Fréttablaðið - 16.08.2010, Page 18
16. ÁGÚST 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Hafnarfjörður lumar á ævin-
týralegum görðum þar sem
landslagið í hrauninu fær að
njóta sín og mynda gott skjól.
Einkum á það við í hinum rót-
grónari bæjarhlutum. Frétta-
blaðið laumaðist í tvo slíka
garða og fékk leyfi húsráð-
enda til að mynda.
Við Erluhraun 3 og 5 eru víðáttu-
miklir garðar sem hafa greinilega
notið þolinmæði, úthalds og elju-
semi eigenda sinna.
Brött brekka frá húsunum niður
í djúpa hraunbolla einkennir þá
báða og í öðrum garðinum hefur
brekkan verið notuð sem sleða-
braut barnabarna að vetrinum,
því hefur enginn trjá- eða runna-
gróður verið settur niður þar.
Hulda Böðvarsdóttir og Sigurð-
ur Rúnar Jónasson hafa átt þann
garð í þrettán ár og þau eru með
púttvöll niðri á flötinni. Lóðin er
að hluta til girt með náttúrulegum
viði og kurl er í sumum stígum.
Þegar Steinþóra Þorsteinsdóttir
og Sigurður Þ. Arndal tóku við
sinni lóð 1982 var þar ógrynni
af spýtna- og járnarusli og snar-
brött grjóturð neðan við húsið.
Þeim datt varla í hug að þar yxi
nokkuð en nú skipta plöntuteg-
undirnar hundruðum. Burknarn-
ir eru í mestu uppáhaldi, þeir fara
einkar vel í þessu umhverfi. Þau
hjón hafa tvívegis fengið verðlaun
fyrir garðinn enda hafa þau náð að
skapa þar hreina paradís. - gun
Hraunið prýðir og skýlir
Hulda mundar arfaklóruna en segir samt að bóndinn eigi allan heiðurinn að garðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Burknarnir njóta sín vel meðfram stígn-
um í garðinum við Erluhraun 3.
Brekkan vinstra megin við stíginn er sleðabraut barnabarna Huldu og Sigurðar
þegar snjór er.
Erluhraun 5. Friðsælt er á flötinni í botni
hraunbollans.
Þegar Steinþóra húsfreyja var hætt að sjá niður í garðinn út um eldhúsgluggann
greip hún klippurnar og hefur náð að halda vexti trjágróðurs í brekkunni í skefjum.
Fuglabað er meðal þess sem prýðir þennan garð við Erluhraun 5.