Fréttablaðið - 25.10.2010, Page 42

Fréttablaðið - 25.10.2010, Page 42
 25. október 2010 MÁNUDAGUR22 sport@frettabladid.is GERPLA braut blað í íslenskri fimleikasögu um helgina þegar liðið sigraði á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Malmö í Svíþjóð. Sigur Gerplu var einkar glæsilegur en liðið fékk hæstu einkunn á öllum áhöldum. Enska úrvalsdeildin: BIRMINGHAM CITY - BLACKPOOL 2-0 1-0 Liam Ridgewell (35.), 2-0 Nikola Zigic (56.). CHELSEA - WOLVES 2-0 1-0 Florent Malouda (22.), 2-0 Salomon Kalou (80.). TOTTENHAM HOTSPUR - EVERTON 1-1 0-1 Leighton Baines (16.), 1-1 Rafael van der Vaart (20.). WEST BROMWICH ALBION - FULHAM 2-1 0-1 Zoltan Gera (8.), 1-1 Youssuf Mulumbu (16.), 2-1 Marc-Antoine Fortune (39.). WEST HAM UNITED - NEWCASTLE UNITED 1-2 1-0 Carlton Cole (11.), 1-1 Kevin Nolan (22.), 1-2 Andy Carroll (68.). WIGAN ATHLETIC - BOLTON WANDERERS 1-1 1-0 Hugo Rodallega (57.), 1-0 Hugo Rodallega (58.), 1-0 Hugo Rodallega (58.), 1-1 Johan Elmander (64.) LIVERPOOL - BLACKBURN ROVERS 2-1 1-0 Sotiris Kyrgiakos (47.), 1-1 Jamie Carragher, sjm (51.), 2-1 Fernando Torres (52.). MANCHESTER CITY - ARSENAL 0-3 0-1 Samir Nasri (20.), 0-2 Alexandre Song (65.), 0-3 Nicklas Bendtner (87.). STOKE CITY - MANCHESTER UNITED 1-2 0-1 Javier Hernandez (26.), 1-1 Tuncay Sanli (80.), 1-2 Javier Hernandez (85.). STAÐA EFSTU OG NEÐSTU: Chelsea 9 7 1 1 25-2 22 Arsenal 9 5 2 2 21-10 17 Man. United 9 4 5 0 20-12 17 Manchester City 9 5 2 2 12-8 17 Tottenham 9 4 3 2 11-8 15 ------------------------------------------------------------ Fulham 9 1 6 2 10-11 9 Blackburn 9 2 3 4 8-10 9 Liverpool 9 2 3 4 9-14 9 Wolves 9 1 3 5 8-15 6 West Ham 9 1 3 5 7-17 6 IE-deild karla: KR-Fjölnir 93-77 KR: Finnur Atli Magnússon 19, Marcus Walker 17, Pavel Ermolinskij 15, Brynjar Þór Björnsson 14, Ólafur Már Ægisson 9, Fannar Ólafsson 8. Fjölnir: Ægir Þór Steinarsson 14, Tómas Heiðar Tómasson 13, Ben Stywall 10, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 9, Trausti Eiríksson 8. Hamar-Keflavík 90-85 Hamar: Andre Dabney 28, Ellert Arnarson 27, Darri Hilmarsson 12, Ragnar Á. Nathanaelsson 8. Keflavík: Hörður Axel Vilhjálmsson 34, Sigurður Þorsteinsson 14, Þröstur Leó Jóhannsson 11. Haukar-Grindavík 84-100 Haukar: Semaj Inge 40, Gerald Robinson 20, Sævar Ingi Haraldsson 13, Óskar Magnússon 5,. Grindavík: Andre Smith 18, Páll Axel Vilbergsson 18, Björn Steinar Brynjólfsson 15. STAÐAN: Grindavík 4 4 0 356-294 8 KR 4 3 1 376-337 6 Haukar 4 2 2 339-339 4 Njarðvík 3 2 1 236-247 4 KFÍ 3 2 1 279-263 4 Snæfell 3 2 1 279-267 4 Stjarnan 3 2 1 254-246 4 Hamar 4 2 2 339-337 4 Keflavík 4 1 3 323-335 2 Fjölnir 4 1 3 324-361 2 ÍR 3 0 3 250-274 0 Tindastóll 3 0 3 189-244 0 N1-deild karla: HK-FH 35-32 HK: Ólafur Bjarki Ragnarsson 12, Bjarki Már Elísson 8, Atli Ævar Ingólfsson 7. FH: Ásbjörn Friðriksson 9, Logi Geirsson 6, Ólafur Guðmundsson 5, Ari Þorgeirsson 4. STAÐAN: Akureyri 4 4 0 0 126-102 8 HK 4 3 0 1 130-130 6 FH 4 3 0 1 125-104 6 Fram 4 2 0 2 133-115 4 Haukar 4 2 0 2 91-101 4 Afturelding 4 1 0 3 96-109 2 Selfoss 4 1 0 3 108-135 2 Valur 4 0 0 4 107-135 0 N1-deild kvenna: Stjarnan-Valur 32-30 Stjarnan: Þorgerður Anna Atladóttir 11, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 6, Elísabet Gunnarsdóttir 4, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 