Fréttablaðið - 23.06.2010, Qupperneq 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þessi bíll verður framvegis notað-
ur til innrása en ekki útrása þótt
fenginn sé úr peningaflutningum
útrásarvíkinga Kaupþings,“ segir
Gunnar Ólafsson, formaður og jarl
Einherja, Víkingafélags Reykjavík-
ur, um nýjan bílakost félagsins sem
er 8 strokka Ford Econoliner af fín-
ustu sort, enn angandi af peninga-
lykt síðan Kaupþing notaði hann til
fjármagnsflutninga.
„Þetta er sendibíll eins og við
þurftum fyrir okkar hafurtask;
rúmgóður fyrir víkingatjöld, sverð
og skildi, og eyðir vel af bensíni.
Inni í honum er einhvers konar
kista en ég á enn eftir að kanna
betur hvort í henni leynast faldir
fjársjóðir,“ segir Gunnar og strýk-
ur af númeraplötunni; einkanúm-
erinu Viking.
„Það muna margir eftir þessum
bíl síðan í góðærinu og tengja hann
útrásarvíkingum, en nú nota hann
alvöru víkingar til stærri hugsjóna.
Við Sveinn Hjörtur Guðfinnsson
rekum ferðaþjónustuna Landnáms-
ferðir og höfum síðastliðin ár farið
með fólk á söguslóðir víkinga þar
sem við gerum söguna lifandi. Vík-
ingabíllinn hefur því verið á ferð
um allt land í sumar og safnað liði
víkinga í öllum landsfjórðungum,“
segir Gunnar sem með Einherja
mun standa fyrir glæstri víkinga-
hátíð í samvinnu við Reykjavíkur-
borg á Miklatúni næsta sumar.
„Það er tímabært að Reykvík-
ingar haldi sína eigin víkingahá-
tíð og staðsetningin tilvalin, enda
þýðir Miklatún Grand Park á ensku
og hátíðin Grand Viking Festival.
Þar ætlum við að lyfta víkinga-
menningu á hærra plan og bjóða
upp á stærri víkingabardaga en
áður þekkist, þótt við ætlum ekki
að skera neinn á háls og hafa fjöl-
skylduna niður í minnstu börn í
huga,“ segir Gunnar sem hefur
verið ötull talsmaður víkinga á
erlendri grund, þar sem móttökur
eru höfðinglegar.
„Úti er tekið mót íslenskum vík-
ingum með viðhöfn, því við tölum
víkingamál og hér gerast sögur
víkinga. Fólk þegir því þegar við
tölum og er upp með sér yfir að
kynnast víkingum með íslensk
víkinganöfn,“ segir Gunnar sem
áfram ætlar að efla víkingavitund
Íslendinga.
„Að vera víkingur nú á tímum
er að upplifa stoltið sem í því felst.
Það vantar allt stolt í Íslendinga
og þeir þurfa að vera meðvitaðir
um uppruna sinn. Þótt við höfum
tapað einhverjum peningum eigum
við enn landið og söguna, og við
eigum skilyrðislaust að vera ríf-
andi stolt af sjálfum okkur, enda
komin af víkingum sem er glæst-
ur uppruni.“ thordis@frettabladid.is
Leitar falinna fjársjóða
Margir reka upp stór augu þegar þeir sjá kunnuglegan peningabíl útrásarvíkinga fara um landið með
bílnúmeri sem á stendur Víking, en ekki er allt sem sýnist og göfugir víkingar í landnámi nú við stýrið.
Gunnar Ólafsson jarl tryggði sér sérnúmerið Viking árið 1996 og var sá þriðji í röðinni þegar fyrst var gefinn kostur á sérnúmerum
á bíla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
ÚTSALA
Opið mánud. – föstud.
frá kl 11 – 18
Lokað á laugardögum
Kíktu, það borgar sig!
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVÍKUR
stendur þessa viku fyrir veglegri og fjölbreyttri
dagskrá í Heiðmörk í tilefni af 60 ára afmæli
þessarar útivistarperlu.