Fréttablaðið - 23.06.2010, Qupperneq 46
30 23. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SUMARFRÍIÐ
LÁRÉTT
2. plat, 6. samtök, 8. aur, 9. æxlun-
arkorn, 11. ullarflóki, 12. aðfall, 14.
skrölt, 16. drykkur, 17. titill, 18. kerald,
20. óhreinindi, 21. skrifa.
LÓÐRÉTT
1. hegða, 3. frá, 4. þegn, 5. steinbogi,
7. hagnaður, 10. þrá, 13. heyskapa-
ramboð, 15. kattardýr, 16. lítill sopi,
19. bardagi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gabb, 6. aa, 8. for, 9. gró,
11. rú, 12. aðsog, 14. skrap, 16. te, 17.
frú, 18. áma, 20. im, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. haga, 3. af, 4. borgari, 5.
brú, 7. arðsemi, 10. ósk, 13. orf, 15.
púma, 16. tár, 19. at.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Akureyri.
2 Vestmannaeyjum.
3 Kaffihús.
Tónlistarmaðurinn Davíð Bernd-
sen er staddur í Los Angeles um
þessar mundir þar sem hann er á
meðal gesta kvikmyndahátíðar-
innar Los Angeles Film Festival.
Kvikmyndahátíðin fer fram í
miðborg Los Angeles og er þetta
í sextánda sinn sem hún er hald-
in. Á hátíðinni er sýndur mikill
fjöldi óháðra kvikmynda, stutt-
mynda auk tónlistarmyndbanda
og verður myndband Davíðs við
lagið Supertime sýnt á hátíð-
inni. „Ég er staddur hérna ásamt
þeim Helga Jóhannssyni, leik-
stjóra myndbandsins, og Hrafni
Garðarssyni og hér er mikið
stuð. Kanarnir elska okkur alveg
hreint og við fengum meðal ann-
ars að ganga rauða dregilinn sem
var mjög skemmtileg upplifun, ég
hef aldrei fengið jafn mörg flass
á mig á jafn stuttum tíma,“ segir
söngvarinn kampakátur.
Hátíðin stendur frá 17. júní og
fram til 27. júní og mun Davíð
og föruneyti hans dvelja í borg
englanna allan þann tíma. „Akk-
úrat núna er ég að reyna að gera
upp við mig hvort ég eigi að eyða
kvöldinu með Sylvester Stallone
eða Quincy Jones. Leikarinn Ben
Affleck er líka með fyrirlestur
sem ég er að hugsa um að kíkja
á og hér er líka opinn bar sem er
stórhættulegt fyrir poppstjörnu
eins og mig.“
Davíð mun ekki sitja auðum
höndum þegar heim til Íslands er
komið því hann mun meðal annars
leika fyrir dansi á Írskum dögum
á Akranesi. - sm
Velur á milli Quincy Jones og Stallone
Söngkonan Svala Björgvinsdótt-
ir hóf nýverið að blogga og heldur
nú úti stórskemmtilegu tískubloggi
þar sem hún fjallar um tísku, kvik-
myndir, tónlist og annað tískutengt
efni.
Svala hefur bloggað í nokkrar
vikur og segir það skemmtilega
iðju. „Ég blogga nokkuð oft enda
tek ég tölvuna með mér nánast
hvert sem ég fer. Það er hægt að
tengjast netinu eiginlega alls staðar
í Los Angeles og það tekur mig ekki
langan tíma að skrifa eina færslu.
Ég er svolítið manísk þannig að
þegar ég byrja á einhverju sem ég
hef mikinn áhuga á þá er ekki hægt
að stoppa mig,“ útskýrir Svala.
Hún segist sjálf skoða tískublogg
reglulega og er að mestu hætt að
kaupa tískublöð því nú sé hægt að
nálgast allar nýjustu tískufréttirn-
ar á netinu. „Tískublogg eru tísku-
blöð dagsins í dag. Þar er hægt að
fylgjast með tískusýningum og
öllu því nýjasta sem er að gerast
í tískuheiminum.“ Aðspurð segir
Svala tískuáhugann alltaf hafa
verið til staðar og hefur hún meðal
annars saumað sín eigin föt allt
frá því hún var í gagnfræðiskóla.
„Tónlist og tíska hafa alltaf verið
mínar ástríður. Ég hef safnað göml-
um hönnunarflíkum sem ég kaupi á
eBay en ég hef líka verið dugleg að
þræða markaði um allan heim. En
ég vil ekki eyða miklum peningum
í föt enda er það óþarfi. Ég er spar-
samur fatafíkill,“ segir söngkonan
glaðlega. Hægt er að skoða bloggið
hennar Svölu á slóðinni www.killa-
kali.tumblr.com. - sm
Svala Björgvins bloggar um tísku
BLOGGAR UM TÍSKU Söngkonan Svala
Björgvinsdóttir heldur úti skemmtilegu
tískubloggi þar sem hún fjallar um allt
milli himins og jarðar.
VINSÆLIR Tónlistarmaðurinn Davíð
Berndsen er staddur á kvikmyndahátíð-
inni Los Angeles Film Festival þar sem
hann gekk eftir rauða dreglinum.
myndbönd keppa
í sama flokki
og myndband
Berndsens á LA Film Festival.
