Fréttablaðið - 25.10.2010, Qupperneq 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Mánudagur
skoðun 12
Handverk í Ráðhúsinu
Yfir 60 hönnuðir, handverks-
og listafólk kynna vörur
sínar á sýningunni.
allt 2
25. október 2010 MÁNUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Heimasíða um hollenska hönnuðinn og arkitektinn
Gerrit Rietveld (1888-1964) hefur verið opnuð af Centraal
safninu. Þar er að finna yfir átta þúsund hluti sem Rietveld hann-
aði. Vefsíðuna má finna á www.collectie.rietveldjaar.nl
O f
Svava Kristín Egilson myndlistarmaður situr oft með handavinnu á eftirlætisstað í húsinu sínu
Svava Kristín undir málverkinu góða.
Hringdu í síma
f b
Málaði
sig frá aðskilnaði
FASTEIGNIR.IS25. OKTÓBER 2010
43. TBL.
Þrastalundur kynnir einlyft einbýlishús í Garðabæ sem hefur verið endurnýjað bæði að utan og innan.
Fasteignasalan Eignamiðlun kynn-
ir vel skipulagt einlyft 143.6 fer-
metra einbýlishús ásamt 59,9 fer-
metra bílskúr að Þrastarlundi 7
í Garðabæ. Húsið hefur nær allt
verið standsett að innan. Það skipt-
ist í forstofu, snyrtingu, hol, tvær
samliggjandi stofur, baðherbergi,
þvottahús, sjónvarpsherbergi og
þrjú svefnherbergi. Það hefur ný-
lega verið lagfært og málað að utan
og nær allt endurnýjað að innan.
Má þar nefna gólfefni, innihurðir,
baðherbergi og loft. Þá hefur hal-
ógenlýsingu verið komið fyrir í
lofti og öryggiskerfi komið í gagn-
ið. Allar innréttingar í húsinu eru
endurnýjaðar og sérsmíðaðar með
vönduðum hætti. Húsið stendur á 887 fermetra lóð
með tveimur nýjum timburverönd-
um úr lerki. Lóðin er vel hirt, gróin
og skjólsæl.
Nánari lýsing á húsinu er á þessa
leið. Komið er inn í flísalagða for-
stofu með skápum frá G
henni er nýlega standsett baðher-
bergi með glugga. Úr forstofunni er
komið inn í rúmgott hol. Til vinstri
er svefngangur en til hægri er
stór stofa og borðstofa. Ljóst eikar-
plankaparket er á gólfum. Úr holinu
er gengið beint út í suðurgarð. Eld-
húsið er með nýrri hvítri sprautu-
lakkaðri innréttingu Eldopið i
enda gangsins er sjónvarpsherbergi
sem gæti nýst sem fjórða svefnher-
bergið. Baðherbergið er með bað-
keri, upphengdu salerni, nýjum
blöndunartækjum, sérsmíðaðri inn-
réttingu og flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúrinn er tvöfaldur m ð hopnar
Glæsilegt hús í Garðabæ
Húsið er glæsilegt að innan sem utan.
heimili@heimili.is
Sími 530 6500
Vel hannað 297,6 fm parhús á 2 hæðum við Furuás í Hafnarfirði.
Húsið er hægt að fá fokhelt að innan og utan til afhendingar eftir
samkomulagi verð 26.900.000 einnig er mögulegt að kaupa húsið í
núverandi ástandi verð 17.900.000. Möguleiki er að gera séríbúð á
neðri hæð hússins sem gæti hentað afar vel til útleigu. Upplagt fyrir
handlagna. Allar teikningar fylgja með.
Bóas Ragnar BóassonSölustjóri
Sími: 699 6165
Axel AxelssonLöggiltur fasteignasali
Furuás, 221 HFJ.
Nánari upplýsingar veitir Bóas í síma
699 6165 eða á boas@domusnova.is
Turninum 12. hæð - Smáratorgi 3 - 201 Kópavogi
90.390 krfermeter
Aðeins
híbýli og viðdaldMÁNUDAGUR 25. OKTÓBER 2010
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
Híbýli og viðhald
veðrið í dag
25. október 2010
250. tölublað 10. árgangur
Hvert þó í
strumpandi!
STRUMPAR
Í takt við
breytta tíma...
Frábær opnunartilboð!
Umhyggja 30 ára
Myndband um þróun í
aðbúnaði langveikra barna
á Íslandi sýnt á ráðstefnu á
Grand Hóteli.
tímamót 14
Kílóin hrynja af Frikka
Söngvarinn Friðrik Dór
æfir nú stíft fyrir útgáfu
fyrstu plötu sinnar.
fólk 26
STORMUR Í dag verða austan
15-23 m/s og slydda eða rigning
S- og V-lands. Hægari vindur og
úrkomulítið fram á kvöld norðan
og austan til. Hlýnar í veðri.
VEÐUR 4
-1
2
4
-2
-3
MANNRÉTTINDI Starfsmaður á skyndi-
bitastaðnum Subway við Hringbraut
neitaði að afgreiða viðskiptavin um
helgina með þeim orðum að hann
„afgreiddi ekki samkynhneigða“.
„Við komum þarna nokkur eftir
starfsmannapartý, þar sem hafði
verið bleikt þema. Afgreiðslumað-
urinn horfir á mig meðan hann er
að búa til samlokuna en síðan biður
hann allt í einu samstarfskonu sína
um að afgreiða mig og segir á ensku
I dont serve gay people,“ segir Hall-
grímur Hjálmarsson, sem lenti í
þessu atviki á Subway.
„Ég spurði hann nú bara hvort
honum þætti í lagi ef einhver kæmi
svona fram við hann, en hann var
greinilega af erlendu bergi brot-
inn,“ segir Hallgrímur.
