Fréttablaðið - 27.07.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI27. júlí 2010 — 174. tölublað — 10. árgangur
ÞRIÐJUDAGUR
skoðun 12
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
HEILSA OG LÍFSHÆTTIR eru til umfjöllunar á vefsíðunni heilsubankinn.is, sem er meðal annars
ætlað að stuðla að bættu líferni og betri heilsu.
„Ég vildi bara sjá og upplifa
ósnortna íslenska náttúru og
ögra sjálfum mér svolítið,“ segir
Þórólfur Jarl Þórólfsson, starfs-maður hjá Vodafone, um tildrög
þess að hann ákvað að ganga
þvert yfir landið, frá Reykjanes-vita á Reykjanestanga að vitan-um á Langanesfonti, frá 20. maí
til 11. júní.
Þórólfur slóst þar í för með
Frey Heiðari Guðmundssyni,
frænda sínum, og vininum
Friðriki Guðjónssyni en enginn
þeirra hafði reynslu af slíku áður.
„Nei, nei, ég hef nú takmarkaðgert af því kk
er helst að maður fari í veiði eða
fótbolta með strákunum,“ segir
Þórólfur og kveður margt hafa
komið á óvart. „Náttúran er ótrú-leg og sums staðar svo ósnortin
að engu líkara en maður væri
sá fyrsti sem færi þar um. Sér-staklega þótti mér gaman að
koma í Vonarskarð sem er mjög
fallegt.“
Félagarnir ferðuðust létt,
höfðu meðferðis gps-staðsetn-ingartæki, farsíma, landakort
og mat í bakpokum og urðu sérreglulega úti umi
nítjánda þurfti Friðrik að hætta
för vegna fótameiðslna. Frænd-urnir komust þó báðir á leiðar-enda og sjaldan verið hressari
að sögn Þórólfs. „Upphaflega var
þetta erfitt en kom smám saman
og undir lokin var maður í topp-formi, búinn að missa nokkur
kíló á leiðinni. Þetta varð því að
svona hálfgerðri detox-ferð fyrir
karla,“ segir hann og hlær.Þórólfur útilokar ekki að félag-arnir endurtaki leikin ðÆtli þ
Detox-ferð fyrir karlaÞórólfur Jarl Þórólfsson er ekki upptekinn af hollu mataræði og hefur aldrei stigið fæti inn á líkams-
ræktarstöð. Samt lét hann sig ekki muna um að ganga þvert yfir landið á dögunum og hafði gaman af.
Þórólfur ákvað að ögra sjálfum sér með því að ganga þvert yfir landið og uppgötvaði í leiðinni einstaka náttúrufegurð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
5% teygja - 2 snið
Upp í mitti
Stretch-buxurfyrir verslunarmannahelgina
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
Tilboð gildir til 30. júli
219.900
krP
aris Hor
nsófi 2H
2
Aðeins þ
essa vik
u
Töfraheimur tónlistar
Tónlistarhátíðin Bergmál
haldin í fyrsta sinn á
Dalvík.
tímamót 16
Æfðu köst af list
Veiðiferð
Krabbameinsfélags
Íslands vel heppnuð
í alla staði.
allt 2
STYTTIR UPP Í dag verða víðast
norðan 3-8 m/s. Skýjað og lítils
háttar rigning A-til á landinu en
léttir SV-lands er líður á daginn. Hiti
10-20 stig, hlýjast SV-til.
VEÐUR 4
14
16
15 15
12
Mammút góð
Hreif erlenda blaðamenn
á Iceland Inspires-
tónleikunum.
fólk 26
FERÐAÞJÓNUSTA Ferðamönnum til Vestmanna-
eyja hefur snarfjölgað eftir að Landeyjahöfn
var tekin í notkun fyrir viku síðan. Að sögn
Guðmundar Pedersen, rekstrarstjóra Herjólfs,
lætur nærri að fjöldi farþega hafi þrefaldast
miðað við sama tíma í fyrra.
Herjólfur er nú innan við þrjá stundarfjórð-
unga að sigla frá Landeyjahöfn til Eyja og fer
fjórar til fimm ferðir á dag.
„Það hefur verið veruleg aukning þessa
fyrstu daga,“ segir Guðmundur. „Það er hell-
ingur af farþegum, upp undir 400 í ferð, og
bílarýmið, sem tekur 50 til 60 bíla, er nánast
alltaf fullt.“
Veitingamenn hafa líka orðið varir við auk-
inn straum ferðamanna til Eyja. Hólmgeir
Austfjörð er eigandi 900 Grill, sem var opnað
í byrjun júní. „Það hefur verið nóg að gera hjá
okkur í allt sumar, en það er ekki saman að
líkja eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun,“
segir hann. „Helsti munurinn er sá að áður var
fyrst og fremst annríki á kvöldin en nú er stað-
urinn þéttsetinn allan daginn. Við höfum feng-
ið að lágmarki 100 gesti á dag,“ segir Hólm-
geir, sem finnst líklegt að það sama sé upp á
teningnum á öðrum veitinga- og kaffihúsum í
bænum.
