Fréttablaðið - 24.08.2010, Side 8
8 24. ágúst 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hvaða íslenski fatahönnuður
er á leið á tískuviku í París?
2. Hvaða verki eftir Van Gogh
var stolið af safni í Kaíró?
3. Hvaða fyrirtæki hefur beðist
afsökunar á grútarmengun á
Vopnafirði?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í tölvupósti um
tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og skráning á www.
kontakt.is.
Rótgróið glerfyrirtæki. Ársvelta 80 mkr.
Framleiðslufyrirtæki með eigin verslanir. Með yfir 50% markaðshlutdeild og góða
vaxtamöguleika. Ársvelta um 400 mkr.
Grænlenskt byggingarfélag með góða verkefnastöðu.
Þekkt heimilisvöruverslun með eigin innflutning. Ársvelta 80 mkr.
Vélsmiðja með góða verkefnastöðu. 7 starfsmenn.
Meirihluti í stóru iðnfyrirtæki. EBITDA 75 mkr.
Rótgróin heildverslun sem selur tæknivörur og rekstrarvörur til opinberra stofnanna.
EBITDA 15 mkr.
Tvö iðnfyrirtæki sem henta vel til sameiningar. Sameinuð ársvelta um 150 mkr. og
EBITDA um 25 mkr. Viðkomandi kaupandi þyrfti að leggja fram um 20 mkr. í peningum
og um 20 mkr. fasteignaveð til að ná meirihluta í báðum fyrirtækjunum.
Meirihluti í rótgrónu iðnfyrirtæki. Ársvelta 90 mkr. EBITDA 10 mkr. Litlar skuldir.
Fyrirtæki á heilbrigðissviði með langtímasamninga. EBITDA 12 mkr.
Verslun með heilsuvörur í góðum rekstri. Eigin innflutningur.
Rótgróið verslunarfyrirtæki með eigin framleiðslu í Kína á alþjóðlegu vörumerki óskar
eftir meðeiganda-fjárfesti til að auka framleiðslu og sölu erlendis.
Heildverslun með ráðandi stöðu á sérhæfðu sviði. Ársvelta 270 mkr. EBITDA 34 mkr.
Góð tækifæri til vaxtar.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
EFNAHAGSMÁL Riftunarmál hefur
verið höfðað gegn Sigurjóni Þ.
Árnasyni og Halldóri J. Kristjáns-
syni, fyrrverandi bankastjórum
Landsbankans, og ónafngreinds
fyrrverandi millistjórnanda í bank-
anum. Dómsmálin verða þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun
september. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi að loknum kröfuhafa-
fundi Landsbankans í gær.
Málin snúast um greiðslur sem
bankastjórarnir og millistjórnand-
inn fengu í tengslum við uppgjör á
kauprétti og kaupaukum í septemb-
er og október 2008. Endurkröfurn-
ar vegna málanna þriggja eru tæp-
lega 400 milljónir króna. Slitastjórn
bankans höfðaði málið eftir að kröf-
unum var mótmælt í sumar.
Slitastjórnin hefur endurheimt
rúmlega 1,5 milljarða króna með
riftunum. Þá er búið að rifta ráð-
stöfunum upp á tuttugu til þrjátíu
milljarða króna, en afstaða gagnað-
ila í þeim málum liggur ekki fyrir.
Búist er við því að einhver þeirra
mála fari fyrir dómstóla á næst-
unni.
Þá hefur gagnaöflun vegna
mögulegra skaðabótamála verið
lokið. Nú er unnið að skýrslutökum
vegna þeirra og mun koma í ljós
hvaða kröfur verða gerðar á næstu
vikum. Málin sem eru til skoð-
unar snúast flest um að ekki hafi
verið gengið að tryggingum fyrir
lánaskuldbindingum á meðan þær
voru í gildi og vegna lánveitinga
og útgreiðslna til fjármálafyrir-
tækja á Íslandi síðustu vikurnar
fyrir fall bankans. Tapið sem bank-
inn varð fyrir vegna þessara mála
nemur nokkrum tugum milljarða.
Tvö skaðabótamál á hendur fyrri
stjórnendum eru lengst komin og
eru á leið til dómstóla.
Einnig var greint frá því á kröfu-
hafafundinum að innheimtuaukn-
ing á öðrum ársfjórðungi var 64
milljarðar króna í erlendum mynt-
um, eða um sex prósent. Meginá-
stæðan fyrir auknum endurheimt-
um eru samningar sem gerðir hafa
verið um eignir Landsbankans í
Lúxemborg. Einnig skipta máli
samningar við Björgólf Thor Björ-
gólfsson og fyrirtæki sem honum
eru tengd, og þykir staða bankans
nú mun tryggari gagnvart báðum
aðilum.
Kröfuhöfum bankans var jafn-
framt tilkynnt á fundinum í gær
að ákveðið hefði verið að óska eftir
framlengingu á greiðslustöðvun
hans, en núverandi heimild rennur
út í þessari viku. Greiðslustöðvun
getur mest staðið í tvö ár og mun
því aðeins geta staðið til 5. desem-
ber næstkomandi. Eftir það mun
almenn slitameðferð halda áfram.
thorunn@frettabladid.is
Mál höfðað á hend-
ur bankastjórunum
Slitastjórn Landsbankans hefur höfðað riftunarmál vegna 400 milljóna króna
kaupréttar- og kaupaukasamninga fyrrverandi bankastjóra og millistjórnanda.