Eftir að afgreiðslumaðurinn lét
sig hverfa á bak við bað samstarfs-
kona hans Hallgrím afsökunar og
bauðst til að afgreiða hann. „Hún
var mjög kurteis. Ég tók þessu
svo sem með meiri ró en vinnufé-
lagar mínir en við ákváðum samt
að fara annað. Mér finnst í raun
hneyksli að lenda í svona á Íslandi
árið 2010.“
„Þetta er rétt,“ segir Gunnar
Skúli Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri Subway, þegar Fréttablað-
ið hafði samband við hann vegna
málsins. Hann harmar atvikið og
segir fyrirtækið hafa tekið á mál-
inu. „Við höfum þegar sagt þessum
starfsmanni upp störfum. Hann
fær ekki að koma hingað inn á Sub-
way aftur.“ - rat
Starfsmaður á Subway skyndibitastaðnum var rekinn vegna fordóma:
Neitaði að afgreiða homma
Arsenal lagði Man. City
Arsenal hleypti lífi í
toppbaráttu enska boltans
með sigri á Man. City.
sport 22
HALLGRÍMUR HJÁLMARSSON Var neitað
um afgreiðslu á Subway, klæddur í
þessa bleiku skyrtu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TRÚMÁL Karl Sigurbjörnsson, bisk-
up Íslands, oftúlkar tillögu mann-
réttindaráðs Reykjavíkurborgar
um takmarkanir við aðgangi trú-
félaga að skólastarfi í borginni.
Þetta segir Margrét Sverrisdótt-
ir, formaður mannréttindaráðs
Reykjavíkurborgar. Henni finnst
viðbrögðin ofsafengin.
Biskup gagnrýndi tillögu mann-
réttindaráðsins í prédikun sinni í
Hallgrímskirkju í gær, sagði hana
skefjalausa fordóma og andúð á
kristni og Þjóðkirkjunni. Gangi
tillagan eftir muni hún stuðla að
fáfræði, fordómum og andlegri
örbirgð. „Það má sannarlega sjá
í drögum að samþykkt mannrétt-
indaráðs Reykjavíkurborgar, sem
krefst þess að lokað verði á aðkomu
kirkjunnar að skólunum, kirkju-
ferðir verði bannaðar og sálma-
söngur og listsköpun í trúarleg-
um tilgangi sömuleiðis,“ sagði
biskup og bætti við að lítið sé gert
úr menntun og reynslu kirkjunnar
þjóna með því að leggja til að í stað
þeirra verði kallaðir til fagaðilar
þegar áföll dynji yfir. „Þetta er illa
dulbúin atlaga að faglegum heiðri
presta og djákna,“ sagði hann í pré-
dikun sinni.
Margrét segir meininguna ekki
að ráðast á Þjóðkirkjuna. „Mér
finnst málið í flestum tilvikum á
misskilningi byggt og umræðan
farin um víðan völl. Það er verið
að setja hömlur á trúboð á skóla-
tíma. Auðvitað bitnar það á Þjóð-
kirkjunni,“ segir Margrét og efast
um að tillagan hamli starfi kristin-
fræðikennara í grunnskólum. „Ég
sé ekki að kirkjan þurfi að óttast
neitt enda engu verið að breyta.
Það er ekki verið að banna sálma-
söng og leggja jólaskemmtanir af,“
segir hún.
Margrét bendir á að lengi hafi
legið fyrir að setja þyrfti skýrar
reglur um trúboð í skólum á skóla-
tíma, eða allt frá því starfshópur
um samstarf skóla við trúar- og lífs-
skoðunarhópa skilaði af sér skýrslu
um málið fyrir þremur árum. Hins
vegar hafi ekkert verið gert.
Margrét bendir á að málið sé
skammt á veg komið, enn sé beðið
umsagnar fagráða og skólasamfé-
laga um tillögu mannréttindaráðs-
ins. „Það mun vega þungt.“ - jab
Undrast ofsafengin viðbrögð
biskups vegna trúboðsbanns
Tillaga mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um bann við trúboði í leik- og grunnskólum er aðför að Þjóð-
kirkjunni, að mati biskups Íslands. Formaður mannréttindaráðs segir biskup oftúlka tillögu ráðsins.
GULLSTÚLKURNAR ÚR GERPLU Kvennalið Gerplu fagnaði sigri á Evrópumótinu í hópfimleikum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sendi þeim hamingjuóskir í gær. Hún segir stúlkurnar hafa skipað sér í hóp bestu íþróttamanna Íslandssögunnar.
ÍÞRÓTTIR Kvennalið Gerplu og
stúlknalandslið Íslands í hóp-
fimleikum brutu blað í fimleika-
sögu landsins þegar Gerplustúlk-
ur fögnuðu sigri á Evrópumótinu
í hópfimleikum sem fram fór í
Malmö í Svíþjóð um helgina. Áður
á sama móti hafði unglingalands-
lið kvenna hafnað í þriðja sæti í
keppni landsliða.
Þorgerður Diðriksdóttir, for-
maður Fimleikasambands Íslands,
sagði í samtali við Fréttablaðið að
þetta væri stórkostlegur árangur.
„Þetta er einstakt því að við fórum
með stóran hóp út og allir náðu
sínum markmiðum og vel það.“
Hún bætir því við að hamingju-
óskum hafi rignt yfir hópinn.
„Það er mjög gott að finna fyrir
því að eftir þessu er tekið, en
þetta var löng og ströng leið og
miklar æfingar sem liggja þarna
að baki og það næst ekki á einum
degi. Það er verulega erfitt að ná
árangri í fimleikum þannig að það
er gleðilegt að við séum komin
svona hátt á blað.“ - þj
Evrópumeistarar í fimleikum:
Frábær árangur
Gerplu í Svíþjóð