Fréttablaðið - 16.08.2010, Síða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég á uppstoppaðan íkorna sem
ég er mjög ánægð með. Ég keypti
hann í Brussel þar sem foreldr-
ar mínir búa og flutti hann með
mér til Íslands. Hann er flottasta
borðskreyting sem ég hef átt,“
segir Líney Arnórsdóttir spurð um
eftirlætishlut.
Líney kveðst hafa búið úti um
allar trissur því pabbi hennar
vinni fyrir utanríkisráðuneytið
og fjölskyldan hafi ferðast land úr
landi frá því hún fæddist. „Ég flutti
reyndar frá foreldrum mínum um
16 ára aldurinn og hef ekki búið í
sama landi og þau síðan þá. Fyrst
flutti ég heim til Íslands, síðan til
Miami í Flórida og þaðan til New
York,“ lýsir Líney sem er á landinu
núna og starfar sem markaðs- og
kynningarstjóri You Are in Control/
ÚTON, alþjóðlegrar ráðstefnu um
þróun og tækifæri í stafrænum við-
skiptamódelum sem haldin verður í
Reykjavík í byrjun október.
Síðast þegar hún heimsótti for-
eldrana í Brussel fór hún á antík-
markað. „Þetta var antíkhúsgagna-
markaður sem var haldinn úti undir
berum himni og þar voru munir alls
staðar að úr heiminum, sumir lítið
spennandi og aðrir ótrúlega flott-
ir. Ég gaf sjálfri mér 25 evrur til
að eyða þarna og ekki meira. Var á
röltinu og fann bás með uppstopp-
uðum dýrum sem einn karl var
að selja. Þarna voru stórir fugl-
ar og fleira sem ég gat ekki flutt
með mér en svo sá ég sætan, rauð-
an íkorna sem heillaði mig alger-
lega. Hann átti að kosta meira en 25
evrur en ég náði honum niður með
því að blikka karlinn.“
Líney ákvað að nefna íkornann
Jean-Claude í höfuð á Jean-Claude
Van Damme, einum frægasta leik-
ara Belga og þekktu vöðvatrölli.
„Ég hef íkornann alltaf á borðinu
ef ég held matarboð. Gestirnir eru
yfirleitt hrifnir en einstaka láta
smá andúð í ljós.“ gun@frettabladid.is
Náði verðinu niður með
því að blikka seljandann
Þegar Líney Arnórsdóttir var í heimsókn hjá foreldrum sínum í Brussel fann hún lítinn íkorna á antík-
markaði sem heillaði hana á stundinni. Hún hafði gefið sjálfri sér 25 evrur og þær urðu að duga.
SORPA býður upp á fræðsluferðir fyrir nemend-
ur. Þar er starfsemi móttökustöðva útskýrð, börnin
fá tækifæri til að skoða mismunandi flokka úrgangs
og þau frædd um úrvinnslu hans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Líney keypti hnetu til að láta Jean-
Claude halda á milli framlappanna.
Til leigu í Skútuvogi 1H-G
Skrifstofuhúsnæði—189 fm
Skrifstofuhúsnæði—164 fm
Lagerhúsnæði— 189 fm
Um er að ræða gott skrif-
stofurými sem er annars
vegar 189 fm að stærð og
hins vegar 164 fm.
Góð lofthæð er í pláss-
unum og í miðju rýmum
eru þakgluggar sem gefa
góða birtu.
Mjög gott húsnæði
Miklir möguleikar.
Lagerhúsnæði með útkeyrsluhurð, alls 189 fm.
Leigist saman eða í sitt hvoru lagi.
Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir á skrifstofu Járn & glers hf -
Skútuvogi 1 h– Barkarvogsmegin.
Upplýsingar gefur Kjartan í s: 585-8902 / 894-4711.
e-mail : kjartan@jarngler.is
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…