Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2010, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 25.10.2010, Qupperneq 12
12 25. október 2010 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Verðmætasköpun á grunni þekkingar. Markmiðið hljómar vel og hefur, með einum eða öðrum hætti, verið orðað ítrekað undanfarin misseri. Um það ríkir samfé- lagsleg sátt, enda felur það í sér möguleik- ann á lífskjarabótum umfram það sem auð- lindir okkar, sjávarfang og orka, geta staðið undir. Að ná þessu markmiði er forsenda þess að lífskjör sem við höfum vanist verði varanleg. Því er athyglisvert að skoða hvernig skipulega er unnið að þessu markmiði. Þar mætti t.d. líta til íslenska menntakerfisins. Eftirfarandi eru staðreyndir: • Íslenska menntakerfið er eitt hið dýr- asta meðal ríflega 30 aðildarþjóða OECD. • Í framlagi til háskólastigs menntakerf- isins er Ísland hins vegar meðal þeirra sem reka lestina hjá OECD. Miðað við hin Norð- urlandaríkin er framlag á hvern nemanda helmingi lægra á Íslandi. Ísland er eina landið þar sem framlag á hvern háskóla- nema er svipað og á hvern grunnskólanema. • Niðurskurður til menntamála í yfir- standandi efnahagskreppu er meiri á háskólastiginu en öðrum skólastigum menntakerfisins. • Niðurskurður til háskólakerfisins dreif- ist ójafnt eftir fagsviðum; hlutfallslega mestur á svið tæknitengdra greina. Það er jákvætt, og í takti við samfélags- mynd sem sátt er um, að vel er stutt við menntun eins og niðurstöður OECD gefa til kynna. Það skýtur þó skökku við, sér- staklega í ljósi vilja til verðmætasköpun- ar á grunni þekkingar, að það stig íslenska menntakerfisins sem líklegast er að stuðli að þekkingarverðmætum skuli vera jafn illa fjármagnað og raun er. Og að þar skuli, miðað við önnur stig menntakerfisins, eiga sér stað hlutfallslega mestur niðurskurður á opinberum fjárframlögum. Það er einnig umhugsunarefni að niðurskurðurinn skuli helst koma niður á tæknitengdum háskóla- greinum. Nú, þegar skortur er á fólki til starfa í þekkingariðnaði og þar liggur einn verðmætasti vaxtarbroddur íslensks atvinnulífs, ætti frekar að efla háskólakerf- ið og tæknimenntun sérstaklega. Þetta sýnir að forgangsröðun í íslensku menntakerfi styður ekki við markmið um verðmætasköpun á grunni þekkingar. Um þrennt er að velja; laga þarf skipulag menntamála að markmiðinu, viðurkenna að menntakerfið eigi ekki að nýta sérstaklega til að ná því eða viðurkenna að markmiðið sé ekki raunverulegt. Um tvo síðustu kost- ina verður vonandi aldrei sátt. Þekkingarverðmæti? Menntamál Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands VESTURLANDSVEGUR VAGNHÖFÐI VÉLALAND HÚSGAGNA- HÖLLIN TANGARHÖFÐI BÍlDSHÖFÐI H Ö FÐ A B A K K I REYKJAVÍK Vélaland - VAGNHÖFÐA 21 Sími 515 7170 K onur eru helmingur mannskyns en eiga eitt prósent eigna heimsins. Áætlað er að konur vinni 2/3 hluta vinnustunda í heim- inum. Að launum hljóta þær tíu prósent þeirra tekna sem aflað er. Heildarlaun kvenna á Íslandi eru samkvæmt tölum Hagstofunnar 66 prósent af heildarlaunum karla. Kynbundinn launamunur mælist meiri á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Hann er samkvæmt könnun Capacent frá þessu ári 9,9 prósent. Ofbeldi gegn konum er til muna algengari ástæða fyrir heilsubresti kvenna í heiminum en umferðarslys og sjúkdómur- inn malaría eru samanlagt. Áætlað er að um 800.000 manneskjur séu seldar mansali á ári hverju í heiminum, flestar