Fréttablaðið - 23.06.2010, Side 10
23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR10
ELDUR Í ARIZONA Slökkviliðsmenn
fylgdust með þegar skógareldur brann
skammt frá bænum Flagstaff í Arizona,
Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hafðu samband
VIÐSKIPTI Íslenska vatnsátöppunar-
fyrirtækið Icelandic Water Hold-
ings hefur gert dreifingarsamning
við rússneska drykkjavörufyrir-
tækið ZAO Nectar-Trade um dreif-
ingu á vatni á flöskum undir merkj-
um Icelandic Glacial í Rússlandi.
Vatninu, sem er úr lind í landi
Hlíðarenda við Þorlákshöfn á Suð-
urlandi, er tappað þar á flöskur í
verksmiðju sem tekin var í gagnið
síðla árs 2008. Feðgarnir Jón Ólafs-
son, löngum kenndur við Skífuna,
og sonur hans, Kristján, eiga um
áttatíu prósenta hlut í fyrirtækinu
en bandaríski drykkjarvörurisinn
Anheuser Busch fimmtung. Samn-
ingurinn í Rússlandi er einn af
þeim stærstu hjá Icelandic Water
Holdings en vatninu úr Ölfusinu er
nú dreift í öllum ríkjum Bandaríkj-
anna og fæst að auki víða í Evrópu.
Þá hefur það birst í fjölda kvik-
mynda og sjónvarpsþátta í Banda-
ríkjunum.
ZAO Nectar-Trade selur hágæða-
vörur og er með samning við bens-
ínstöðvar vítt og breitt um Rúss-
land. Gert er ráð fyrir að íslenska
vatnið verði til sölu fyrir austan í
og við Moskvu og St. Pétursborg til
að byrja með. - jab
Íslensku vatni úr Ölfusinu dreift í stærstu borgum Rússlands:
Vatnið komið til stórveldanna
VERKSMIÐJAN RÆST Jón Ólafsson,
stjórnarformaður vatnsfyrirtækisins,
sýnir Össuri Skarphéðinssyni, þá iðnað-
arráðherra, átöppunarverksmiðjuna við
vígslu hennar í september 2008.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SAMFÉLAGSMÁL Hitt húsið stendur
fyrir þríliða sumardagskrá fyrir
ungt fólk í júní og júlí með það
að markmiði að virkja ungt fólk
félagslega og þjálfa það í að setja
sér markmið.
„Þetta er spurning um að bregð-
ast við ástandinu eins og það er í
samfélaginu í dag,“ segir Agnar
Jón Egilsson, leikstjóri og hóp-
stjóri í Hinu húsinu. „Það eru allt
að 1.500 manns á aldrinum 17 til
24 ára atvinnulausir í Reykjavík
og það verður að koma til móts við
þá.“
Í fyrsta lagi er boðið upp á hópa-
starf ungmenna fyrir ungmenni
og segir Agnar ekkert þar vera
ómögulegt: „Þau skipta sér í hópa
eftir áhugasviðum. Ef þig lang-
ar í strandblak þá finnur þú ein-
hvern með þér í það. Ef þig langar
að prjóna undir tré þá er það líka
eitthvað sem er hægt að gera,“
segir hann.
Síðan eru námskeið sem hald-
in eru á vegum fagfólks. Þar má
nefna heimildarmyndagerð, fata-
breytingar og dulvísindanámskeið
og eru þau öll ókeypis. Í þriðja lagi
eru í boði námskeið sem Hitt húsið
er með í sambandi við Vinnumála-
stofnun og þjálfar fólkið í að setja
sér markmið og framfylgja þeim,
sækja um vinnu og vera félagslega
virk í samfélaginu.
„Það sem er magnað við þetta er
að það geta allir gert allt,“ segir
Agnar. „Það þarf bara að koma sér
af stað.“ - sv
Hitt húsið býður upp á þjálfun fyrir ungt fólk sem er án atvinnu í að setja sér markmið og viðhalda þeim:
Koma til móts við atvinnulaus ungmenni
TRAUSTSÆFING Agnar Jón með hópi ungmenna Hins hússins FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REYKJAVÍK Nýtt fiskabúr verð-
ur tekið í notkun í Vesturbæj-
arlaug í dag. Mímir, vináttufé-
lag Vesturbæjar, hrinti í fyrra
af stað söfnun til að endurreisa
fiskabúr sem lengi var í anddyri
Vesturbæjarlaugar í samráði við
forsvarsmenn laugarinnar og
Reykjavíkurborg. Safnað var í
samskotabauka í anddyri laugar-
innar og víðar í Vesturbæ.
Verndari söfnunarinnar var
Gísli Halldórsson, arkitekt gamla
búrsins, en hönnuðir þess nýja
eru Bjarki Gunnar Halldórsson
arkitekt, Margrét Leifsdóttir
arkitekt og Sigurður Gunnarsson
verkfræðingur. Vígsla búrsins fer
fram klukkan 17.30 í dag.
Safnað fyrir Vesturbæjarlaug:
Sundgestir fá
fiskabúr á ný
DÓMSMÁL Karlmaður á sextugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
íkveikju. Manninum er gefið að
sök að hafa í janúar á síðasta ári
hellt bensíni inn í stigagang húss
við Tryggvagötu í Reykjavík og
kveikt síðan í.
Eldurinn breiddist út og varð
húsið alelda áður en yfir lauk.
Íbúi hússins flýði úr húsinu og
komst út heill á húfi.
Með íkveikjunni olli ákærði
eignatjóni á báðum hæðum húss-
ins og hættu á frekara eignatjóni.
- jss
Ákærður fyrir íkveikju:
Kveikti eld í
íbúðarhúsnæði