Fréttablaðið - 15.06.2010, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 15. júní 2010 11
Það er800 7000 • siminn.is
Facebook, YouTube, Google, tölvupóstur og
fréttamiðlarnir fylgja þér á ferðalaginu í gegnum
stærsta 3G dreifikerfi landsins.
Farðu á netið í
glænýjum 3G síma
Sértilboð Stökktu til
Costa del Sol
22. júní
Frá aðeins kr. 69.900 í 14 nætur
14 nátta ferð – ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu
sætunum 22. júní í 14 nætur til eins allra vinsælasta
sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol. Costa
del Sol býður allt það helsta sem maður getur óskað
sér í fríinu. Þú bókar flugsæti og gistingu og 4 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu þetta
einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla
áfangastað í sumarfríinu. Fjölbreytt önnur sértilboð
jafnframt í boði bæði 22. júní og 6. júlí.
Ath. takmarkaður fjöldi sæta og
gistingar í boði - verð getur hækkað
án fyrirvara.
Kr. 69.900 – 14 nátta ferð
Verð m.v. m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2–11 ára, í íbúð með 1 svefnherbergi í 14 nætur. Verð m.v. 2–3 í herbergi / stúdíó / íbúð kr. 74.900.
Sértilboð 22. júní.
FRÁ AFGANISTAN Meðal efnanna sem hafa fundist í Afganistan er líþín, sem er gríðar-
lega verðmætt og er meðal annars notað í farsímarafhlöður.
AFGANISTAN, AP Gríðarlega stórar
námur hafa fundist í Afganistan.
Meðal efna sem þar er að finna eru
járn, kopar, gull og líþín.
Þetta kemur fram í niðurstöð-
um teymis á vegum bandarískra
stjórnvalda, sem segir námurnar
vera að minnsta kosti 900 milljarða
Bandaríkjadala virði.
Námurnar veita mikla mögu-
leika og gætu skipt sköpum við að
koma landinu úr mikill fátækt, að
mati Bandaríkjamanna. Rannsókn-
ir á námunum hófust árið 2006 og
lágu niðurstöðurnar fyrir á síðasta
ári. Spurningar hafa því vaknað
um hvers vegna fyrst er greint
frá málinu núna. Jafnvel er talið
að það sé gert til þess að auka til-
trú fólks á stríðinu í Afganistan, og
því að það sé þess virði að vinna.
Það mun þó taka mörg ár að
byggja upp námuiðnað í landinu
ef af verður. Ekki eru fullnægj-
andi lög og reglur til að laða fjár-
festa að námunum auk þess sem
miklu þyrfti að eyða í uppbygg-
ingu samgangna á svæðinu.
Þá er talið að námurnar gætu
orðið til þess að talibanar muni
leggja enn meira á sig við að ná
yfirráðum á svæðinu. - þeb
Stórar námur ýmissa efna fundust í Afganistan:
Miklir möguleikar í
námum í Afganistan