Þá hefur ásókn í golfvöll bæjarins aukist
á undanfarinni viku. „Við urðum vör við það
strax fyrsta daginn þegar siglt var frá Land-
eyjahöfn,“ segir María Sigurbjörnsdóttir,
starfsmaður hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja.
„Við finnum líka fyrir miklum áhuga; það hafa
margir hringt og spurst fyrir um vallartíma.
Við eigum því von á að það verði enn meira að
gera í ágúst, þegar þjóðhátíð er yfirstaðin.“
Það eru ekki aðeins túristar sem sækja Vest-
mannaeyjar heim. Einnig hefur borið á því að
fólk af meginlandinu geri sér ferð til að sækja
þar þjónustu.
„Það hefur verið mikið að gera hjá okkur
undanfarna viku,“ segir Sædís Eva Birgisdótt-
ir. starfsmaður í versluninni Geisla. „Bæði
eru þetta ferðalangar sem líta inn hjá okkur
en líka fólk sem kemur hingað gagngert til að
versla eða eftir annarri þjónustu. Það hefur
eiginlega verið allt annar bæjarbragur undan-
farna viku og hreint dásamlegt.“ - bs
Ferðalangar streyma til Eyja
Fjöldi ferðamanna til Vestmannaeyja hefur nánast þrefaldast eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun.
Veitingahús eru þéttsetin og aukin ásókn er í golfvöllinn. Fleiri fara til Eyja til að sækja þjónustu.
VIÐSKIPTI Dótturfélag Atlantis
Group, félags í íslenskri eigu, er
orðið langstærsta fyrirtækið á
sviði túnfiskseldi í heiminum eftir
sameiningu við mexíkóskt eldis-
fyrirtæki. Fyrirtækið framleiðir
nú 20 til 30 prósent af öllum blá-
uggatúnfiski sem alinn er í kvíum
í heiminum.
„Ég held við getum verið tiltölu-
lega ánægðir með þetta, með þess-
um kaupum ríflega tvöföldum við
starfsemina hjá okkur,“ segir Óli
Valur Steindórsson, forstjóri Atlant-
is Group. Hann verður jafnframt
forstjóri sameinaðs dótturfélags,
sem fær nafnið Umami Sustainable
Seafood.
Kali Tuna, dótturfélag Atlantis
Group, hefur stundað túnfisk-
seldi við Króatíu undanfarin ár.
Fyrirtækið sameinast nú Baja
Aquafarms, sem ræktar túnfisk
undan ströndum Mexíkós.
Óli Valur segir allan túnfisk sem
alinn hafi verið hingað til hafa verið
seldan til Japans, þar sem hann
hafi verið notaður hrár til sushi-
gerðar. Atlantis stefni á að komast
inn á sushi-markaðinn í Bandaríkj-
unum, og þá skipti miklu að fram-
leiða nærri Bandaríkjunun. Fyrir-
tækið ætli að einblína að mestu á
framleiðslu á túnfiski fyrir sushi-
gerð, fiskurinn sé margfalt betri í
sushi en á grillinu. „Þegar maður
er vanur silkinu vill maður ekki
ullina,“ segir Óli Valur.
Kaupsamningurinn hljóðar upp
á 28 milljónir Bandaríkjadala, sem
jafngildir um 3,4 milljörðum króna
á gengi gærdagsins. - bj
Íslenskt fyrirtæki orðið langstærsta fyrirtæki heims á sviði túnfiskseldis:
Einblínir á sushi-markaðinn
TÚNFISKSELDI Kali Tuna, dótturfélag
Atlantis Group, hefur selt um tíu þúsund
tonn af bláuggatúnfiski til sushi-gerðar í
Japan undanfarin ár. MYND/ATLANTIS GROUP
HAFNARMÁL Tveir bátar sukku
í Reykjavíkurhöfn um helgina.
Annar báturinn, Gæskur, var í
smábátahöfninni sem er við tón-
listar- og ráðstefnuhúsið Hörpu,
en hinn var við Grandagarð og
nefnist Ver.
Hafist var handa við að hífa upp
Ver, sem er um 20 tonn, síðdegis
í gær en Gæskur, sem er um
65 tonn, stóð enn þá óhreyfður
síðdegis.
„Þetta kemur nú, því miður,
fyrir öðru hverju,“ segir Gísli
Gíslason hafnarstjóri. „Það er ekki
vitað hvað kom fyrir Ver en eig-
andinn er að ná honum upp, sem
ætti ekki að vera neitt stórmál.
Hinn báturinn, Gæskur, flokkast
undir reiðileysisbát. Við höfum
haft hann undir eftirliti síðustu
mánuði og höfum verið að dæla
upp úr honum en síðan hefur dæla
bilað og hann húrraði bara niður.“
Búið var að fjarlægja olíu og
aðra mengunarvalda svo meng-
unarhætta af þessum bátum er
engin. - mþl
Óhapp í Reykjavíkurhöfn:
Trébátar sukku
í höfninni
GÆSKUR VIÐ HÖRPU Báturinn Gæskur lá enn óhreyfður síðdegis í gær en erfitt kann að reynast að hífa hann upp.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jafnt á Suðurnesjum
Keflavík og Grindavík gerðu
1-1 jafntefli í grannaslag.
íþróttir 22