Fréttablaðið - 23.06.2010, Síða 14

Fréttablaðið - 23.06.2010, Síða 14
14 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 D ómur Hæstaréttar, um að óheimilt sé að binda lán í íslenzkum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla, hefur í raun enn aukið á óvissuna um stöðu skuldara. Enn gæti þurft að leita atbeina dómstólanna til að fá úr því skorið hvað gerist næst; hvort þeir sem tóku myntkörfu- lánin eru skyndilega miklu betur settir en aðrir skuldarar, eftir að hafa verið verst settir, eða hvort leyft verði að binda lánin við vísi- tölu eða þá hækka á þeim vextina og miða við lægstu óverðtryggða vexti. Dómurinn vekur nýjar spurningar um hvernig eftirliti með fjár- málastofnunum var háttað fyrir hrun. Hvernig má það vera að útbreitt lánsform, sem æ fleiri sóttu í eftir því sem vextir hækkuðu, reyndist ólöglegt? Af hverju gripu eftirlitsstofnanir ekki í taumana – eða þá löggjafinn, sem hefði getað breytt lögum þannig að þessi eftirsóttu lán yrðu lögleg? Burtséð frá því hvert fram- haldið verður er rétt að staldra við þá staðreynd að þeir sem fengu myntkörfulánin hefðu aldrei fengið lán til langs tíma á jafnlágum vöxtum og um ræddi, nema með verðtryggingu af einhverju tagi. Íslenzka krónan hefur reynzt svo óstöðugur og óáreiðanlegur gjaldmiðill að enginn hefur viljað lána til langs tíma nema með vísitölubindingu, viðmiðun við erlenda mynt eða þá gríð- arlega háum vöxtum, sem verja lánveitandann fyrir hugsanlegri rýrnun á verðgildi krónunnar. Þetta er það verð, sem almenningur hefur þurft að greiða fyrir ónýtan gjaldmiðil. Mörgum þóttu myntkörfulánin aðlaðandi kostur, vegna þess að með þeim fengu menn vaxtakjör svipuð og almenningi í löndum sem búa við stöðugan gjaldmiðil bjóðast. Flestir voru meðvitaðir um gengisáhættuna, en lánin voru svo miklu hagstæðari en venjuleg verðtryggð lán á íslenzkum ofurvöxtum að menn töldu sig geta þolað 20-30% gengisfall. Enginn gerði ráð fyrir að erlendir gjaldmiðlar tvöfölduðust í verði við hrun krónunnar. Þegar það gerðist, voru myntkörfulánin orðin mun síðri kostur. Eftir Hæstaréttardóminn, sem væntanlega bætir stöðu mynt- körfulánþega, benda sumir á hlutskipti þeirra sem tóku venjuleg, verðtryggð lán og hafa mátt horfa á þau hækka um margar milljónir eftir hrun, þótt alltaf hafi verið staðið í skilum. Það fólk er fórnar- lömb hruns krónunnar, ekki síður en þeir sem tóku myntkörfulánin. Gengishrunið olli verðbólgu, sem aftur olli hækkun lánanna. Það er hins vegar óskiljanlegt þegar einarðir talsmenn þess að Ísland haldi áfram að búa við krónuna leggja til að verðtrygging verði afnumin. Enginn mun lána til langs tíma í íslenzkum krónum nema hafa tryggingu fyrir því að fá endurgreitt í jafnverðmætum krónum og hann lánaði. Einhvers konar verðtrygging, eða þá ofur- vextir, verður hlutskipti okkar ef við kjósum að búa áfram við krón- una. Að halda öðru að almenningi er tóm blekking. Aðgerðir til að mæta skuldavanda heimilanna, sem margir kalla eftir, eru í raun aðeins meðhöndlun á einkennum sjúkdómsins, sem felst í smáum og óstöðugum gjaldmiðli. Varanleg lækning fæst aðeins með því að skipta um gjaldmiðil. HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Á síðustu vikum hafa laun lækna verið gerð að umtalsefni í fjölmiðlum með neikvæðum og villandi upplýsingum. Nýlega var sagt frá því að meðallaun lækna hefðu lækkað um 6,9% frá síðasta ársfjórð- ungi 2008 meðan laun annarra heilbrigð- isstétta hefðu lækkað meira. Ætlunin var greinilega að leiða rök að því að læknar láti sitt eftir liggja á erfiðum tímum. Þegar málin eru skoðuð betur kemur þó annað á daginn. Samkvæmt upplýsingum frá Banda- lagi Háskólamanna hafa meðallaun félaga í samtökunum lækkað um 2,5% frá septem- berlokum 2008. Megnið af þeirri lækkun mun reyndar skýrast af lækkunum meðal