HEIMILD: LAFILMFEST.COM
38
„Tom var æðislegur. Það varð allt
vitlaust,“ segir söngkonan Anna
Mjöll Ólafsdóttir.
Anna Mjöll kom fram á tónleika-
staðnum Vibrato í Bel Air í Los
Angeles á mánudagskvöld. Stór-
söngvarinn Tom Jones var á meðal
áhorfenda og Anna bauð honum að
sjálfsögðu upp á svið. Tom, sem
varð sjötugur 7. júní, þáði boðið
og þau sungu saman lagið When I
Fall in Love, sem hefur verið tekið
upp af fjölmörgum listamönnum.
Þar á meðal Tom sjálfum, Doris
Day og Nat King Cole.
Anna segir Jones hafa verið á
staðnum ásamt systur sinni, en
saman voru þau að halda upp á
feðradaginn. Hún var ekki viss
um hvort hann myndi slá til, en
segir að hún hafi hreinlega þurft
að athuga það. „Þegar maður er
með Tom Jones sitjandi fyrir
framan sig, þá á hann að hætta að
borða og koma upp á svið. Skítt
með þótt hann sé svangur! Hann
getur borðað seinna,“ segir Anna
og hlær. „Hann kom svo bara upp
með glasið sitt.“
Jones söng þrjú lög til viðbótar
við það sem hann söng með Önnu
og samkvæmt henni trúðu áhorf-
endur vart sínum eigin augum. Þá
voru meðlimir hljómsveitarinn-
ar stjarfir, enda með lifandi goð-
sögn fyrir framan sig. Anna segir
Jones hafa verið gríðarlega fag-
mannlegan, enda hafi hann stigið
algjörlega óundirbúinn á svið og
staðið sig með mikilli prýði. „Svo
var hann ofboðslega almennilegur
og góður,“ segir Anna.
Eins og gefur að skilja vildu
fjölmargir áhorfendur fá mynd
af sér með goðinu. Hann var til
í það og sendi áhorfendur ham-
ingjusama heim. „Það reyndu
allir að halda aftur af sér, en hann
var voða kurteis við alla á meðan
myndirnar voru teknar,“ segir
Anna. „Svo var hann lengur en
allir. Þegar allir voru farnir sat
hann heillengi með okkur.“
atlifannar@frettabladid.is
ANNA MJÖLL ÓLAFSDÓTTIR: BAUÐ „THE VOICE“ UPP Á SVIÐ MEÐ SÉR
SÖNG ÓVÆNT DÚETT MEÐ
TOM JONES Í LOS ANGELES
Á SVIÐI MEÐ TOM JONES Anna Mjöll og Tom Jones syngja lagið When I Fall in Love. Á milli þeirra er stjarfur undirleikari.
„Ég er ekki með mikið planað.
Ég eyði helgunum úti á landi
að gera upp gamalt hús sem er
í fjölskyldunni. Mér finnst það
mjög skemmtilegt. Síðan ætla
ég á goslokahátíðina en annað
er nú ekki planað.“
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari.
Fyrirsætan Sólveig Káradóttir var
í heimsókn hér á landi ásamt
kærasta sínum, bítlasyninum Dhani
Harrison, syni George, en
samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins yfirgefa
þau landið aftur nú í
vikunni. Þetta er ekki
í fyrsta sinn
sem þetta
myndarlega
par hefur
sést saman
á vappi um
miðbæinn en
þau hafa verið saman í þónokkurn
tíma. Öðrum vel kunnum lista-
manni sást einnig bregða fyrir í
miðbænum fyrr í vikunni. Fyrrum
söngvari hinnar vinsælu hljómsveit-
ar Bubbleflies, Páll Banine, virðist
einnig vera í heimsókn hér á landi
um þessar mundir.
Rithöfundurinn, eftirherman og
textasmiðurinn Sólmundur Hólm
Sólmundason mun ganga að eiga
unnustu sína, Elínu Önnu
Steinarsdóttur, í ágúst.
Sóli, eins og hann er
kallaður, er þekktur
fyrir að koma sjálfur
fram í brúðkaupum
sem veislustjóri og
skemmtikraftur en ekki
er kunnugt hver muni
stjórna hans eigin
brúðkaupi. Þorvaldur
Davíð, leikari og æskuvinur Sóla,
kemur þó sterklega til greina. Einn-
ig er líklegt að Gylfi Ægisson söngv-
ari muni taka lagið en Sóli skrifaði
einmitt ævisögu hans á síðasta ári
og hlaut mikið hrós fyrir.
Klara og stúlkurnar í The Charlies,
áður Nylon, hafa í nægu að snúast
í Hollywood þessa dagana. Þær
eru nú á fullu að taka upp nýja
tónlist ásamt fagfólki, en tóku
sér pásu í vikunni og skelltu sér á
tónleika. Táningsstjarnan
Miley Cyrus varð fyrir
valinu, en hún er
einmitt samnings-
bundin sama
útgáfufyrirtæki
og stelpurnar,
Hollywood
Records.
- sm, áp, afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Allir helstu HM leikirnir í beinni á
karoeke sportbar Frakkastíg 8.
Skemmtilegar uppákomur á milli
leikja og Stór á 450 kr.
Egils gull og Kareoke sportbar
- alvöru HM stemmning !
Egils Gull og Kareoke Sportbar kynna:
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki