Fréttablaðið - 20.07.2010, Síða 8
8 20. júlí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1 Hvað heitir nýráðinn bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar?
2 Hvaða matvara hefur
hækkað í verði langt umfram
verðbólguvísitölu?
3 Hvað eru starfrækt mörg
minkabú á landinu?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 22
HJÓL FYR
IR ALLA F
JÖLSKYLD
UNA
20-30% a
fsláttur
af hjólum
SKIPTIMA
RKAÐUR
MEÐ NOTU
Ð REIÐHJÓ
L
20% AFSL
ÁTTUR AF
AUKABÚN
AÐI Á HJÓ
L
-20%
-20%
BANDARÍKIN Umfang leyniþjón-
ustu í Bandaríkjunum er orðið
svo mikið og þunglamalegt að
enginn veit hversu mikið hún
kostar, hversu margir starfa
í henni, hversu mörg verkefni
eru í vinnslu innan hennar eða
nákvæmlega hversu margar
stofnanir gera það sama.
Þetta kemur fram í frétt blaðs-
ins Washington Post, sem hefur
rannsakað starfsemina í tvö ár.
Ómögulegt er að segja til um
það hversu áhrifaríkar aðgerðir
Bandaríkjamanna í öryggismál-
um og baráttunni gegn hryðju-
verkum hafa verið frá 11. sept-
ember 2001 vegna þessa.
Blaðið lýsir því sem svo að í
raun sé um að ræða leynilegan
heim í Bandaríkjunum sem sé
hulinn almenningi og enginn hafi
í raun yfirsýn yfir. Mörg verk-
efni eru aðeins á vitorði helstu
yfirmanna og finnast því hvergi
í opinberum skrám. Tæplega
þrettán hundruð opinberar stofn-
anir og hátt í tvö þúsund einka-
fyrirtæki starfa við þessi mál
á tíu þúsund stöðum víðs vegar
um landið. Að minnsta kosti
fimmtungur þeirra varð til eftir
hryðjuverkaárásirnar hinn 11.
september 2001, eða 263 stofnan-
ir. Margar stofnananna sem voru
til fyrir hafa stækkað gífurlega
mikið síðan árásirnar voru gerð-
ar. Svo virðist sem fjölmargar
stofnanir vinni sama verkið, til
dæmis fylgist 51 stofnun í fimmt-
án borgum landsins með peninga-
flæði til og frá hryðjuverkasam-
tökum.
Um 1,7 milljarðar tölvubréfa,
símtala og annars konar sam-
skipta er vistaður hjá öryggis-
stofnunum á hverjum degi, en
engin þeirra kemst nálægt því að
ná að fara í gegnum allt magn-
ið. Þá eru svo margar skýrslur
gefnar út af þessum stofnunum
að þær gera lítið gagn. Margar
fara algjörlega fram hjá þeim
sem eiga að lesa þær.
Varnarmálaráðherrann Robert
M. Gates sagði í viðtali við blað-
ið í síðustu viku að vegna vaxtar
þessa geira sé erfitt að ná utan
um alla starfsemina. Hann sagð-
ist þó ekki telja að kerfið sé orðið
of stórt til að það sé hægt, en við-
urkenndi að erfitt geti reynst að
fá nákvæmar upplýsingar.
Washington Post ætlar að birta
annan og þriðja hluta rannsóknar
sinnar í dag og á morgun.
thorunn@frettabladid.is
Enginn hefur yfir-
sýn yfir öryggismál
Ómögulegt er að vita hvort vinna Bandaríkjamanna í öryggismálum og gegn
hryðjuverkum skili árangri þar sem enginn hefur yfirsýn yfir þau. Stofnanir
vinna sömu vinnuna og skýrslur eru svo margar að ekki næst að lesa þær allar.
HÖFUÐSTÖÐVAR CIA Stofnunum sem starfa í öryggismálum og gegn hryðjuverkum
fjölgaði mikið undir stjórn George W. Bush og fengu margar þeirra hærri upphæðir
frá ríkinu en þær gátu eytt. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI
FJARSKIPTI Fyrirtæki sem selja far-
símaþjónustu þurfa að lækka svo-
kölluð lúkningargjöld sem lögð
eru á símtöl milli farsímakerfa
um 50 til 67 prósent samkvæmt
nýrri ákvörðun Póst- og fjar-
skiptastofnunar (PFS). Lúkning-
argjöldin lækka í skrefum fram
að ársbyrjun 2013 niður í fjór-
ar krónur og verða þá jafnhá hjá
öllum farsímafyrirtækjunum. Þá
eru upphafsgjöld afnumin.
Breytingin er sögð leiða til þess
að ein meginforsendan fyrir mis-
munandi verði á farsímaþjónustu
þegar hringt er í annað farsíma-
félag verði ekki lengur til stað-
ar. Í greiningu PFS kom í ljós að
samkeppnisvandamál á mark-
aði farsímaþjónustu hafi fyrst
og fremst mátt rekja til þess að
farsímafyrirtækið sem réði yfir
netinu sem símtalinu var lokið í
hafi verið með einokunarstöðu á
viðkomandi markaði. „Að mati
PFS á sér stað yfirverðlagning á
símtölum milli kerfa. Kostnaðin-
um er þannig velt yfir á þá not-
endur sem eru tengdir öðrum far-
síma- eða fastlínunetum,“ segir í
umfjöllun stofnunarinnar.
Hæsta lúkningarverðið er nú
hjá Nova og IMC/Alterna, eða
12 krónur mínútan. Liv Berg-
þórsdóttir, framkvæmdastjóri
Nova, segir verðið í takt við þann
ramma sem PFS hafi heimilað, en
það hafi verið hærra hjá nýjum
félögum sem byggja hafi þurft
upp ný fjarskiptanet og svo smá-
lækkað. Hún fagnar ákvörðun
PFS og segir breytinguna í takt
við þróun sem eigi sér stað meðal
fjarskiptafyrirtækja um heim
allan. - óká
Lúkningargjöld lækki á tveimur og hálfu ári í fjórar krónur hjá öllum fyrirtækjum:
Fjarlægja forsendu verðmunar
Lækkun lúkningarverðs farsímafyrirtækjanna
Fyrirtæki Verð nú 01.09.2010 01.01.2011 01.01.2010 01.01.2013
Síminn 7,49 kr./mín 6,50 kr./mín 5,50 kr./mín 4,50 kr./mín 4,00 kr./mín
Vodafone 7,49 kr./mín 6,50 kr./mín 5,50 kr./mín 4,50 kr./mín 4,00 kr./mín
Nova 12,00 kr./mín 10,30 kr./mín 8,30 kr./mín 6,30 kr./mín 4,00 kr./mín
IMC/Alterna 12,00 kr./mín 10,30 kr./mín 8,30 kr./mín 6,30 kr./mín 4,00 kr./mín
Heimild: PFS
stofnanir hafa
verið stofnaðar
til að sinna
öryggismálum og baráttunni
gegn hryðjuverkum síðan 11.
september 2001.
263
DÓMSMÁL Stefán H. Hilmarsson,
fyrrverandi fjármálastjóri Baugs
og núverandi fjármálastjóri 365
miðla, var úrskurðaður gjaldþrota
í Héraðsdómi Reykjavíkur 9. júlí
síðastliðinn. Stefán hyggst kæra
úrskurðinn til Hæstaréttar.
Stefán stendur í málaferlum
við Arion banka vegna tugmillj-
óna skulda og fór bankinn fram
á kyrrsetningu á eignum hans
þar til niðurstaða fengist í málið.
