Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2011, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 12.01.2011, Qupperneq 2
2 12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR ICESAVE Sterk rök eru fyrir því að leysa deiluna um Icesave þrátt fyrir að töluverð óvissa sé um efnahags- legar forsendur til svo langs tíma sem nýr samningur Íslands við Breta og Hollendinga nær. Þetta er álit Seðlabankans. Kemur það fram í umsögn hans um frum- varp til laga um nýja samninginn. Seðlabankinn telur að bætt aðgengi að alþjóðlegum fjármála- markaði vegi upp á móti efna- hagslegu óvissunni. Tekur hann jafnframt tillit til þess að úrskurð- ur EFTA-dómstólsins gæti fallið Íslandi í óhag, kæmi málið til kasta hans. Fjárlaganefnd Alþingis fund- ar um Icesave-samninginn í dag, á morgun og á mánudag. Á fund- unum verður farið yfir efnisatriði hans, álit umsagnaraðila rædd og þeir kallaðir til frekara skrafs. Seðlabankinn fjallar um óvissu forsendna nýja samningsins vegna gengis gjaldmiðla. Gengishækkun krónunnar hafi tiltölulega lítil áhrif en áhrif gengislækkunar umfram tíu prósent séu veruleg. Segir að helst væri að vænta mikillar geng- islækkunar ef Seðlabankinn missir tökin á verðbólgunni. Takist honum hins vegar að halda verðbólgu nálægt markmiðum séu hverfandi líkur á mjög mikilli gengislækkun. Að gefnum tilteknum forsendum telur Seðlabankinn mun líklegra að á komandi árum muni raungengi hækka en að það muni lækka. Jafnframt er fjallað um áhætt- una af breytingum á innbyrðis gengi punds og evru. Ekkert sé fast í hendi en þróun síðustu ára og vís- bendingar til framtíðar gefi tilefni til að ætla að tiltölulega lítil hætta sé á miklum breytingum þar á. Í umsögn Alþýðusambands Íslands segir að Alþingi verði að ljúka Icesave sem allra fyrst til að auðvelda aðgengi að erlendu fjármagni til uppbyggingar og atvinnusköpunar og stuðla að frek- ari vaxtalækkun. Telur sambandið nýjan samning geta stuðlað að því. Samband íslenskra sveitarfélaga kveðst í sinni umsögn ekki taka afstöðu til frumvarpsins. Engu að síður bendir það á að þrátt fyrir hagstæðari niðurstöðu en í fyrri samningum felist í henni veruleg skuldbinding af hálfu ríkissjóðs sem kunni að hafa áhrif á fjárlög. Væntanleg aukin skattheimta ríkis- ins til að standa undir þeim skuld- bindingum minnki enn meir svig- rúm sveitarfélaga til skattheimtu en þegar er orðið. bjorn@frettabladid.is SPURNING DAGSINS Oddur, eru bæjaryfirvöld alveg blind á þennan vanda þinn? „Já, þau eru siðblind.“ Oddur Stefánsson, sautján ára blindur Kópavogsbúi, hefur kært Kópavogsbæ fyrir að veita honum ekki lögbundna ferðaþjónustu. Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir heimildamyndina: Óreiða [现在是过去的未来] Askja, st. 132, fimmtudagur 13. janúar 2010, kl. 17:30 Sýningin er öllum opin og án endurgjalds. Sýningartími 59 mín. Fyrsta sýningin í heimilda- myndaröðinni China Screen: Chinese Filmmakers Disclose Stories from the Changing Middle Empire; Núið er framtíð hins liðna (现在是过去的未来) eða Óreiða: menn og dýr í ölduróti borgarinnar, í leikstjórn Huang Weikai. SAMKEPPNI Dregið var úr innsend- um lausnum á myndagátu Frétta- blaðsins í gær. Gátan