Fréttablaðið - 23.06.2010, Page 27

Fréttablaðið - 23.06.2010, Page 27
sumar og börn ● fréttablaðið ●MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2010 7 Á Íslandi eru meira en eitt hundrað söfn sem gaman er að skoða og þónokkur þeirra eru á Suðurlandi. Ekki skal van- meta þá skemmtun sem börn geta haft af fræðslu og um að gera fyrir barnafólk að velja söfn við þeirra hæfi. Barnafólk á ferðalagi um Suðurland ætti ekki láta hjá líða að heimsækja Skógasafn undir Eyjafjöllum. Torf- bærinn, sem er safn gamalla húsa alls staðar af Suðurlandi, er eins konar einkennismerki safnsins og krökkum finnst gaman að hlaupa um túnið og skoða framandi bygg- ingarstíl, hlóðaeldhús og baðstof- ur frá 19. öld. Víst er að einstakar deildir safnsins munu ekki síður slá í gegn, svo sem náttúrugripadeild- in. Í safninu má meðal annars finna safn fugla, eggja, skordýra, steina og beinagrindur sem uppsettar voru af safnaranum sem gaf safnið, Andrési H. Valberg. Sérstaka lukku gæti beinagrind af ketti safnarans vakið sem Andrés setti upp þannig að hann stendur vígalega. Hellar eru bær og hellar í Land sveit, undir Skarðsfjalli, en hellarnir eru manngerðir og ganga áhugaverðar þjóðsögur um þá. Mikið ævintýri getur verið að fara með leiðsögumanni um hellana en ábúendur hafa leyft ferðalöng- um að skoða þá. Sams konar hella má finna víðar í Árnes- og Rang- árvallasýslu og einhverjir þeirra verið mannabústaðir. Þessir hell- ar hafa verið notaðir sem hlaða, fjárhús og geymslur og margar kenningar eru um aldur hellanna. Ártöl, fangamörk og annað veggja- krot má finna í mörgum hellanna. Hella- skoðun má bóka hjá Margréti Sig- urjónsdóttur í síma 487 6583 og 861 1949. Brennu-Njáls saga er ástríða allra kynslóða og gaman að kynna söguna fyrir ungviðinu í sumarleyf- inu með lifandi upplifun. Sögusetrið á Hvolsvelli er ljómandi skemmti- legt að sækja heim en þar eru safn- gestir leiddir inn í heim víkinganna og umhverfi þeirra og lifn- aðarhættir kynntir rækilega. Sýningunni er skipt í þrjú þemu, Vík- ingastofu, Bókastofu og Njálustofu. Í Víkingastofu má meðal annars sjá dæmi um vopn og klæðnað víkinganna og eftirmynd höfðingjaseturs frá því um 1100. - jma Fræðandi og góð skemmtun Sögusetrið á Hvolsvelli veitir ungum sem öldnum innsýn inn í líf víkinga. Munkur ritar Íslendingasögu á Sögusýn- ingunni á Hvolsvelli. Sniðugt er að nýta útisvæði safna, tún og slíkt, til að leyfa börnunum að leika sér. Gaman er að skoða gömlu húsin í Skógasafni undir Eyjafjöllum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.