Fleiri riftunarmál og skaðabótamál eru á leið til dómstóla á næstunni.
EFTIR KRÖFUHAFAFUND Fulltrúar slitastjórnar og skilanefndar héldu blaðamannafund í gær. Gerðir hafa verið samningar vegna
dótturfélagsins í Lúxemborg og við Björgólf Thor Björgólfsson á síðustu mánuðum og segir bankinn þá vega mest í hækkandi
endurheimtum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Formaður slitastjórn-
ar Glitnis hafnar alfarið ásökun-
um um að slitastjórnin sé að reyna
að afla samkeppnisupplýsinga um
starfsemi Iceland Express í Banda-
ríkjunum með kröfugerð í dóms-
máli sem slitastjórnin rekur nú í
New York í Bandaríkjunum.
„Þetta er mjög langsótt að mínu
mati, og ekkert slíkt sem vakir
fyrir okkur,“ segir Steinunn Guð-
bjartsdóttir, formaður slitastjórn-
ar Glitnis.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu sakar Pálmi Haralds-
son, aðaleigandi Iceland Express,
slitastjórnina um að reyna með
ólögmætum hætti að fá sam-
keppnisupplýsingar með kröfu um
afhendingu gagna í málinu.
Steinunn segir slitastjórnina ekki
hlutast til um hvaða gögn sé beðið
um, ákvörðun um slíkt sé alfarið í
höndum lögmanna slitastjórnarinn-
ar í New York.
Meðal gagna sem farið er fram á
að Pálmi afhendi eru öll samskipti
Iceland Express við bandaríska
loftferðaeftirlitið, samstarfsaðila
á Newark-flugvelli, gögn um mark-
aðsstarfsemi í New York og fleira.
Í yfirlýsingu Pálma er bent á að
Íslandsbanki, arftaki Glitnis, eigi
um 47 prósent í Icelandair, keppi-
nauti Iceland Express.
Spurð hvort slitastjórnin muni
fá umrædd gögn í hendur, fáist þau
afhent, segir Steinunn svo vera,
enda höfði slitastjórnin málið.
Aðspurð segir hún enga hagsmuna-
árekstra vegna óska lögmanna
slitastjórnarinnar. Hún bendir jafn-
framt á að slitastjórn Glitnis höfði
málið í New York, en skilanefndin
sýsli með eignir bankans. - bj
Ekki vakir fyrir slitastjórn Glitnis að fá samkeppnisupplýsingar um Iceland Express segir formaður slitastjórnar:
Lögmenn ráða hvaða gögn þeir vilja sjá
KREFST GAGNA Steinunn Guðbjartsdótt-
ir, formaður slitastjórnar Glitnis, segir
enga hagsmunaárekstra skapast þó að
slitastjórnin fái upplýsingar um starfsemi
Iceland Express í Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYKJAVÍKURBORG Þrír fulltrúar
Sjálfstæðisflokks í skipulags-
ráði Reykjavíkur og áheyrnarfull-
trúi Vinstri grænna segja fulltrúa
meirihlutans ekki standa við fyrir-
heit um aukið samráð.
„Formaður skipulagsráðs hefur
nú upplýst að ástæðan fyrir því
að einungis þrír fundir hafa verið
haldnir í ráðinu frá borgarstjórn-
arkosningum sé sú að meirihlutinn
hefur setið á lokuðum upplýsinga-
fundum um skipulagsmál,“ segir í
bókun Júlíusar Vífils Ingvarsson-
ar, Gísla Marteins Baldurssonar,
Jórunnar Frí-
mannsdóttur og
Sóleyjar Tómas-
dóttur.
Fulltrúar
minnihlutans
segja dagskrá
þessara upp-
lýsingafunda
hafa verið setta
saman af emb-
ættismönnum sem flutt hafi þar
erindi. Einsdæmi sé að halda lokaða
upplýsinga- og fræðslufundi í upp-
hafi kjörtímabils. „Ljóst má vera að
yfirlýsingar borgarstjóra um sam-
vinnu allra sem í borgarstjórn sitja
eru hjóm eitt,“ segir minnihlutinn.
Fulltrúar Besta flokksins, þau
Páll Hjaltason, formaður skipulags-
ráðs, og Elsa Hrafnhildur Yeom-
an og fulltrúar Samfylkingarinn-
ar, Hjálmar Sveinsson og Sverrir
Bollason, andmæltu þessu með ann-
arri bókun: „Nýr meirihluti hefur
staðið við fyrirheit sitt um aukið
samráð með minnihluta með því
að bjóða honum að taka þátt í viku-
legum undirbúningsfundum fyrir
fundi í skipulagsráði.“ - gar
Minnihlutinn í skipulagsráði Reykjavíkur gagnrýnir lokaða fundi meirihlutans:
Loforð um samráð hjóm eitt
PÁLL HJALTASON
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
VEISTU SVARIÐ?