Fréttablaðið - 25.10.2010, Síða 10
10 25. október 2010 MÁNUDAGUR
GERÐU VERÐSAMANBURÐ
LÆGRA
LYFJAVERÐ Í 14 ÁR
–einfalt og ódýrt
Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
TYRKLAND „Kristni á tvímælalaust
heima í Tyrklandi,“ sagði Christi-
an Wulff, forseti Þýskalands,
þegar hann ávarpaði tyrkneska
þingið í Ankara fyrir helgi, fyrst-
ur þýskra forseta.
Hann sagðist ætlast til þess
af tyrkneskum stjórnvöldum að
kristnir menn fái þar sömu rétt-
indi og múslimar. Þeir megi iðka
trú sína fyrir opnum tjöldum, reisa
þar kirkjur og mennta presta,
rétt eins og múslimar fá að reisa
moskur og mennta trúarleiðtoga í
Þýskalandi.
„Við verðum að gera trúarminni-
hlutum kleift að iðka trú sína,“
sagði Wulff á tyrkneska þinginu.
Óvenju fámennt var reyndar í
þingsalnum, og hafa sumir túlk-
að það sem andstöðu sumra þing-
manna við boðskap þýska forset-
ans, sem hafði fyrirfram dreift
meginpunktum ræðunnar til þing-
manna.
Tengsl Tyrklands og Þýskalands
eru mikil, ekki síst vegna þess hve
margir aðfluttir Tyrkir og afkom-
endur þeirra búa í Þýskalandi.
Í ræðu sinni tók Wulff sérstak-
lega fram að Þjóðverjar hafi mik-
inn áhuga á að Tyrkland tengist
Evrópusambandinu nánum bönd-
um, en tyrknesk stjórnvöld hafa
lengi átt í samningaviðræðum um
aðild að Evrópusambandinu.
„Trúfrelsið er partur af þeim
skilningi okkar að Evrópa sé sam-
félag um siðferðileg verðmæti,“
sagði Wulff.
Fyrir fáeinum vikum hafði
Wulff reyndar haft sams konar
boðskap fram að færa í heimalandi
sínu, Þýskalandi, en þá með öfug-
um formerkjum: „Kristni á heima í
Þýskalandi. Gyðingdómur á heima
í Þýskalandi,“ sagði hann 3. októb-
er í ræðu í Bremen í tilefni af því
að tveir áratugir voru liðnir frá
því Austur- og Vestur-Þýskaland
sameinuðust í eitt ríki.
„En nú er svo komið að íslams-
trú á einnig heima í Þýskalandi,“
sagði hann og hvatti Þjóðverja til
að taka múslimum og innflytjend-
um almennt opnum örmum. Jafn-
framt hvatti hann innflytjendur til
að laga sig að þýsku samfélagi.
Miklar og heitar umræður hafa
verið í Þýskalandi undanfarnar
vikur um innflytjendur í landinu
og aðlögun þeirra að þýsku sam-
félagi. Meðal annars sagði Angela
Merkel kanslari í ræðu þann 15.
október að tilraunin með fjölmenn-
ingarsamfélag í Þýskalandi hafi
algerlega mistekist.
gudsteinn@frettabladid.is
FORSETI ÞÝSKALAND Í RÆÐUSTÓL TYRKNESKA ÞINGSINS Recep Tayyip Erdogan,
forseti Tyrklands, fylgist með Christian Wulff flytja boðskap sinn. NORDICPHOTOS/AFP
Hvetur Tyrki
til að virða
trúfrelsið
Forseti Þýskalands sagðist ætlast til þess af tyrk-
neskum stjórnvöldum að kristnir menn fái að iðka
trú sína hindrunarlaust. Áður hvatti hann Þjóðverja
til að taka múslimum opnum örmum í Þýskalandi.
ALÞINGI Bankasýsla ríkis-
ins braut starfsreglur um
skilvirka og gagnsæja
ferla við sölu á eigum
Landsbankans til Arion,
félags í eigu lífeyrissjóða,
að mati Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokks.
Guðlaugur krafði Stein-
grím J. Sigfússon fjár-
málaráðherra um við-
brögð í fyrirspurnatíma á Alþingi
fyrir helgi. „Nú segir hvergi að
brjóta megi allar reglur ef lífeyris-
sjóðir eiga í hlut. Hvað ætlar fjár-
málaráðherra að gera?“ spurði
Guðlaugur og kvað Bankasýsluna
kosta skattgreiðendur 100 millj-
ónir króna á ári, þótt meginhlut-
verk hennar væri bara að fara með
hlut ríkisins í Landsbank-
anum.