til kynlífsþrælkunar. Átta af hverjum tíu þeirra eru stúlkur og konur, þarf af um helmingur undir lögaldri. Talið er að ein kona af hverjum þremur hér á landi verði fyrir alvarlegu kynferðislegu ofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni. Þolendur kynferðisofbeldis mæta enn djúpstæðum fordómum sem meðal annars felast í því að leitað er að ástæðum glæpsins hjá þolanda hans fremur en að beina sjónum að gerandanum. Nærri þriðjungur ofbeldismanna sem voru ástæða þess að konur leituðu til Kvennaathvarfsins í fyrra voru fyrrum sambýlis- eða eig- inmenn þeirra. Ógnin sem felst í ofbeldi í nánu sambandi getur því haldið áfram jafnvel löngu eftir að sambandi hefur verið slitið. 3,1 prósent íslenskra kvenna hafði leitað til Stígamóta vegna kynferðislegs ofbeldis sem þær höfðu verið beittar, frá stofnun samtakanna til ársloka 2009, eða í 20 ár. Rannsóknir sýna að fyrirtækjum þar sem bæði kyn skipa stjórn vegnar betur en þeim sem hafa á að skipa einkynja stjórnum. Samt eru nærri níu af hverjum tíu stjórnarmönnum í íslenskum fyrir- tækjum karlar og algengast er að stjórnir fyrirtækja séu eingöngu skipaðar körlum. Þrátt fyrir að Ísland mælist með minnsta kynjabil í heimi í skýrslu World Economic Forum þá mælist í þeirri könnun mikið misræmi milli atvinnuþátttöku kvenna, sem hér á landi er með þeirri mestu sem þekkist í heiminum, og efnahagslegri þátttöku þeirra þar sem Ísland er í 18. sæti. Samkvæmt launakönnun SFR frá 2008 getur karl með grunn- skólapróf vænst hærri launa en kona með háskólapróf. Allar umbætur sem orðið hafa á lífi og réttindum kvenna eru tilkomnar vegna samstöðu kvenna og þrotlausrar baráttu þeirra sjálfra. Þótt margir og mikilsverðir sigrar hafi unnist eru ástæðurnar fyrir því að konur fara í kvennafrí fjölmargar, bæði hér heima fyrir og á alþjóðlegum vettvangi. Þetta eru nokkrar ástæður þess að konur halda kvennafrí frá klukkan 14.25 í dag. Konur yfirgefa vinnustaði sína klukkan 14.25 í dag. Þess vegna kvennafrí SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Ungir og óreyndir Samband ungra Framsóknarmanna (SUF) krafðist þess um helgina að ríkisstjórnin taki til skoðunar allar þær hugmyndir sem fram hafa verið lagðar til úrbóta á skuldavanda heimilana. Framsóknarmennirnir ungu sögðu þá þrjósku og þann flokkspólitíska skotgrafahernað sem einkennt hafi umræðuna með öllu óboðlega og hvöttu stjórnvöld til að opna eyrun strax með hagsmuni skuldsettra heimila að leiðarljósi. Blindir á málið Ljóst er að Framsóknarmennirnir ungu boðuðu svolítið nýja tíma í íslenskum stjórnmálum. Það sama verður samt seint sagt um yfir- skrift kröfunnar, sem var af gamla skólanum: „Heyrnardeyfð ríkisstjórn- arinnar.“ Sigurlín Margrét Sigurðar- dóttir, fyrrverandi varaþingmaður Frjálslynda flokksins, tók málið upp og skrifaði á Facebook-síðu sína að óásættanlegt væri að minnihlutahópar séu notaðir eins og upphrópunarorð fyrir hegðun. Slíkt sé aðeins til þess fallið að ala á fordómum í garð minnihlutahópa. Þroskaheft ríkisstjórn Í færslu sinni dró Sigurlín Margrét, sem er heyrnarlaus, fram ýmis dæmi um óheppilegt orðaval um hópa í samfélaginu. Þar á meðal var: „ertu blindur?” „… meiriháttar mongólíti,“ „hagar þér eins og geðveik- ur“ og þar fram eftir götunum. Þá þóttist hún viss um að hefði SUF notað orðið „þroskaheft ríkisstjórn“ í ályktun sinni hefði það vakið hörð viðbrögð. jonab@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.