Kylfingur - 01.10.1935, Síða 6
52
KYLFINGUR
Keppni þessi var höggakeppni (Medal play) með for-
gjöf (handicappi). Um hana er bókað þannig í fundabók
klúbbsins:
„Sunnudaginn 18. ágúst fór fram fyrsta keppni innan
golfklúbbs íslands, og var það þar með fyrsta golfkeppni
á íslandi.
I því tilefni hafði landsþing veðurgoða samþykkt að líta
í náð til íslenzkra kylfinga á þessum merkisdegi þeirra, og
rann dagurinn heiður og bjartur og hélzt þannig allur.
Kl. 2 eftir hádegi voru allir þeir þátttakendur, 23 að
tölu, sem skráð höfðu sig til keppninnar, mættir við klúbb-
húsið, og mátti sjá að mörgum var mikið niðri fyrir og
fæstum stóð á sama.
Hófst keppnin með því, að varaformaður, Ilelgi H. Ei-
ríksson, ávarpaði viðstadda með nokkrum vel völdum orð-
um. Eftir að hafa boðið menn velkomna, minntist hann
þess, hvílík tímamót dagurinn markaði í sögu golfsins
hér á landi. Síðan skýrði hann hvernig leikurinn skyldi
fram fara, en þetta var svonefnd „flaggkeppni", sem er
í því fólgin, að þátttakendum eru úthlutuð flögg, sem þeir
eiga að stinga niður þar sem þeir eru staddir þá er þeir
hafa lokið þeim höggafjölda, sem þeim er úthlutað —
nefnilega bogey + handicap.
Þá hófst sjálf keppnin og kepptu tveir og tveir eftir
því, sem kennarinn ákvað.
Lauk leiknum með því, að Gunnar Guðjónsson komst
lengst með sitt flagg, en Sigmundur Halldórsson varð
annar.
Var verðlaunum úthlutað að keppni lokinni og hlaut
Gunnar Guðjónsson golfkylfu að launum, en Sigmundur
hlaut 6 golfbolta, sem Mr. Arneson hafði gefið. Magnús
Andrésson hafði lægst „score“ á 18 holum og hlaut hann
að verðlaunum vindlingakassa, er H. Ólafsson og Bern-
höft höfðu gefið.
Einnig hlutu þær verðlaun, sín hvorn konfektkassann,
frúrnar Unnur Magnúsdóttir, sem komst lengst með sitt
flagg af dömunum, og Ágústa Johnson, sem hafði lægst
„score“ á 18 holum af dömunum.