Fréttablaðið - 25.10.2010, Qupperneq 31
híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●MÁNUDAGUR 25. OKTÓBER 2010 3
Sófaáklæði verða oft úr sér geng-
in langt á undan burðarverkinu
sjálfu. Þau slitna, rifna og fá á sig
bletti sem nást ekki úr þrátt fyrir
öll teppahreinsunarefni. Að klæða
hann upp á nýtt getur oft verið
dýrt og erfitt að fá eins áklæði á
sófa sem kannski voru til síðast til
sölu fyrir tíu árum. Engin ástæða
er þó til að örvænta því nokkur eru
ráðin sem geta gert sófann vel
gjaldgengan á ný, ef ekki bara
flottari en hann var áður.
Í verslunum er ágætis-
úrval af ábreiðum, rúm-
teppum og stærri tepp-
um sem má breiða yfir
hluta sófans, bak, eða setur,
jafnvel skeyta saman nokkrum
teppum og voðum. Falleg skinn
geta farið yfir illa farinn sófa-
arm og púðar fela drjúg-
an part. Það þarf ekki einu
sinni slitið og ljótt áklæði til
að leika sér með útfærslur því
værðarvoðir, púðar og teppi eru
einmitt það heitasta um þessar
mundir. - jma
Gamli sófinn gjaldgengur á ný
● Slitið sófaáklæði, jafnvel með blettum sem nást ekki úr, á ekki að þurfa að eyðileggja heildarmynd sófasetts sem að öðru
leyti er í lagi. Nýtt áklæði er ekki aðalatriði heldur geta einföld ráð gert kraftaverk.
Skyndilausn sem má alls ekki kosta mikið getur verið
að kaupa slitsterk rúmföt, sængurver eða lak í fallegum
dökkum lit, svo sem fjólubláum, og sauma utan um
gamlar sófapullur í unglingaherbergjum.
Teppi sem líkjast skinni en eru úr gervi-
efni eru ákaflega falleg á hvíta sófa.
Slíkt teppi má meðal annars fá í Habitat. Þykkt og loðið teppi úr Habitat.
Sniðugt getur verið að leggja skinn eins
og þetta sem fæst í Habitat yfir slitinn
sófaarm.
Rúmteppi úr ILVA, gott til brúks á barna-
sessur og minni sófa.
Hér er brugðið á leik með nokkrar gerðir af
teppum þar sem þau eru lögð hlið við hlið.
Engan grunar að sófinn sé kannski í raun
slitinn og gamall.
● KATTASAND Í MÁLN-
INGU Besta aðferðin til að
losna við málningu er að skila
henni til sérhæfðrar endurnýt-
ingarstöðvar. Þeim sem ekki
komast á slíka stöð er ráðlagt
að láta málninguna þorna og
setja í hana sag eða kattasand
áður en hún er sett í sorptunnu.
Óráðlegt er að hella málngin-
unni í niðurfallið því hún er
eitruð og veldur skaða í
skólphreinsistöðvum.
Heimild: www.eea.eur-
ope.eu
● LEITIÐ TILBOÐA MEÐ
FYRIRVARA Skipuleggðu
viðhald á fasteigninni þinni
með góðum fyrirvara. Það getur
borgað sig að gefa sér góðan
tíma til að leita tilboða í verkið.
Gott er að nota vetrarmánuð-
ina til þess að skipuleggja þau
verk sem þarf að vinna utandyra
yfir sumartímann því oft getur
reynst erfitt að fá málarameist-
ara með stuttum fyrirvara á
sumrin. Heimild: malarar.is
g
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 90 stöðum
um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing