Fréttablaðið - 24.08.2010, Síða 26
24. ÁGÚST 2010 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● heilsa og lífsstíll
● BRÚARHLAUP Á SELFOSSI
Árlegt Brúarhlaup fer fram á Selfossi laugardaginn 4.
september. Nafn keppninnar er dregið af því að allir
hlauparar og hjólreiðamenn eru ræstir á Ölfusárbrú.
Vegalengdir sem eru í boði eru 2,5 km, 5 km, 10
km og hálfmaraþon en allar vegalengdir eru með
tímatöku. Einnig er keppt í 5 km hjólreiðum sem fara
fram á malbiki.
Hjólreiðar hefjast klukkan 11, hálfmaraþon klukkan
11.30 og aðrar vegalengdir klukkan 12.
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir
áður en hlaupið er af stað. Kort með hlaupaleiðunum er
að finna á hlaup.is og einnig verða upplýsingar um þær
aðgengilegar við upphaf hlaups og við skráningu.
Nánari upplýsingar er að finna á www.hlaup.is.
● DANSFIT FYRIR KRAKKA
Árbæjarþrek í Fylkishöllinni í Árbæ er
lítil en notaleg líkamsræktarstöð. Þar er
ýmislegt í boði, til að mynda fínn tækja-
salur, skokknámskeið, aðhaldsnámskeið og
spinning.
Þá er einnig kennt dansfit fyrir krakka á aldrinum
10 til 13 ára. Næsta námskeið hefst 7. september
og kennt er þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 15.30
til 16.30. Kennari er Alda María Ingadóttir en á námskeið-
inu er lögð áhersla á að krakkarnir kynnist ýmsum dans-
stílum, öðlist grunntækni, geti dansað eftir takti, aukið
liðleika, geti samið smá rútínur og verið ófeimnir á
dansgólfinu.
● LAGALISTI Í LÍKAMSRÆKTINA
Miklu máli getur skipt að tónlistin sem hlustað er á meðan æft er, hvort
sem er í líkamsræktarstöðinni eða við skokk á Ægisíðu, sé í viðeigandi
takti og hvetji þannig til frekari dáða í stað þess að hægja á hlaupar-
anum. Á vefsíðunni thebestsongs.net má finna tillögur að tónlist fyrir
skokk, upphitun, langhlaup, teygjur, slökun og lyftingar. Má þar nefna
að Rammstein þykir til að mynda upplögð tónlist þegar ráðist er í að
lyfta þungum lóðum og lagið Eye of the Tiger með Survivor sniðið fyrir
hlauparann á brettinu. Fight For Your Right (To Party) með Beastie Boys
þykir gott fyrir alhliða æfingar.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
Hjónin Helga Árnadóttir og Stefán
Viðar Sigtryggsson kynntust á hlaup-
um. Þau hafa síðan hlaupið samstiga og
tóku þátt í þríþrautinni Járnmanninum í
Kaupmannahöfn nú í sumar.
„Þetta var fyrsta Ironman-keppnin sem við
tökum þátt í og aðalmarkmiðið var bara að
ná að klára,“ segir Helga Árnadóttir sem
lauk keppninni á 12 klukkutímum og 45
mínútum, rétt um klukkutíma á eftir
manni sínum, Stefáni Viðari Sig-
tryggssyni.
Helga og Stefán, sem
ganga nú undir heitinu
Járnhjónin í kunningja-
hópnum, byrjuðu á að synda 3,8
kílómetra í sjó, stukku þá á reiðhjól og hjóluðu
180 kílómetra og enduðu á að hlaupa heilt mar-
aþon. „Þetta var rosalega gaman, sérstaklega
að synda og hjóla en fyrri part dags var skýjað.
Seinni partinn fór sólin hins vegar að skína og
þá var mjög erfitt að hlaupa um miðborg Kaup-
mannahafnar í 28 stiga hita,“ segir Helga.
Alls fóru sautján Íslendingar út í keppnina og
segir Helga stemninguna hafa verið góða í hópn-
um. Þó að þríþrautin sé einstaklingsíþrótt er félags-
skapurinn mikilvægur og gott að heyra hvatningar-
orð á íslensku. Þau hjónin njóta líka stuðnings frá
hvort öðru en Helga komst að því í keppninni þegar
á reyndi.
„Ég lenti í baksi þegar sprakk hjá mér á hjólinu.
Stefán var á eftir mér og stoppaði til að hjálpa mér
að skipta um dekk og við töfðumst auðvitað bæði að-
eins út af þessu en ég er allavega vel gift,“ segir hún
hlæjandi.
Helga starfar sem aðstoðar-
maður þjóðgarðsvarðar í Vatna-
jökulsþjóðgarði og Stefán er
landvörður í Ásbyrgi. Þau
eru því bæði útivistarfólk og
hlaup og íþróttir skipa stóran
sess í lífi þeirra. Þau hófu æf-
ingar fyrir keppnina í nóvember
á síðasta ári og hlupu úti í öllum veðr-
um með hundinn með sér.
„Við höfum kannski ekki eins góða æf-
ingaaðstöðu og margir þar sem við búum
í Kelduhverfi austan Húsavíkur, en það
herðir mann bara að hlaupa úti í frostinu.
Svo settum við hjólin á statíf og hjóluð-
um inni fyrir framan sjónvarpið. Eftir
að við fengum blautbúningana synt-
um við svo í tjörn hérna í nágrenn-
inu og í sjónum. Okkur finnst þetta
rosalega gaman og það er mikið af
skemmtilegu fólki í þessu. Æfingarn-
ar taka auðvitað mikinn tíma og þá
er gaman að vera bæði í þessu,“
segir Helga og viðurkennir að
umræðurnar við kvöldmat-
arborðið snúist gjarnan um
hlaup. En ætla þau hjónin
að taka aftur þátt í Járn-
manninum?
„Já, strax og við komum
í mark var það alveg á
hreinu. Þó að þetta hafi
verið það erfiðasta sem
ég hef gert þá er þetta
áskorun og nú veit maður
að maður getur gert betur
næst.“ - rat
Hjónin Helga Árnadóttir og Stefán Viðar Sigtryggsson tóku þátt í Ironman-þríþrautinni í Kaupmannahöfn nú í ágúst. Eftir það eru
þau kölluð járnhjónin í góðra vina hópi.
Hlaupið úti í frostinu og heimilishundur-
inn er með.
Helga og Stefán æfðu sig fyrir sundhluta keppninnar í tjörn í Kelduhverfi.
Vefsíðan thebestsongs.net hefur að geyma lista yfir lög til að skokka og æfa við.
Vinirnir kalla þau járnhjón
Helga kemur sigri
hrósandi í mark
enda erfið þraut að
baki.