birtist í blaðinu á gamlársdag. Dregnir voru út þrír vinn- ingshafar: Ólafur V. Björnsson í Kópavogi, Rannveig Bjarnadóttir á Akranesi og Skírnir Garðarsson í Reykjavík. Öll hljóta þau hljóta í vinning áskrift að heimsmeist- aramótinu í handbolta. Hand- boltamótið verður sýnt á Stöð tvö sport og hefst á morgun. Myndagátan reyndist mörgum snúin að þessu sinni því af um 430 lausnum sem bárust reynd- ust um 180 réttar. Rétt lausn áramótamyndagátu Fréttablaðsins er: Heimskreppa, náttúruhamfarir og umhverf- isslys settu svip á árið. Eldar brunnu á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Aska þakti blóm- leg héruð. Dregið úr innsendum lausnum á myndagátu Fréttablaðsins: Þrír fá áskrift að handboltanum DREGIÐ ÚR RÉTTUM SVÖRUM Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri og Steinunn Stefánsdóttir aðstoðarritstjóri drógu úr réttum innsendum lausnum á myndagátu Fréttablaðsins. SAMKEPPNI Myndir skopteiknar- ans Halldórs Baldurssonar hafa glatt lesendur Fréttablaðsins og Vísis.is frá apríl síðastliðnum. Margar eftirminnilegar mynd- ir hafa birst þar sem Halldór beitir skarpri háðsádeilu og samfélagsrýni á atburði líð- andi stundar. Nú gefst les- endum kostur á að taka þátt í vali á bestu mynd ársins en kosning stendur yfir á slóðinni visir.is/halldor. Tekið verður við atkvæðum fram til 22. janúar. 50 heppnir þátttakendur munu fá glaðning í formi kaffikönnu með myndum frá Halldóri. - þj Skopmyndir Halldórs: Kosið um bestu skopmynd ársins HALLDÓR BALDURSSON Sterk rök fyrir því að semja um Icesave Seðlabankinn segir að samþykkt Icesave-samningsins muni líklega bæta veru- lega aðgengi að alþjóðlegum fjármálamarkaði. Hvorki sé líklegt að þróun gengis íslensku krónunnar né punds og evru raski forsendum samningsins. Fjárlaganefnd óskaði umsagna eftirfarandi: Alþýðusambandsins, Sambands sveitarfélaga, Samtaka atvinnulífsins, fjármálaráðuneytisins, Hagfræðistofn- unar HÍ, Seðlabankans, Trygginga- sjóðs innstæðueigenda, Indefence, skilanefnd Landsbankans, slitastjórnar Landsbankans, Gam Management (sérfræðingar í vaxta- og gjaldeyris- mörkuðum), IFS greiningar (ráðgjafa- fyrirtæki á sviði fjármála og greininga), Ragnars Hall hrl., Peters Örebeck, lagaprófessors í Noregi, og sameig- inlegs álits lögmannanna Benedikts Bogasonar, Dóru Guðmundsdóttur, Stefáns Geirs Þórissonar og Stefáns Más Stefánssonar. Umsegjendur ÆÐSTRÁÐANDI Í SEÐLABANKANUM Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNSÝSLA Alls sóttu sextíu manns um stöðu forstjóra Orku- veitu Reykja- víkur (OR). Umsóknar- frestur rann út þann 4. janúar. Haraldur Flosi Tryggva- son, stjórnar- formaður OR, segir afar ánægjulegt hversu margir sýndu starfinu áhuga. „Það er mjög spennandi að taka þátt í þessu vali,“ segir Har- aldur Flosi. „Miðað við það hverj- ir kandídatarnir eru getum við verið viss um að fá mjög öflugan stjórnanda. Það er mikið af góðu fólki að finna á þessum lista.