heilbrigðisstétta. Ef það er rétt virðist nú þegar halla verulega á starfsfólk í heilbrigð- isþjónustunni umfram aðra. Nú er það vel þekkt að laun lækna byggj- ast að miklu leyti á vöktum og yfirvinnu en almennir launataxtar eru ekki háir. Grunnlaun sérfræðilæknis með langa starfsreynslu í kjarasamningi Læknafé- lags Íslands við ríkið eru nú 533.668. Ljóst er að margt háskólamenntað starfsfólk hjá ríkinu hefur hærri grunnlaun en læknar. Það liggur í eðli heilbrigðisþjónustunnar að hún fer fram á öllum tímum sólarhringsins alla daga vikunnar. Í ofangreindri frétt var vakin sérstök athygli á því að laun lækna á landsbyggðinni hefðu lækkað minnst. Skýr- ingin á því er líklega sú að þeir hafa mesta vaktaálag allra lækna í landinu. Er það raunverulega ætlunin að skerða verulega greiðslur fyrir vaktir lækna? Hvaða áhrif ætli það hefði á heilbrigðisþjónustuna? Fyrir nokkru var því haldið fram að greiðslur Sjúkratrygginga Íslands vegna sérfræðiþjónustu hefðu farið 700 milljón- um króna fram úr áætlun árið 2009. Þessar greiðslur byggja á gildandi samningum um sérfræðilæknisþjónustu við sjúkratryggða á Íslandi sem löng hefð er fyrir og tryggja jöfnuð og aðgengi óháð efnahag. Hið rétta varðandi fyrrgreinda fjárhæð er að við fjár- lagagerð hafði láðst að tryggja fjármagn til að uppfylla þann samning sem gerður hafði verið milli Sjúkratrygginga og Læknafélags Reykjavíkur. Í umfjöllun fjölmiðla var hins vegar ekkert um það rætt að á árinu 2009 gáfu læknar eftir 9,4% samningsbundna hækkun sem jafngildir sparnaði fyrir þjóð- félagið uppá 486 milljónir króna á ári. Þjóðfélagið stendur frammi fyrir miklum fjárhagsvanda og brúa þarf stórt fjárlaga- bil. Læknar munu ekki víkja sér undan því að taka sinn þátt í að leysa þann vanda. Það verk verður þó að byggja á sátt og sanngirni og umræðan á staðreyndum en ekki áróð- urskenndum upphlaupum. Launalækkanir í heilbrigðisþjónustu Kjaramál Steinn Jónsson læknir og formað- ur Læknafélags Reykjavíkur Erlend myntkörfulán og verðtryggð lán eru bæði birtingarmyndir ónýts gjaldmiðils. Sjúkdómseinkenni Opið: Má. - Fö. 12 - 18 Lau. 11 - 15 Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is Ónýtt eftirlit Furðu sætir að hér hafi um átta ára skeið verið veitt gengistryggð lán sem reyndust vera ólögleg. Á því virðist enginn bera ábyrgð. Valgerður Sverr- isdóttir var viðskiptaráðherra þegar lögin um gengistryggð lán voru sam- þykkt. Hún segist hafa gert sér grein fyrir að gengistryggingin hafi líklega verið óheimil en aðhafðist ekkert í málinu. Hún telur að Fjármálaeftirlitið beri ábyrgð á málinu. FME segist hins vegar enga ábyrgð bera og bendir á Neytendastofu. Hvernig væri ef einhver ráðherrann sendi FME línu og bæði stofnunina um að rökstyðja tilvist sína í stuttu máli? Hún snýst nú samt Pétri Blöndal er skapi næst að hætta á Alþingi. Hann segir starfið illa borg- að og mannskemmandi; þingmenn séu lagðir í einelti. Fyrir hvert einasta prófkjör hvarfli að honum að hætta. „Þá skulu menn reyna að fá almenni- legt fólk á þing,“ segir hann. Kannski Pétur ætti bara að gera alvöru úr hótun sinni. Sjáum þá hvort jörðin heldur áfram að snúast. Enn þá stórasta landið Íslendingum er stundum legið á hálsi fyrir þjóðrembu. Óvíða er þjóðar- stoltið bústnara en í slúðurdálknum Orðinu á götunni á Eyjunni. Þar setja menn ofan í við David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fyrir að ætla að nota aðildarviðræður Íslands að ESB til að þrýsta á að Íslending- ar borgi fyrir Icesave-reikningana. „Annaðhvort hefur Cameron vonda ráðgjafa í málefnum Íslands eða er hann einfaldlega sjálfur ólæs á bæði íslenska pólitík og íslenska þjóð- arsál,“ skrifar höfundur molans. Í hugum sumra verður Ísland greinilega alltaf nafli alheims- ins. bergsteinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.