum að spila einfaldari hluta laganna eftir eyranu,“ segir Maksym. „Það var erfitt í fyrstu, en við náðum flóknari hlutunum síðar. Við eydd- um líka öllum peningunum okkar í hljóðfæri og búnað og getum núna spila fjölbreytta tónlist. Við erum byrjaðir að semja eigin lög og ætlum að taka upp nokkur lög í viðbót með Sigur Rós, Diktu og fleiri hljómsveitum. Við búum reyndar langt frá hvor öðrum og það hefur gert okkur erfitt fyrir, en við látum það ekki á okkur fá.“ En stendur til að koma til Íslands? „Já, klárlega. Eftir að við sáum myndina Heima með Sigur Rós dreymir okkur um að heimsækja Ísland!“ atlifannar@frettabladid.is MAKSYM DZITSIUK: ÍSLENSK TÓNLIST BREYTTI LÍFI OKKAR Lærðu að spila til að flytja lög Sigur Rósar og Diktu TAKA ÍSLENSK LÖG Maksym og Alex eru frá Úkraínu og flytja íslensk lög á Youtube. „Þetta verður bara mjög spenn- andi. Við ætlum að hafa þetta svo- lítið hressilegt,“ segir Grímur Atla- son, nýráðinn framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Air- waves. Undirbúningur fyrir hátíð- ina, sem fer fram í Reykjavík 13. til 17. október, er nú í fullum gangi. Ný og endurbætt heimasíða er komin á Netið og miðasalan fer í gang 11. maí. Sama dag verður til- kynnt um fyrstu hljómsveitirnar sem mæta til leiks. Samningur Hr. Örlygs við Ice- landair vegna Airwaves var ekki framlengdur þrátt fyrir að fyrirtækið hefði séð um skipu- lagninguna alla tíð. Grímur, sem hefur mikla reynslu af tónleika- haldi, útilokar ekki að einhverjar breytingar verði gerðar á hátíð- inni. „Það breytist alltaf þegar það er eitthvað nýtt skipulag og nýtt fólk kemur að þessu. Hátíðin þarf að vera í stöðugri þróun því það eru allir að halda góð festivöl. Við erum í samkeppni við gríðar- lega öfluga aðila og það þýðir ekk- ert annað fyrir okkur en að vera á tánum.“ Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Airwaves, Eldar Ástþórsson, hafi verið ráðinn til starfa og muni taka þátt í skipu- lagningunni á nýjan leik eftir nokkurra ára hlé. Grímur kann- ast ekki við að hafa ráðið hann til starfa. „Ég vil ekkert tjá mig um það. Við erum bara að skoða góða aðila,“ segir hann og bætir við að Róbert Aron Magnússon og Egill Tómasson muni halda áfram störfum sínum við hátíðina. - fb GRÍMUR ATLASON Miðasala á Iceland Airwaves-hátíðina hefst 11. maí. Sama dag verð- ur tilkynnt um fyrstu hljóm- sveitirnar sem spila þar. Grímur lofar hressilegri Airwaves-hátíð Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Eldgosið í Eyjafjallajökli heldur áfram að stríða ferðalöngum á Íslandi og sérfræðingar telja að askan frá gosinu geti enn haft áhrif á flugsamgöngur. Hera Björk Þór- hallsdóttir, Eurovision-fari okkar Íslendinga, virðist taka fullt mark á þeim því hún hætti við að koma fram í glæsi- legu Eurovision- partíi sem haldið var í London á laugardag- inn. Í stað- inn mættu fulltrúar Kýpur. Hera hætti ekki bara við tónleikana í London því hún hafði einnig gert ráð fyrir að koma fram í svipuðu teiti í Belgíu. Af því varð hins vegar ekki vegna hins margum- rædda eldgoss. Í Belgíu komu sjö keppendur frá allri Evrópu fram í sjónvarpsþættinum Studio TVL sem sýndur er beint á belgísku sjónvarps- stöðinni TV Limb- urg. Nú er bara að vona að íbúar Bret- lands og Belgíu hafi aðgang að You Tube því þar er hægt að finna myndband Heru og Kvikmyndaskóla Íslands þar sem Valdimar Örn Flygenring fer á kostum. Og meira af Eurovision því eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu þá hyggst Euroband Friðriks Ómars og Regínu Óskar koma fram á sérstöku Eurovision- kvöldi á skemmtistaðnum Latter daginn fyrir úrslitakvöld Eurovision. Eurobandið verður síður en svo eitt um sviðið því með þeim troða upp hinar einu sönnu Bobbysocks auk fjölda annarra nor- rænna Eurovision- stjarna. -fgg FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég horfi aldrei á sjónvarps- þætti nema á DVD og þar er Supernatural fremstur í flokki. Hann fjallar um tvo bræður sem ferðast vítt og breitt um Ameríku og berjast við yfirnátt- úruleg öfl.“ Pétur Örn Guðmundsson söngvari.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.