Fréttablaðið - 06.10.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.10.2010, Blaðsíða 20
MARKAÐURINN 6. OKTÓBER 2010 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A V I Ð T A L Þá er þér boðið í Jeppaferð fjölskyldunnar laugardaginn 9. október Skráning í síma 590 2000 eða með tölvupósti á benni@benni.is Nánari upplýsingar á www.benni.is Átt þú jeppa frá Bílabúð Benna? Í tilefni jeppaferðarinnar bjóðum við öllum 15% afslátt af Toyo vetrar- og jeppadekkjum til 9. október. Komdu við á nýja dekkjaverkstæðinu okkar að Tangarhöfða 8 og við afgreiðum þig fljótt og vel. Dekkjatilboð! Mark Flanagan hefur í tæp tvö ár verið yfir- maður sendinefndar AGS á Íslandi. Óli Kristján Ármannsson tók Mark tali og fékk hann til að líta yfir farinn veg. Mark segir hrunið hér eitt mesta fjármálahrun seinni tíma. Reynslan sýni að hvert hrun sé einstakt, sérhver staður þurfi sínar lausnir. Viðtekin venja er hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum að færa yfir- menn sendinefnda til á tveggja til þriggja ára fresti. Mark Flanag- an hefur farið fyrir sendinefnd sjóðsins á Íslandi síðan í ársbyrj- un 2009 og því haldið utan um þau skref sem stigin hafa verið í efnahagsáætlun stjórnvalda sem unnin var í samvinnu við sjóðinn. Forveri Marks í starfi var Paul Thomsen og á undan honum fór Petya Koeva með málefni Íslands. Núna tekur Julie Kozack við starf- inu, en Mark snýr sér að málefn- um Grikklands. Áður en hann tók við málefn- um Íslands segist Mark ekki hafa gert sér aðrar hugmyndir um við- fangsefnið en að við mikla erfið- leika yrði að etja. „Með reynslu af vinnu við önnur efnahags áföll þjóða lærir maður að búast við hinu óvænta. Í eftirleik efnahags- hruns er við gífurlega óvissu að fást. Það liggur ekki ljóst fyrir hvernig hagkerfið á eftir að bregð- ast við. Hefðbundin efnahagslík- ön sem stuðst er við í hagstjórn þegar allt leikur í lyndi eru nánast gagnslaus í umhverfi hrunsins og mjög erfitt að spá fyrir um hvað komi til með að gerast,“ segir Mark. Þegar hann tók við mál- efnum Íslands segist hann hafa reiknað með að myndin tæki að skýrast eftir tólf til átján mán- uði, en sú hafi verið raunin ann- ars staðar. ÓHEFÐBUNDIN MEÐUL Mark segir að mál hafi enda tekið að skýrast hér síðasta árið, hvar við stöndum, stefnan sem þróun efnahagslífsins hefur tekið og að hverju sé raunhæft að stefna. Í upphafi kreppu séu óvissuþættir svo margir og úrlausnarefni svo brýn að hreinlega sé ekki tími til að leggjast nákvæmlega yfir alla þætti. „Það tekur tíma að koma stefnunni á hreint á öllum svið- um og sú var sannarlega raun- in á Íslandi. Ég held hins vegar ekki að neitt hafi komið á óvart í hinni stærri mynd. Maður býst við ákveðinni óvissu og að þurfa að bregðast hratt við nýjum upp- lýsingum. Og það höfum við gert í efnahagsáætluninni,“ segir hann og kveður reglubundna endur- skoðun efnahagsáætlana nauð- synlegan þátt í að taka á breytt- um aðstæðum eftir því sem slík- um áætlunum vindur fram. Hvert land, þar sem AGS hefur þurft að hafa hönd í bagga, segir Mark Flanagan vera einstakt. Hins vegar hafi að nokkru marki auðveldað og einfaldað verkið hér að um þróað ríki var að ræða. „Ég komst að því að bæði ríkisstjórn og opinberir starfsmenn eru mjög hæfir og hafa staðið sig afar vel í að fást við hrunið. Grunnþætt- ir svona efnahagsáætlana eru hins vegar nokkuð líkir landa á milli,“ segir hann, en kveður að- stæður hér engu að síður hafa kallað á dálítið aðra nálgun en beitt hefur verið áður hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum í svipuð- um aðstæðum. „Hér höfum við og ríkisstjórnin gripið til nokkurra óhefðbundinna ráða, miðað við það sem áður hefur verið gert. Eitt þeirra er beiting gjaldeyris- varna.