Kyrrsetningin var hins vegar lýst
árangurslaus þar sem eignir Stef-
áns voru ekki nægar og þá gat
bankinn farið fram á að bú hans
yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Á
þá kröfu féllst Jón Finnbjörnsson
héraðsdómari.
Skiptastjórinn Grímur Sigurðs-
son er byrjaður að kanna hvort
eignir séu til í búinu. Þrjú hundr-
uð fermetra hús Stefáns við Lauf-
ásveg var flutt á eignarhaldsfélag-
ið Vegvísi um miðjan september
2008. Félagið er skráð á nafn konu í
Garðabæ. Grímur segir of snemmt
að segja til um hvort farið verði
fram á að gjörningnum verði rift.
„Það á eftir að fara fram rannsókn
á því hvort og þá hvaða verðmæti
komu inn í staðinn, hvernig þetta
var gert og af hverju,“ segir Grím-
ur.
Ari Edwald, forstjóri 365, segir
óvíst hvort málið muni hafa áhrif
á störf Stefáns fyrir fyrirtækið.
„Ég veit af þessu og veit að hann á
í miklum ágreiningi við bankann
um kröfurnar sem þessir gerning-
ar byggjast á þannig að ég vil sjá
út yfir það hvernig þetta þróast
og hef þess vegna ekkert ákveðið
enn. En ef þetta verður niðurstað-
an, sem ég vona að verði ekki, gæti
það auðvitað leitt til einhverra
breytinga á afmörkun á störfum,“
segir Ari. - sh
Skiptastjóri segir of snemmt að segja til um hvort rifta beri færslu einbýlishúss í eignarhaldsfélag fyrir hrun:
Fjármálastjóri 365 miðla úrskurðaður gjaldþrota
ÁFRÝJAR Stefán ætlar ekki að una
úrskurðinum, heldur kæra hann til
Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fimm bíla árekstur
Fimm bílar lentu í árekstri á Miklu-
braut, við akreinina inn á Reykjanes-
braut, um klukkan hálf þrjú í gær.
Miklar tafir urðu á umferð en ekki var
talið að alvarleg slys væru á fólki.
Tekinn á 140 km hraða
Ökumaður var handtekinn aðfaranótt
mánudags eftir að hafa verið stöðv-
aður á 140 kílómetra hraða á mótum
Reykjanesbrautar og Sæbrautar. Mað-
urinn sýndi lögreglu mótþróa en var
yfirbugaður. Hann var síðan vistaður í
fangaklefa. Maðurinn er grunaður um
að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Framseldur til Póllands
Hæstiréttur staðfesti í dag framsal á
pólskum manni sem dvalið hefur hér
á landi. Maðurinn hefur verið dæmd-
ur fyrir ítrekuð brot í heimalandi sínu
en hefur stundað launaða vinnu hér
á landi.
DÓMSMÁL
SJÁVARÚTVEGUR HB Grandi hefur
getað haldið fullri starfsemi í
sumar og ekki þurft að grípa
til hefðbundinna sumarlokana.
Ástæðan er sú að skólafólk hefur
hlaupið í skarðið þegar starfsfólk
tekur sér frí og ekkert hlé þurfti
því að gera á vinnslunni.
Frá þessu segir í Skessuhorni
og þar er rætt við Þröst Reynis-
son, vinnslustjóra landvinnslu hjá
fyrirtækinu. Hann segir að þetta
gildi um fiskiðjuverin á Akranesi
og í Reykjavík. Hann segir veiði
ísfisktogara fyrirtækisins hafa
verið mjög góða og eins hafi sum-
arlokanir annarra fyrirtækja gert
það að verkum að meira hefur
verið að gera hjá HB Granda. Þá
komi skólafólkið til sögunnar, en
á Skaganum starfa 23 krakkar í
fiskiðjunni og gæti þurft að bæta
fleirum við. - kóp
Full vinnsla í HB Granda:
Skólafólk á
fullu í fiskinum
VEISTU SVARIÐ?