Steingrímur benti á að
Bankasýslan færi einnig
með eign ríkisins í Arion
og Íslandsbanka og væri að
taka við eignarhlut í spari-
sjóðunum. Þá væri kostn-
aður við Bankasýsluna
ekki 100 milljónir, heldur
á milli 50 og 60.
Þá sagði fjármálaráð-
herra fullyrðingu Guðlaugs um að
farið hafi verið á svig við lög og
reglur rakalausa. Útskýrt hefði
verið bæði af hálfu Landsbankans
og Bankasýslunnar hvernig að
málum hefði verið staðið, um hafi
verið að ræða sameiningu eignar-
halds við stækkaðan sjóð, fremur
en beina eignasölu. - óká
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
Tekist á um meint reglubrot Bankasýslu ríkisins:
Þingmaður telur starfs-
reglur hafa verið brotnar
DÓMSMÁL Sjúkraliðar á Hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Garðvangi í Garði eiga að fá
greitt fyrir akstur til og frá vinnu búi þeir í
nágrannasveitarfélögunum, segir Félagsdómur.
Garðvangur lækkaði og felldi síðan alfarið
niður greiðslur til sjúkraliðanna vegna aksturs
til og frá vinnu. Átta sjúkraliðar sættu sig ekki
við það og málinu var vísað til Félagsdóms.
Segir í úrskurði Félagsdóms að þrátt fyrir
yfirlýsingar framkvæmdastjóra dvalarheim-
ilsins um hið gagnstæða hafi ekki verið leitað
samkomulags við sjúkraliðana varðandi þau til-
vik þar sem almenningssamgöngur féllu ekki
að vaktakerfi. Þótt stjórnendum hafi verið ljóst
að almenningssamgöngur hentuðu ekki alltaf
hafi hvorki verið fundin önnur lausn né hafi
sjúkraliðarnir fengið greitt fyrir akstur á eigin
bílum allar götur frá 1. febrúar á þessu ári.
Ákvarðanir Garðvangs séu andstæðar kjara-
samningi. „Verður fallist á þá kröfu stefnanda
að viðurkennt verði að ferðir til og frá vinnu-
stað teljist til vinnutíma að því er nemur flutn-
ingstíma frá mörkum næsta aðalíbúðarsvæðis
til vinnustaðar,“ segir í niðurstöðu Félags-
dóms. Dómurinn kveður upp úr með að sjúkra-
liðar sem starfa á Garðvangi en eru búsettir í
Reykjanesbæ, Sandgerði eða Vogum eigi rétt á
því að dvalarheimilið sjái þeim fyrir ferðum til
og frá vinnustað eða greiði ferðakostnað. Slíkar
ferðir teljist til vinnutíma. - gar
Félagsdómur ógildir ákvörðun hjúkrunarheimilis um skerðingu aksturspeninga:
Borga skal sjúkraliðum fyrir akstur vegna vinnu
Í GARÐI Átta sjúkraliðar sem vinna á Garðvangi en búa
ekki í Garðinum eiga að fá aksturspeninga sem teknir
voru af þeim.
HEILBRIGÐISMÁL Hjúkrunarráð
Landspítala telur að boðaður nið-
urskurður í fjárlagafrumvarpi
ársins 2011 hafi neikvæð áhrif á
þjónustu við sjúklinga og stofni
öryggi þeirra í hættu.
Þetta kemur fram í ályktun
hjúkrunarráðs Landspítalans.
„Mikill niðurskurður hefur nú
þegar verið á Landspítala síðustu
tvö árin og hefur þurft að hag-
ræða um rúmlega sex milljarða
og enn er gerð krafa um niður-
skurð á þessu ári,“ segir í álykt-
uninni. „Leitað hefur verið allra
leiða til að hagræða í rekstri
Landspítala bæði í innkaupum
og rannsóknum ásamt því að
starfsmönnum hefur fækkað um
12 prósent frá því í fyrra eða um
600 manns. Frekari niðurskurður
á Landspítala er því ekki ásætt-
anlegur.“ - jss
Óásættanlegur niðurskurður:
Öryggi sjúklinga
stefnt í hættu
RUÐNINGUR Í RIGNINGU Rigningin
steyptist yfir bandaríska ruðningsmenn
í Utah um helgina. Þessi áhorfandi
var sem betur fer við öllu búinn og
lét rigninguna engin áhrif hafa á sig.
MYND/AP