4. Valur: Kristín Guðmundsdóttir 9, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 6, Ágústa Edda Björnsdóttir 4. ÍBV-Haukar 27-29 HK-Grótta 39-21 ÍR-FH 16-34 STAÐA EFSTU LIÐA: Fram 4 4 0 0 145-74 8 Stjarnan 4 3 0 1 131-98 6 Fylkir 4 3 0 1 119-92 6 Valur 4 3 0 1 125-84 6 IE-deild kvenna: Grindavík-Hamar 75-81 Fjölnir-Keflavík 39-93 Haukar-Njarðvík 60-85 KR-Snæfell 68-40 ÚRSLIT FÓTBOLTI Man. Utd og Liverpool komust bæði á sigurbraut í gær. United lagði Stoke, 2-1, og Liver- pool vann Blakburn með sömu markatölu, Það var Mexíkóinn Javier Hern- andez sem bjargaði öllum stig- unum fyrir Man. Utd að þessu sinni. Hann skoraði fyrst glæsi- legt skallamark með hnakkanum áður en Tuncay Sanli jafnaði fyrir Stoke níu mínútum fyrir leikslok. Þá héldu margir að United væri búið að missa enn einn leikinn niður í jafntefli. Þá kom Hern- andez á vettvang og skoraði sig- urmarkið fjórum mínútum fyrir leikslok. „Þegar Stoke jafnaði fór ég að hugsa að þetta yrði eitt af þess- um tímabilum en Chicharito bjargaði okkur. Það var frábært að sjá viðbrögð stuðningsmanna og leikmanna við markinu. Þetta var mark eins og við erum fræg- ir fyrir að skora,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, eftir leikinn en það varð allt vitlaust er Hernandez skoraði sigurmark- ið. Leikmenn fögnuðu eins og óðir væru og nokkrir stuðningsmanna félagsins réðu sér ekki fyrir kæti og hlupu inn á völlinn. „Það var frábært að fá svona sigurmark og finna stuðning- inn frá áhorfendum. Þeir vissu hversu mikilvægt þetta mark var. Vonandi förum við almennilega í gang núna.“ United mátti þakka fyrir að spila með ellefu menn allan leikinn því Gary Neville hefði átt að fá rauða spjaldið í fyrri hálfleik. „Ef þetta hefði verið leikmaður Stoke á Old Trafford sem hefði brotið tvisvar af sér á þennan hátt þá hefði hann verið rekinn út af,“ sagði foxillur Tony Pulis, stjóri Stoke. Stuðningsmenn Liverpool önd- uðu aðeins léttar í gær þegar lið þeirra vann loksins leik, Sigurinn dugði þó ekki til að koma liðinu úr fallsæti. Fernando Torres skoraði sigurmarkið en hann hefur átt erf- itt uppdráttar í upphafi tímabils- ins. „Fernando spilaði mjög vel í dag. Þetta var hans besti leikur í vetur. Þetta mark var gott fyrir hann og liðið. Vonandi finnur hann gleðina á ný og skorar fleiri mörk,“ sagði Roy Hodgson, stjóri Liverpool, eftir leikinn. „Ég er afar ánægður með stigin sem og frammistöðu liðsins í dag. Þessi sigur var meira en verð- skuldaður og ég var sérstaklega ánægður með fyrstu 70 mínúturn- ar hjá okkur.“ henry@frettabladid.is Hernandez hetja United Mexíkóinn Javier Hernandez sá til þess að Man. Utd gerði ekki enn eitt jafn- teflið í vetur er hann skoraði bæði mörk United í sigri á Stoke. Liverpool vann langþráðan sigur gegn Blackburn en er þrátt fyrir sigurinn enn í fallsæti. VAKNAÐUR? Fernando Torres skoraði langþráð mark í gær sem tryggði Liver- pool þrjú stig. N0RDIC PHOTOS/GETTY IMAGES HETJAN FAGNAR Javier Hernandez steig upp í fjarveru Waynes Rooney og kláraði leikinn gegn Stoke með tveimur góðum mörkum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Arsenal vann góðan sigur á Man. City, 0-3, í gær og blandaði sér með sigrinum aftur í toppslaginn. Lið City lék samt lengstum vel þó svo það hafi misst Dedryck Boyata