“ Helgi Þór Ingason hefur gegnt stöðu forstjóra síðan í ágúst en þá var hann ráðinn tímabundið. - sv OR auglýsti forstjórastöðuna: 60 sóttu um stöðu forstjóra HARALDUR FLOSI TRYGGVASON BANDARÍKIN, AP Þingmenn á ríkis- þinginu í Arizona veltu því fyrir sér í gær að setja neyðarlög sem banna mótmæli við jarðarfarir. Tilefnið er að söfnuður í óháðri baptistakirkju hafði lýst áhuga á að efna til mótmæla þegar níu ára stúlka, sem fórst ásamt fimm öðrum í skotárás á þingkonuna Gabrielle Giffords í borginni Tucson á laugardag, verður jarð- sungin. Söfnuðurinn er þekkt- ur fyrir að efna til mótmæla við jarðarfarir samkynhneigðra og bandarískra hermanna sem fallið hafa í Afganistan eða Írak. Giff- ords hefur sýnt málefnum sam- kynhneigðra skilning. - gb Boða mótmæli við jarðarför: Segja árásina refsingu Guðs REFSING GUÐS Söfnuðurinn hefur áður vakið uppnám við jarðarfarir. NORDICPHOTOS/AFP VÍSINDI Vísindamönum í Banda- ríkjunum hefur tekist að búa til nýja tegund glers, sem sögð er vera sterkari en stál. Nýja glerið er gert úr málmteg- undum og hefur þann eiginleika að geta látið undan höggum og þrýst- ingi með því að sveigjast frekar en brotna. Þetta málmgler varð til í samvinnu vísindamanna á rann- sóknarstofu bandaríska dóms- málaráðuneytisins í Berkeley og á California Institute of Technology. Vísindamennirnir segjast vera að þróa þessa glertegund áfram svo hún verði enn betri. - gb Bandarískir vísindamenn: Ný glertegund sterkari en stál SJÁVARÚTVEGUR Efnt verður til atkvæðagreiðslu um vinnustöðv- un í sex fiskimjölsverksmiðj- um á Austurlandi. Samninga- nefnd stéttarfélagsins Drífanda í Vestmannaeyjum, sem í eru starfsmenn tveggja fiskimjöls- verksmiðja, tekur tillögu um atkvæðagreiðslu fyrir í dag. Sverrir Mar Albertsson, fram- kvæmdastjóri Afls, starfsgreina- félags á Austurlandi, segir starfs- fólk bræðslanna vilja hærri laun. Verði samþykkt að fara í verkfall geti það ógnað loðnuvertíðinni. - bl Harka færist í kjaraviðræður: Verkfall ógnar loðnuvertíðinni VINNUMARKAÐUR Verktakafyrir- tækið ÍAV hyggst segja 170 starfs- mönnum upp störfum fyrir næstu mánaðamót, en það er tæplega helmingur starfsmanna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Þar sagði Karl Þráinsson, for- stjóri ÍAV, að uppsagnirnar væru vegna verkloka við tónlistarhús- ið Hörpu, en tekjur vegna þess verks eru meginhluti veltu fyrir- tækisins. Karl sagði að hugsanlega yrði dregið úr uppsögnum ef fyrirtæk- ið fengi ný verkefni á næstunni. Í samtali við Fréttablaðið sagði Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, að verklok við Hörpu hafi legið lengi fyrir og undirbúningur stórverkefna líkt og stærri virkjanaframkvæmda hefði átt að hefjast fyrir löngu. Hann sér þó ekki fyrir sér fleiri fjöldaupp- sagnir af þessu tagi. „Það er ekki algjört svartnætti í þessum bransa, en hann er að lifna miklu hægar við en maður hefði viljað. Það er þó hægt að sjá fram- vindu sem skilað getur mörgum verkefnum. Til dæmis fara lang- þráðar vegaframkvæmdir brátt af stað, útboð vegna Háskólasjúkra- hússins verður á þessu ári og við erum loks að sjá lífsmark á fast- eignamarkaði.“ - þj Uppsagnir í farvatninu vegna yfirvofandi verkefnaskorts á verktakamarkaði: 170 sagt upp við starfslok í Hörpu UPPSAGNIR ÍAV segist þurfa að segja 170 manns upp vegna verkefnaskorts eftir að framkvæmdum lýkur við tónlist- arhúsið Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.