Fréttablaðið - 12.01.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 12.01.2011, Blaðsíða 24
 12. JANÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR2 ● íþróttafatnaður Hraði er eitt af meginmarkmið- um bæði atvinnu- og áhuga- íþróttafólks. Adizero-vörulínan frá Adidas býður upp á léttan útbúnað fyrir meiri hraða. „Til að ná árangri í íþróttum þarftu að vera fljótur. Eftir því sem útbúnaðurinn er léttari fæst meiri hraði og Adizero-vörulínan gengur út á að allir íþróttaskór og föt séu eins létt og hægt er,“ út- skýrir Bjarki Magnúsarson, sölu- maður hjá Adidas á Íslandi. Bjarki segir eitt af undirstöðu- atriðum allrar þjálfunar vera hlaup. Hlaupaskór voru því fyrsta varan hönnuð í anda þessarar hug- myndafræði en á síðasta ári náði hún í fyrsta skipti yfir alla vöru- flokka, skó, fatnað og fleira. „Það eru alls konar vörulínur innan þessarar hugmyndafræði, einnig fatnaður. Það er misjafnt hvort þú vilt vera í mjúkri þægi- legri flík þegar þú ert að hlaupa rólega eða hvort flíkin þarf að vera létt og straumlínulöguð, þegar þú ert að æfa upp hraða eða ætlar að bæta tímann. Aðal áhersla Adizero er þó á fótboltaskó sem komu út í fyrra. Sömuleiðis eru körfubolta- skór, hlaupa skór og handboltaskór undir heitinu Adizero og má til dæmis geta þess að Guðjón Valur Sigurðsson handboltakappi notar Adizero-skó.“ Bjarki segir Adizero-fótbolta- skóinn vera léttasta fótboltaskó í heimi, nýjasta útgáfan er að- eins 145 g, og hafi farið sigurför á heimsmeistaramótinu í fótbolta á síðasta ári. „Adizero-fótboltaskórinn var markahæsti skórinn á HM 2010. Besti leikmaður mótsins, marka- hæsti leikmaðurinn og efnileg- asti leikmaðurinn á HM spiluðu allir í Adizero-skóm. Einnig spila sumir af hröðustu leikmönnum NBA-deildarinnar í Adizero-skóm, þeirra á meðal er Derrick Rose.“ Bjarki útskýrir að efnisnotkun í Adizero-línunni sé eins lítil og hægt er, án þess að sleppa neinu sem þörf er á. Sólinn á skónum sé þynnri og viðbragð og snerpa þar af leiðandi betri. Efnin fari einnig eftir því hvert hlutverk skósins sé. „Það er mismunandi hvaða eig- inleikum er verið að sækjast eftir. Bæði í körfubolta og handbolta eru aðrir skór fyrir þá leikmenn sem eru stærri og þyngri og áherslan er ekki á hraða. Eins er það með hlaupaskó. Sumir vilja hlaupa hægt og ró- lega og láta sér líða vel en fyrir þá sem eru að hlaupa hraðar, styttri vegalengdir eða eru að æfa fyrir íþróttir eins og handbolta, fótbolta, eða körfubolta, þá skiptir máli að vera í léttum útbúnaði. Starfsfólk íþróttavöruverslana getur ráð- lagt hverjum sem er með kaup á réttum útbúnaði eftir því hverjar áherslur kaupandans eru. Vörur við allra hæfi hafa verið gegnum- gangandi hjá Adidas í mörg ár. Áherslan á það breytist ekki.“ Meiri hraði á léttari skóm „Adizero-fótboltaskórinn var markahæsti skórinn á HM 2010,“ segir Bjarki Magnús- son, sölumaður hjá Adidas. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þegar Adolf „Adi“ Dassler byrj- aði tvítugur að smíða íþróttaskó í lítilli verksmiðju í Herzogenaur- ach í Þýskalandi árið 1920 þá var hann með einfalt markmið: að gera hvern einasta íþróttamann betri og hjálpa hverjum og einum að ná sínum markmiðum. Enn þann dag í dag hefur Adidas þessa sömu hugsjón að leiðarljósi við þróun og framleiðslu á íþróttavörum. Adi- das framleiðir vörur fyrir allar mögulegar íþróttir en áherslan er helst á fjóra vöruflokka: hlaup, fót- bolta, körfubolta og æfingar. Adi var frægur fyrir enda- lausa ástríðu sína á öllu sem við- kom útbúnaði fyrir íþróttafólk og hann eyddi miklum tíma í að fín- pússa skó fyrir sumt af þekktasta íþróttafólki heims. Þegar Þjóð- verjar urðu heimsmeistarar í fót- bolta í fyrsta skipti árið 1954 þá voru þeir í skóm frá Adidas. Adi var sjálfur á úrslitaleiknum og í hálfleik aðlagaði hann skó leik- manna að rennblautum vellinum með fyrstu „skrúfutökkunum“ og þýska liðið sigraði það ungverska í leik sem er oft nefndur „krafta- verkið í Bern“. Adi var alltaf jafn áhugasamur um hvernig hægt væri að hjálpa íþróttafólki til þess að ná árangri. Þegar hann var orðinn vel full- orðinn og var að horfa á sprett- hlaupara í sjónvarpinu sem var í skóm frá Adidas tók hann eftir því að hann rann örlítið til í beygjun- um. Hann tók strax upp símann, hringdi í viðkomandi hlaupara og sagði honum hvernig hann gæti endurraðað göddunum til þess að ná betra gripi. Þessi sama ástríða á íþróttum liggur að baki allri vöruþróun hjá Adidas í dag. Adidas vinnur enn samkvæmt hugmyndafræði stofnandans Adi Dassler, stofnandi Adidas, var óþreytandi í að bæta árangur íþróttafólks með betri útbúnaði. MYND/ADIDAS Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439. adidas.com all light all fast © 2 01 1 ad id as A G . a d id as , t h e 3- B ar s lo g o a n d t h e 3- St ri p es m ar k ar e re g is te re d t ra d em ar ks o f t h e ad id as G ro u p .

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.