af velli eftir aðeins fjórar mínútur. Arsenal var lengi vel aðeins 0- 1 yfir í leiknum og Joe Hart hélt City inn í leiknum er hann varði víti frá Cesc Fabregas rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. „Mér fannst við spila frábæran fótbolta á köflum og það er erfitt að stöðva okkur þegar við leikum á svona hraða. Þetta var góður sigur hjá okkur á mjög góðu liði,“ sagði Fabregas eftir leikinn en hann vildi ekki meina að liðsmun- urinn hafi breytt svo miklu. „Það skiptir engu máli hvað andstæðingurinn er með marga á vellinum. Við leikum alltaf til sigurs. Það var frábært að fylgj- ast með sóknarleik okkar í þess- um leik. Mér fannst við vera frá- bærir.“ Roberto Mancini, stjóri City, var ekki sammála þessu mati og segir klárt mál að sitt lið hefði unnið hefðu þeir verið ellefu menn á vellinum. „Það var skelfilegt að missa mann svona snemma af velli en ég er stoltur af strákunum. Þeir stóðu sig vel og voru alltaf líkleg- ir í stöðunni 0-1. Við sýndum að við erum eitt besta liðið með því að standa í Arsenal með aðeins tíu leikmenn. Við hefðum unnið ef það hefði verið jafnt í liðum,“ sagði Mancini. - hbg Arsenal skellti Man. City: City mátti ekki við margnum GLEÐI Samir Nasri fagnar marki sínu í gær sem var afar fallegt. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES KÖRFUBOLTI „Það var alltaf vitað að þetta yrði erfitt og það tekur allt- af tíma að finna veiku blettina. Við vorum að skjóta illa í fyrri hálfleik og þeir nýttu sín hraðaupphlaup þannig ég talaði um það við strák- ana í hálfleik að anda aðeins betur í sókninni og finna réttu skotin,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir 93-77 sigur sinna manna á Fjölni. „Við héldum þeim í þrjátíu stig- um í síðari hálfleik og það er mjög jákvætt,“ bætti Hrafn við en Graf- arvogsbúar gerðu meistaraefnun- um í KR lífið leitt lengi vel í gær. Fjölnismenn voru grimmir og gáfu heimamönnum lítið sem ekk- ert eftir en KR-ingar virtust sterk- ari og orkumeiri undir lok leiksins og sigldu sigrinum í land. Hrafn var ánægður með liðið en hrósaði þó Kananum sérstaklega og segir hann vera að finna sig betur og betur innan liðsins. „Ég er með stórt og sterkt lið sem er erfitt að hanga í. Mér fannst Marcus Walker eiga besta sautján stiga leik sem ég hef séð. Ég held að hann gefi okkur mikið varnarlega. Hann er líflegur og skemmtilegur karakter. Við viss- um að það tæki tíma að finna hans hlutverk í liðinu en sýnist það vera að koma,“ sagði Hrafn brosandi en það hefur ekki alveg gengið sem skyldi hjá KR í upphafi leiktíðar þrátt fyrir stóryrtar yfirlýsingar leikmanna liðsins. Hrafn er ánægður með liðið og segist hafa einstaklega gaman af því sem hann er að gera í Vestur- bænum. „Það eru einstök forréttindi að fá að þjálfa svona hóp og þeir hafa sýnt það líka að þeir koma alltaf sterkir til baka ef þeir lenda í ein- hverju áföllum. Þetta er búið að vera erfiður dagur en alveg yndis- legur líka svo ég fer sáttur heim,” sagði Hrafn í leikslok. - rog KR-ingar kláruðu Fjölnismenn í lokaleikhlutanum eftir að Fjölnir hafði hangið í Vesturbæingum lengi vel: KR-ingar stigu upp þegar mest á reyndi ILLVIÐRÁÐANLEGUR Fjölnismenn voru í vandræðum með Pavel Ermolinskij rétt eins og flest lið deildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.