“ Mark segir að við upp- haf efnahagsáætlunarinnar hafi stjórnvöld og sjóðurinn ákveðið að nota sjálfvirka sveiflujafnara til að draga úr falli hagkerfisins í stað sértækra aðgerða. „Alla jafna höfum við ekki tækifæri til að gera þetta hjá öðrum löndum vegna skorða við fjármögnun, en hér var þetta hægt og ég held að það hafi gert hagkerfinu gott. Hér var því beitt óhefðbundnum með- ölum sem sýndi sig að voru mikil- væg viðbót við aðgerðaráætlun- ina og hjálpuðu til við að koma á jafnvægi.“ Samstarfið við stjórnvöld segir Mark að hafi verið náið og gott. „Við vitum hvert okkar hlutverk er, en það er að vera stjórnvöldum til ráðgjafar. Við vitum að ríkis- stjórnin kemur áætluninni í framkvæmd. Og við vitum að við höfum enga lagalega stöðu til þess að koma á þeim aðgerð- um sem kveðið er á um efnahags- áætluninni. Enda eigum við enga slíka stöðu að hafa, lönd eru sjálf- stæð.“ EITT MESTA HRUN SEINNI TÍMA Verkefni sjóðsins við að koma með tæknilega ráðgjöf og útvega fjár- mögnun efnahagsáætlunarinnar segir Mark að hafi gengið vel. „Ríkisstjórnin notar okkur sem rödd sem aðstoðar við að greina mögulegar niðurstöður ólíkra leiða, greina áhættu og velja á milli ólíkra nálgana við lausn mála. Við eigum stöðugt í slíkum viðræðum við stjórnvöld og þau geta hvenær sem þau vilja upp- lýst um hver skoðun Alþjóðagjald- eyrissjóðsins sé á ólíkum málum,“ segir hann og kveðst raunar telja að stjórnvöld ættu að upplýsa um skoðun sjóðsins. „Og svo höldum við blaðamannafundi til að kynna okkar sjónarmið.“ Við hverja endurskoðun efnahagsáætlunar- innar segir Mark hins vegar að náð sé sameiginlegri niðurstöðu ríkisstjórnarinnar og sjóðsins. „Þannig er samkomulag um stöð- una við hver kaflaskil í efnahags- áætluninni, þótt okkur geti greint á um einhver mál á leiðinni. Hag- fræði er ekki nákvæm vísindi og það er rúm fyrir rökræður og ólík sjónar mið.“ Mark Flanagan segir að sigrar hafi vissulega unnist í efnahags- áætlun Íslands, svo sem í að ná niður verðbólgu, í styrkingu krón- unnar og viðsnúningi í viðskipta- jöfnuði og í ríkisfjármálum. Hann segir sigur hins vegar ekki unn- inn fyrr en atvinnuleysi hafi verið útrýmt og grunnur lagður að stöð- ugleika og vexti efnahagslífsins. „Og hvað fjármálakerfið varð- ar þá varð hér mögulega einhver mesta fjármálakreppa heimsins í seinni tíð, mögulega sú mesta. Hér brast nær hver einasti þátt- ur fjármálakerfisins eða þurfti endur skipulagningar eða endur- fjármögnunar við. Þarna hefur miklum árangri verið náð, því erfitt er að reisa kerfi við eftir jafnalgjört hrun og það hefur tekið lengri tíma en búist var við,“ segir hann en bendir á að nú séu hér starfandi þrír stórir viðskipta- bankar og verið sé að ljúka endur- fjármögnun flestra sparisjóð- anna. „Á heildina litið myndi ég því líta svo á að við höfum unnið allnokkra sigra, en ég held að eng- inn fagni fyrr en við höfum tekið á atvinnumálunum, sem verða áfram í forgrunni við áframhald efnahagsáætlunarinnar.“ MÓTMÆLT VIÐ ALÞINGI Synd væri að segja að lognmolla væri í kring um efnahags- og stjórnmál þessa dagana. Hávaðamótmæli voru við stefnuræðu ríkisstjórnarinnar á mánu- dag, en hér má sjá þá félaga Hákon Jens Pétursson og Sigurð Harðarson (Sigga pönk) berja tunnu og hrópa „vanhæft Alþingi!“ með þúsundum annarra. MARKAÐURINN/ANTON MARK FLANAGAN Fráfarandi yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi segir margt hafa áunnist í efnahagsáætlun Íslands, en sigri verði ekki lýst yfir fyrr en tekist hafi verið á við atvinnuleysi í landinu með fullnægjandi hætti. MARKAÐURINN/STEFÁN Það kemur alltaf eitthvað óvænt upp

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.